USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Pútín, Trump og óvin­ur núm­er eitt

Heimurinn breytist og þar með mögulega hverjir eru vinir þínir eða óvinir.

AFP__20180716__17Q12Q__v7__HighRes__TopshotFinlandUsRussiaPoliticsDiplomacySummit
 Donald Trump og Vladimir Putin heilsast á fundi í Helsinki þann 16. júlí 2018 en hluti heimsbyggðarinnar bíður í ofvæni og hluti á milli vonar og ótta eftir því hvenær þeir muni hittas næst.
Mynd: AFP

Síðustu vikur hafa verið óvenju viðburðaríkar í heimsmálunum en það er er gömul saga og ný að góðir og slæmir leiðtogar geta haft gríðarleg áhrif á gang sögunnar. Nú keppast stjórnmálaskýrendur á Vesturlöndum við að lesa í yfirlýsingar og ákvarðanir Donalds Trumps, Bandaríkjaforseta, og leiðtogar í Evrópu reyna eftir bestu getu að bregðast við augljósri stefnubreytingu Bandaríkjastjórnar en það er hægara sagt en gert þegar átt er við eins rysjóttan leiðtoga og Trump. Á meðan situr Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, í Kreml og hlakkar yfir hverri ákvörðuninni á fætur annarri sem tekin er í Washington.[23b0d9]

Fyrir sagnfræðing sem hefur rannsakað áróður og hugmyndafræði Sovétríkjanna gagnvart Bandaríkjunum á árunum eftir stríð[83b9bd] er áhugavert að sjá hvernig leiðtogar bæði austan og vestan hafs keppast nú við að endurskoða söguna og laga hana að sínum markmiðum. Bandaríkjaforseti og fólkið í kringum hann virðist hafa gleymt því hvernig alþjóðakerfið sem við höfum í grundvallaratriðum búið við frá endalokum síðari heimsstyrjaldar er tilkomið á meðan að bæði almenningur og leiðtogar í Evrópu eru almennt mjög meðvitaðir um það hvernig kalda stríðið mótaði öryggis- og varnarmál í álfunni. Kannski vegna þess að við urðum mörg vitni að því hvernig fall Sovétríkjanna og endalok kalda stríðsins höfðu áhrif á samfélög okkar en eins og við vitum þá sóttu fjölmargar Evrópuþjóðir það fast að ganga til liðs við bæði Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið, með það að markmiði að halda friði í Evrópu.

Washington og Moskva

Eftir yfirlesturinn sem Volodimír Zelenskí, forseti Úkraínu, fékk frá þeim Trump og J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu 28. febrúar síðastliðinn þá hefur orðræða stjórnenda í Kreml einnig tekið mikilvægum breytingum. Tveimur dögum eftir fundinn, sunnudaginn 2. mars, kom Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, fram í sjónvarpi þar í landi[1df433] og lýsti því m.a. yfir að „á síðastliðnum 500 árum (þegar Vesturlönd voru meira og minna orðin til í þeirri mynd sem þau hafa í dag, auðvitað með einhverjum breytingum) ættu allir harmleikir heimsbyggðarinnar sér rætur í Evrópu eða hefðu átt sér stað út af stefnu og markmiðum Evrópu: nýlendustefna, stríð, krossferðir, Krímstríðin, Napóleon, fyrri heimsstyrjöldin, Hitler. Ef þið horfið til baka á söguna þá hafa Bandaríkjamenn ekki ýtt undir uppreisnir, hvað þá hvatt til þeirra.“ Þetta er gríðarleg breyting frá því sem áður var, þegar Bandaríkin voru óvinur númer eitt, og sýnir vel hvernig stjórnvöld í Moskvu sjá sér hag í framsetningu og framkomu Trumps og Vance gagnvart Úkraínu og Evrópu í heild sinni.

Allt í einu er „Evrópa“ helsta ógn ekki bara Rússlands heldur heimsbyggðarinnar allar og leysir þar með Bandaríkin af hólmi sem helsta andstæðing þeirrar heimsmyndar sem Pútín hefur talað fyrir síðustu tuttugu og fimm árin. Og núna þegar þeir Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og Pútin virðast hafa náð talsambandi og …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina