USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Nátt­úru­vá á Ís­landi

Af hverju er hún svona mikil?

Eldgos við Grindavík
Mynd: Golli

Ísland er ung eldfjallaeyja umvafin norður Atlantshafi. Flekaskil fara gegnum landið með tveimur þverbeltum þar sem jarðskjálftar nálægt 7 að stærð geta orðið. Undir landinu er möttulstrókur sem flytur heita kviku í átt að yfirborði og er ábyrgur fyrir mikilli eldvirkni á eynni en 33 eldstöðvar eru taldar virkar. Vegna legu eyjunnar eru veður válind, hún er hulin jöklum að hluta en umvafin hafi og því helst hitastig nokkuð jafn kalt árið um kring.

Þessi sérstaka lega landsins gerir það að verkum að flestar helstu tegundir náttúruvár finnast á Íslandi, eldfjalla- og jarðskjálftavá, skriðu- og snjóflóðavá, vatnsflóða- og jökulhlaupavá, flóðbylgjuvá, gróðureldavá og veðurvá eins og ofsaveður og aftaka úrkoma.

Er náttúruvá að aukast á Íslandi?

Margt bendir til að svo sé. Ekki er hægt að benda á ákveðna atburði í þessu samhengi, heldur er mikilvægt að skilja ferlana sem valda náttúruvá.

Náttúruvá fyrir tilstuðlan athafna mannsins hefur aukist. Ljóst er að hlýnun jarðar hefur margskonar áhrif á náttúruvá og er mikilvægt rannsóknarefni. Hopun jökla á Íslandi veldur þrýstingslétti sem hefur áhrif á undirliggjandi jarðskorpu. Margar af kröftugustu eldstöðvum landsins eru undir síminnkandi jökulfargi sem örvar kvikuframleiðslu og ef svo heldur áfram sem horfir aukast líkur á eldgosum. Hopandi skriðjöklar skilja eftir sig lón og óstöðugar hlíðar sem geta hlaupið fram og orsakað gríðarlegt tjón. Ennfremur, samfara hlýnun jarðar geta auknar sveiflur í veðurfari og aukin úrkoma haft áhrif á t.d. tíðni skriðufalla og snjóflóða. Hér er hægt að telja fleira til, eins og sjávarflóð, aukna tíðni jökulhlaupa samfara aukinni eldvirkni, o. fl. Niðurdæling jarðhitavökva örvar jarðskjálftavirkni staðbundið en slík niðurdæling á sér stað víðsvegar um landið og færist í aukana. Víða er töluverð reynsla komin á aðferðir og þolmörk og flestir skjálftanna eru það litlir að þeir finnast ekki og hafa sáralítil áhrif, en áfram þarf að fylgjast með og sér í lagi ef hefja á niðurdælingu á nýjum svæðum.

Það er því ljóst að á Íslandi er náttúruvá ekki fasti og margt bendir til að tíðni náttúruvár sé að aukast.

20250805_100512
Mælistöð jarðskorpuhreyfinga við Sundhnúkahraun 2025.
Mynd: Kristín Jónsdóttir

Orðanotkun og hugtök

Í umræðu um náttúruvá skiptir orðanotkun máli. Til að mynda er ekki alltaf ljóst hvort orðið hætta eigi við um vánna (e. hazard) eða áhættuna (e. risk). Nýverið tóku Almannavarnir saman hugtakasafn byggt á orðalista Sameinuðu þjóðanna um áhættuminnkun vegna hamfara, auk fleiri orðasafna sem áður höfðu verið í notkun hér á landi. Niðurstöður þeirrar vinnu má finna á vef Almannavarna, og er hugtakalistinn ætlaður til að nýtast öllum sem starfa að þessum málaflokki (almannavarnir.is/almannavarnir/hugtok).

Skoðum nánar áhættu. Ef ekkert fólk væri á Íslandi og þar væru engir innviðir eða verðmæti væri áhættan af völdum náttúrunnar engin því það væri ekkert sem gæti skemmst, meiðst eða dáið. Við tölum um tjónnæmi í þessu samhengi, stundum berskjöldun eða viðkvæmni (e. vulnerability & exposure). Þegar tjónnæmi eykst þá eykst áhættan þó svo að náttúruváin sé hin sama. Þegar ferðafólki fjölgar á Íslandi þá eykst tjónnæmið og þar með líkurnar á því að fleiri meiðist af völdum náttúruvár. Ferðamennska á Íslandi hefur breyst mikið á undanförnum áratug. Í stað þess að ferðafólk kæmi hingað einungis yfir sumarmánuði þá er mikill fjöldi fólks allt árið um kring og ferðafólk er ekki bara í byggð heldur líka í óbyggðum Íslands. Sömuleiðis má færa rök fyrir því að vegna breytinga á byggðamynstri og landnýtingu hafa líkurnar á slysum vegna náttúruvár aukist. Hin síðari ár hefur færst í aukana að fólk búi í einu bæjarfélagi og vinni í öðru og keyri tugi, jafnvel hundruð kílómetra alla virka daga ársins. Þetta breytta búsetumynstur gerir það að verkum að náttúröflin …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina