USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Rík­is­fjár­mál 2013 til 2023

Yfirferð um opinber fjármál í rúman áratug, forsendur skuldasöfnunar og umfang hins opinbera.

dsf3956
Mynd: Golli

Afkoma ríkissjóðs, tekjur hans og gjöld, skipta miklu máli við stjórnarmyndun. Á þeim veltur hvort áætlanir nýrrar stjórnar verða að veruleika eða enda sem orðin tóm. Stjórnarmyndanir á síðustu árum hafa verið með ýmsum hætti að þessu leyti.

Í miðju fjármálahruninu í ársbyrjun 2009, var stjórn mynduð við sérstæðar aðstæður. Áður óþekktur halli var á ríkissjóði eftir gjaldþrot bankakerfisins og ný stjórn tók í arf samning við AGS um lán til þess að koma ríkissjóði í jafnvægi en fyrri stjórn hafði skilaði auðu blaði um ráðstafanir í því efni. Það var verkefni nýrrar stjórnar að semja Áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum 2009 - 2013 um aðgerðir í ríkisfjármálum. Gekk sú áæltun eftir og jöfnuður náðist árið 2013.

Í stjórnarsáttmálanum árið 2013 var jafnvægis í ríkisfjármálum getið með almennum hætti en ekkert fjallað um hvernig auknum útgjöldum eða lækkun sértækra skatta sem boðuð hafði verið yrði mætt.

Í stjórnarsáttmálanum árið 2017 er ítarlega fjallað um fyrirætlanir á mörgum sviðum samfélagsmála og lofað var stöðugleika í ríkisfjármálum og efnahagsmálum en þess ekki getið hvernig umbætur verði fjármagnaðar. Sáttmáli sömu flokka fjórum árum síðar er uppfærð útgáfa hins fyrri en loforð um bætta þjónustu voru óljósari.

Yfirlýsing núverandi ríkisstjórnar er stutt og tilgreinir stefnu og markmið fremur en stakar aðgerðir. Jafnvægi í ríkisfjármálum er fyrsta áhersluatriði yfirlýsingarinnar og boðuð er ný tekjuöflun með breytingum á skattkerfinu, auðlindagjöldum, umhverfisgjöldum í ferðaþjónustu o.fl.

mynd1-2

Tekjur og gjöld ríkissjóðs 2013 til 2023

Umræða um ríkisfjármál að undanförnu hefur að nokkru verið á skjön við veruleikann. Að venju hafa Viðskiptaráð, SA og fleiri sungið sína möntru um þenslu í ríkisrekstri og fjölgun opinberra starfsmanna og undir þá orðræðu kynntu fyrri stjórnvöld með fullyrðingum um að útgjöld í flestum málaflokkum hafi verið stóraukin. Með þessu hefur verið dregin upp sú mynd að ríkissjóður sé rekin með halla vegna útgjaldaþenslu og nú þurfi bregðast við með niðurskurði þjónustu.

Staðhæfingar um hækkun útgjalda byggðar á fjárhæðum á verðlagi hvers árs, eru villandi í mikilli verðbólgu en einnig vegna þess að landsmönnum hefur fjölgað og þjóðarbúið vaxið. Gjöld vegna Covid-19 og eldgosa eru tímabundin og þeim er að hluta mætt með tryggingum. Þau eiga ekki að hafa áhrif á mat á því hvort misræmi sé á milli tekna og gjalda ríkissjóðs. Hér á eftir er leitast við að meta stöðu og þróun ríkisfjármála með tilliti til þessa.

Ríkið, verðlag og mannfjöldi

Frá árinu 2013 til 2023[154b00] hafa gjöld ríkissjóðs vaxið úr um 690 mrd. kr. í um 1.430 mrd. kr. á verðlagi hvers árs.[8a1ee2] Hækkunin er 740 mrd. kr. Tekjur ríkissjóðs hækkuðu á sama tíma úr um 710 mrd. kr. úr 670 mrd. kr. í 1.380 mrd. kr. Uppsafnaður halli ríkissjóðs á tímabilinu var 581 mrd. kr.

Mynd 1 sýnir þróun ríkisfjármála á tímabilinu. Jafnvægi hafði náðst á árinu 2013 og uppsveifla var í efnahagslífinu allt til ársins 2018. Ferðaþjónustan hafði tekið við sér, atvinnuleysi var í lágmarki og fjöldi erlendra starfsmanna var á landinu. Við þær aðstæður vaxa tekjur ríkissjóðs, fyrst og fremst tekjuskattar einstaklinga og virðisaukaskattur, hraðar en flestar hagstærðir. Bættu þeir upp tapið af skattalækkunum í byrjun tímabilsins. Vöxtur gjalda frá 2013 til 2023 á verðlagi hvers árs var um 107% en tekjur uxu á sama tíma um 106%. Á fyrri hluta tímabilsins uxu tekjur hraðar en gjöld en eftir það snýst myndin við. Tekjur lækka vegna samdráttar í efnahagslífinu en taka síðan við sér en eru þó jafnan lægri en gjöldin sem hækkuðu vegna Covid-19 og jarðelda á Reykjanesi.

Frá 2013 til 2023 hækkaði verðvísitala landsframleiðslu um rúmlega 55%. Skýrir það meira en helming af hækkum tekna og gjalda ríkisins á tímabilinu. Að teknu tilliti til þess verður sú hækkun 33% í stað þeirra rúmlega 100% sem mynd 1 sýnir.

Auk verðbólgu þarf að taka tillit til þeirra áhrifa sem mannfjöldi hefur á ríkisfjármál. Fólksfjöldi hefur áhrif á vöxt þjóðarbúsins, tekjur og gjöld ríkissjóðs. Laun eru stærsti þáttur landsframleiðslu, eru skattstofn beinna skatta og ráða einnig miklu um neysluskatta. Íbúafjöldi er einnig ráðandi þáttur í þróun útgjalda í velferðarmálum og í uppbyggingu innviða o.fl. Frá 2013 til 2023, fjölgaði íbúum landsins um 19% og fjöldi starfandi á vinnumarkaði óx um rúm 28%.

Mynd 2 sýnir tekjur og gjöld á mann eftir að tekið h efur verið tillit til breytinga á verðlagi og mannfjölda. Hækkun tekna og gjalda á mann á föstu verðlagi á tímabilinu er 3-400 þús. kr. eða ríflega 10% eða innan við 1% á ári að jafnaði. Hækkun tekna og gjalda umfram verðlag var um 33%. Hún skýrist því að mestu af auknum íbúafjölda og fjölda erlends starfsfólks.

Ríkisumsvif sem hluti vergrar landsframleiðslu

tafla1

Framangreint segir þó ekki allt um breytingar á umfangi ríkisrekstrar. Þegar hagvöxtur er meiri en aukning mannfjöldi, þ.e. meðaltekjur á mann á föstu verðlagi vaxa, aukast tekjur og gjöld ríkisins þótt umsvif þess í þjóðarbúskapnum breytist ekki. Tekjur aukast við hækkun launa og gjöldin einnig því laun og félagslegar millifærslur, sem eru stærsti hluti útgjalda ríkisins, …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina