
Peningastefnunefnd ákvað á vaxtaákvörðunarfundi sínum í nóvember 2023 að halda vöxtum óbreyttum í 9,25%. Sem fyrr ræddi nefndin um taumhald peningastefnunnar í ljósi framvindu efnahagsmála og hvort það væri hæfilegt með tilliti til verðbólguhorfa. Áhyggjuefni er hversu þrálát verðbólgan hefur verið og að verðbólguhorfur hafi versnað á ný.
Í hinni almennu umræðu hefur stundum verið talað um að meginvextir Seðlabankans séu of háir og að þetta háa vaxtastig sé alltof kostnaðarsamt fyrir þjóðarbúið. Hins vegar gleymist oft í umræðunni hvers vegna nefndin hefur verið að hækka vexti síðustu mánuði og hverjar væru afleiðingarnar ef nefndin beitti ekki stýritækjum sínum til að ná verðbólgu niður í sitt lögbundna markmið. Þó að háu vaxtastigi geti fylgt kostnaður til skemmri tíma litið, þá yrði hann enn meiri fyrir öll heimili og fyrirtæki í landinu ef hátt verðbólgustig næði fótfestu til lengri tíma litið. Því er vert að minna á þann kostnað sem fylgir mikilli verðbólgu.
Kaupmáttur og verðmæti peninga
Þegar kemur að verðgildi peninga, þá er það raunvirðið sem skiptir máli. Fólk fær ekki nytjar af því að eiga þúsund krónur í veskinu eða inni á bankareikningi. Verðmæti þúsund krónanna felst í því magni af vörum og þjónustu sem fæst fyrir peninginn. Þegar verðlag hækkar þá lækkar raunvirðið þar sem sú vörukarfa sem þúsund krónurnar geta keypt hefur minnkað. Það er því neikvæð fylgni á milli verðgildis peninga og verðlags.
Verðbólga er eins og skattur á peningalegar eignir því hún rýrir verðmæti þeirra. Kaupmáttur launa dregst saman þar sem færri vörur fást nú fyrir sömu nafnlaun. Hinir efnaminni sem halda stórum hluta eigna sinna í formi peninga, og hinir tekjulægri sem eyða stórum hluta af launum sínum í nauðsynjavörur verða því hvað mest fyrir barðinu á verðbólgunni. Verðstöðugleiki er því mikilvægur til að viðhalda verðmæti peninga og kaupmætti launa.
Verðbólga getur leitt til aukinnar skattbyrði vegna þess að skattur er greiddur af nafnstærðum
Fljótandi mælieining
Eitt af þeim hlutverkum sem peningar gegna er að vera mælieining (e. unit of account). Vörur og þjónusta á Íslandi eru verðlagðar í íslenskum krónum. Þegar verðstöðugleiki er til staðar þá er virði krónunnar nokkuð stöðugt og það magn af vörum og þjónustu sem þúsund krónur geta keypt er sambærilegt á milli ára.
Þar sem verðbólga rýrir virði peninga hefur hún þau áhrif að þessi mælikvarði er ekki stöðugur á milli ára. Mikil verðbólga bjagar þær upplýsingar sem mælieiningin á að gefa og getur einnig brenglað verðskyn fólks, sem dregur úr líkum á hagkvæmri ákvörðanatöku með viðeigandi kostnaði fyrir heimilin.
Hlutfallsleg eftirspurn
Verðbreytingar ættu að gefa vísbendingu um breytingar á hlutfallslegri eftirspurn. Ef hlutfallsleg eftirspurn eftir ákveðnum vöruflokki eða atvinnugrein eykst þá ætti verð á þeirri vöru að hækka. Hærra verð hjálpar til við að aðlaga framboð og eftirspurn og koma í veg fyrir umframeftirspurn.
Þegar verðbólga er til staðar þá er almennt verðlag að hækka. Þar sem fyrirtæki breyta ekki öll verði á sama tíma þá brenglast hlutfallslegu verðin við mikla verðbólgu sem aftur brenglar ákvarðanatöku heimila og fyrirtækja. Erfiðara verður t.d. að meta góða fjárfestingakosti og hagkvæmt frameiðslumagn vöru.
Kostnaður vegna verðbreytinga
Það fylgir því kostnaður fyrir fyrirtæki að breyta nafnverði. Matseðlakostnaður (e. menu cost) á t.a.m. við um þann kostnað sem fellur til við að prenta nýja matseðla eða verðmerkingar. Fyrirtækin verða hins vegar ekki bara fyrir þessum áþreifanlega kostnaði. Því fylgir einnig kostnaður að taka ákvörðun um að breyta nafnverði, svokallaður upplýsingakostnaður (e. costly information) þar sem fyrirtæki þurfa að verða sér úti um og greina þær upplýsingar sem þarf til að taka hagkvæmustu ákvörðun um verð.
Þegar verðbólga er lítil eru fyrirtæki líklegri til að fylgja tímaháðri verðbreytingu …








