USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Sam­fé­lags­leg áhrif lofts­lags­breyt­inga

Í þessari þriðju og síðustu grein úr flokki sem birst hefur frá upphafi ársins eru teknar saman helstu niðurstöður Vísindanefndar um loftslagsbreytingar. Hér eru efnahagsleg og samfélagsleg áhrif loftslagsbreytinganna til umfjöllunar.

akur
Kornakur með byggi í Vallanesi á Fljótsdalshéraði. Mynd: Bjarni Diðrik Sigurðsson.
Mynd: Bjarni Diðrik Sigurðsson

Í fyrri greinum var rakið hvernig hitafar hefur breyst á Íslandi og kynntar niðurstöður loftslagslíkana um líklega hlýnun og áhrif hennar á breytingar í úrkomu, afrennsli, afkomu jökla og sjávarstöðu. Þá voru einnig rakin líkleg áhrif á náttúru Íslands, lífríki á landi, í vötnum og í sjó.

Niðurstöðurnar benda til þess að í lok þessarar aldar verði líklega heitara á Íslandi en verið hefur frá landnámi og gangi ítrustu losunarsviðsmyndir eftir verður veðurfar hér hugsanlega án fordæma síðan síðasta jökulskeiði lauk fyrir um tíu þúsund árum. Þessar breytingar leiða til þess að jöklar landsins munu halda áfram að rýrna og yfirborð sjávar að hækka. Lífríki lands og sjávar mun einnig breytast. Landið grænkar og möguleikar til útbreiðslu nýrra tegunda plantna og skordýra aukast. Hækkandi sjávarhiti hefur þegar leitt til þess að kaldsjávartegundir fiska hafa hopað og nýjar tegundir komið inn í fiskveiðilögsöguna. Breytingar í sjó hafa síðan meðal annars haft áhrif á sjófugla.

Allar þessar breytingar á umhverfi og náttúru Íslands leiða til beinna samfélagslegra og efnahagslegra áhrifa á Íslandi. Þar að auki, munu loftslagsbreytingar erlendis hafa óbein áhrif hérlendis svo sem vegna áhrifa á aðfangakeðjur, aðgengi að mörkuðum og á fólksflutninga. Þar sem áhrif loftslagsbreytinga og viðbrögð við þeim eru gríðarlega víðfeðm og ganga þvert á alla geira samfélagsins má halda því fram að loftslagsmálin séu eitt stærsta efnahagsmál samtímans. Í þessari þriðju og síðstu grein verður farið yfir samfélagsleg áhrif loftslagsbreytinga með áherslu á áhrif á byggða innviði, atvinnuvegi og efnahag. Sem fyrr er byggt á fjórðu samantektarskýrslu Vísindanefndar um loftslagsbreytingar.

Áhrif á byggða innviði

Byggðir innviðir eru nauðsynlegir til að halda samfélaginu gangandi eins og við höfum verið minnt á vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Loftslagsbreytingar munu hafa, og eru þegar farnar að hafa, áhrif á ýmsa byggða innviði sem við nýtum í öflun og miðlun vatns, fráveitu, framleiðslu og flutning orku og til samgangna.

Öflun og miðlun neysluvatns getur orðið fyrir áhrifum bæði vegna þurrka og aukins úrkomumagns, umhleypinga, flóða, skriðufalla og hækkaðrar sjávarstöðu. Til dæmis er aukin hætta á örverumengun vatnsbóla ef yfirborðsvatn kemst í grunnvatn svo sem vegna asahláku eða mikillar úrkomu og hærri sjávarstaða getur valdið saltmengun í grunnvatni. Skriðuföll geta einnig ógnað gæðum neysluvatns. Hvað þessa þætti varðar virðast minni vatnsveitur berskjaldaðri.

Fráveitukerfin verða einnig fyrir áhrifum en bæði skólp og vatn af yfirborði telst til fráveituvatns. Aukin tíðni mikillar úrkomu, sveiflur í veðurfari og hækkandi grunnvatns- og sjávarstaða hefur áhrif á það hversu vel fráveitukerfin virka. Til dæmis ef fráveituvatni er veitt í sjó dregur hækkun yfirborðs sjávar úr rennsli og flutningsgetu fráveitukerfisins. Samverkandi áhrifaþættir, svo sem hærri sjávarstaða og aukið úrkomumagn geta haft áhrif í sama aftakaveðri með auknum líkum á bakflæði í lögnum. Áhrifin eru meiri á blönduð kerfi þar sem skólp og ofanvatn er í sömu lögnum. Þá getur aukin rigning á frosna jörð aukið flóðahættu að vetri til.

Framleiðsla og flutningur raforku getur einnig orðið fyrir áhrifum. Rýrnun jökla hefur þegar aukið möguleika til vatnsaflsframleiðslu en óljóst er hversu lengi sú þróun mun halda áfram. Sveiflur í úrkomu og dreifingu hennar mun einnig hafa áhrif á rekstur miðlana vatns til vatnsaflsframleiðslu. Ekki er talið að loftslagsbreytingar hafi bein áhrif á rekstur jarðvarmavera en breytingar í úrkomu geta haft áhrif á lághitasvæði og þar með á hitaveitu. Breytingar á hvassviðratíðni og ísing getur haft áhrif á rekstraröryggi vindorkuvera og flutningskerfa raforku. Hvað varðar aðra möguleika til orkuframleiðslu getur verið að sumarhlýnun auki möguleika á ræktun plantna sem nýta má til orkuframleiðslu.

Innviðir vegasamgangna verða fyrir áhrifum svo sem vegna aukinna skemmda í burðarlagi vega og styttri líftíma slitlags sem kallar á aukna viðhaldsþörf. Minni þörf verður á snjómokstri en meiri þörf á hálkuvörnum þar sem hitasveiflur við frostmark verða algengari. Breytingar á sjávarstöðu geta aukið rof og flóðahættu á strandsvæðum, en minna frost í jörðu á fjallvegum getur haft áhrif á stöðugleika undirlags. Aukin skriðuföll og óstöðugleiki jarðlaga vegna hlýnunar og breytinga á úrkomu getur einnig valdið tjóni á öllum innviðum samgangna. Flóðahætta er víða til staðar á flugvöllum svo sem á Akureyri. Innviðir samgangna á sjó verða helst fyrir áhrifum vegna aukinnar flóðahættu og skemmda vegna hærri sjávarstöðu og auknum áhlaðanda.

BirkikembabH
Birkiþéla er blaðvesputegund sem fannst hér fyrst árið 2016 og hefur breiðst hratt út um landið. Lirfa hennar holar innan birkiblöð eftir mitt sumar. Birkikemba er lítil fiðrildategund með lirfu sem veldur mjög líkum skemmdum á birki snemmsumars, en sú tegund fannst hér fyrst árið 2005.
Mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir

Áhrif á atvinnuvegi

Áhrif loftslagsbreytinga á atvinnuvegi geta verið bein og óbein. Óbein áhrif geta til dæmis orðið vegna áhrifa erlendis eða vegna áhrifa á innviði innanlands sem hvort tveggja getur haft áhrif á aðgengi að aðföngum. Bein áhrif eru mest á þá atvinnuvegi sem háðir eru loftslagi, svo sem landbúnað, sjávarútveg og ferðaþjónustu en óbein áhrif má finna í öllum …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina