Velsældarhagkerfi (e. wellbeing economy) er hagkerfi sem styður við sjálfbæra þróun á á takmarkaðri jörð sem setur skorður við umsvif mannsins. Slík hagkerfi byggja á mikilvægi visthagkerfa þar sem jafnvægi ríkir á milli þróunar hagkerfa og heilbrigði vistkerfa. Hagkerfið blómstrar og tryggir velsæld án þess að ganga á umhverfi- og auðlindir. Að auki er lögð áhersla á að efnisleg neysla sé ekki einungis fullnægandi til að tryggja velsæld, hamingju, tilgang og þroska heldur eru aðrir óefnislegir þættir mikilvægir að auki. Frumkvöðlar þessarar hugmyndafræði voru m.a. Fritz Schumacher, þýskur hagfræðingur sem starfaði í Bretlandi, og Herman Daly, bandarískur hagfræðingur sem starfaði meðal annars í heimsbankanum (e. World Bank).
Mikilvægi velsældarhugsunar var kjarnað af stórum fjölda fræðimanna sem voru kallaðir saman af ríkistjórn Bhutan árið 2012, en þáverandi konungur og forsætisráðherra voru beðnir um að koma með hamingjuvísa Bhutan (e. Bhutan´s Gross National Happiness (GNH) goals), inn í stefnumótun um þróunarstefnu Sameinuðu þjóðanna 2015-2030, sem síðar voru nefnd Heimsmarkmiðin (e. United Nations Sustainable Development Goals (SDGs).
Markmið velsældarhagkerfa voru sett fram af Costanza o. fl. (2018) sem: 1. að halda sig innan þolmarka jarðarinnar; 2. að mæta öllum grunnþörfum borgara; 3. að skapa og viðhalda sanngjarnri dreifingu auðlinda, tekna og auðs; 4. að tryggja skilvirka ráðstöfun auðlinda til að stuðla að velsæld fyrir alla (e. inclusive growth); og 5. að skapa stjórnskipulag sem er sanngjarnt, móttækilegt, réttlátt og ábyrgt.
Tillögur að stefnumótun fyrir ríkisstjórnir sem vilja vinna að velsældaráherslum hafa verið settar fram af samtökum um velsældarhagkerfi (e. Wellbeing Economy Alliance - WEAll). Sex ríkisstjórnir í samstarfi við bandalag velsældarhagkerfa (WEGo – e. Wellbeing Economy Governments coalition), sem samanstendur af Skotlandi, Nýja-Sjálandi, Íslandi, Wales, Finnlandi og Kanada, hafa tekið mikilvæg skref í átt að því að samþætta velsæld og sjálfbæra þróun í efnahagsstefnum sínum. Þessi nálgun leggur áherslu á mannlega (e. human) og vistfræðilega (e. ecological) velsæld og þar sem árangur er metinn með fleiri mælikvörðum en vergri landsframleiðslu (e. Gross Domestic Product – GDP). Samstarf þessara sex ríkja er í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SDGs), sérstaklega markmið 17, sem stuðlar að samstarfi um sjálfbæra þróun.
Bandalag velsældarhagkerfa (Wellbeing Economy Governments, WEGo) var stofnað af þremur kvenleiðtogum árið 2018 og í lok ársins 2024 voru þrjú lönd að auki komin í bandalagið (sjá Vísbendingu 2023 og 2024). Sýn þessara stjórnmálaleiðtoga hefur verið að mæla árangur ríkja á víðari máta heldur en að einblína á stærð hagkerfisins og hagvöxt sem aðalatriði. Velsældarstefnur hafa verið settar fram af ríkisstjórnum sem spanna allt litróf stjórnmálanna – enda eru hugtökin réttlæti (fyrir hag allra nú og fyrir komandi kynslóðir), jöfnuður (til að útrýma fátækt), og loftslagsvandi (til að ná utan um hlýnun jarðar) víða efst á baugi hjá ólíkum stjórnmálaöflum og stofnunum. Hér að neðan er reifað stuttlega hvaða áhrif stefnur um velsældarhagkerfi hafa haft á sex aðildarríki bandalags velsældarhagkerfa.
Skotland: Skotland hefur verið virkur þátttakandi í WEGo síðan 2018 og einbeitt sér að stefnumótun sem forgangsraðar sameiginlegri velsæld. Ársskýrsla skosku ríkisstjórnarinnar 2023-2024 varpar ljósi á frumkvæði sem miða að því að takast á við efnahagslegar, félagslegar og umhverfislegar áskoranir út frá velsældarsjónarmiðum. Í samræmi við niðurstöður Cook o.fl. (2023) hafa skoskir stjórnmálamenn lagt áherslu á að þróa aðferðafræði sem gerir stjórnvöldum kleift að tengja ákvarðanatöku við raunverulegan árangur varðandi heilsu, jöfnuð og lífsgæði. Lögð hefur verið áhersla á að velsældarmælingar verði samþættar í grunnstefnumótun til að tryggja langtíma sjálfbærni og heildræna nálgun í stjórnsýslu.
Nýja Sjáland: Nýja Sjáland hefur verið leiðandi í að innleiða ramma fyrir velsældarfjárlög og beina ríkisútgjöldum að því að bæta lífsgæði borgaranna. Þessi nálgun hefur haft áhrif á önnur lönd, þar á meðal Ástralíu, sem hefur íhugað að taka upp svipaðar aðferðir. Nýja Sjáland er mikilvægt dæmi um hvernig hægt …









