
Fátt vekur jafnmiklar deilur meðal Íslendinga og peningastefna Seðlabankans. Fáir einstaklingar eru jafnumdeildir og seðlabankastjórar og sumir þeirra umdeildari en aðrir. Það er helst kvótakerfið sem vekur jafnmiklar tilfinningar og er jafnlíklegt til þess að eyðileggja fjölskylduboð á jólum og öðrum hátíðum.
En vandinn liggur dýpra. Gengissveiflur krónunnar valda því að lífskjör breytast frá einu ári til annars. Stundum er ódýrt að ferðast til útlanda og tugþúsundir flykkjast til annarra landa en dýrt á öðrum tímum og fólk situr heima. Stundum eru nýjir bílar ódýrir, stundum dýrir. Það er hluti af menningu okkar að hugsa um og spá fyrir um gengi krónunnar. Sumar gengissveiflurnar fela í sér aðlögun hagkerfis að breyttum aðstæðum svo sem sjávarafla og fjölda ferðamanna á meðan aðrar eru óþarfar, stafa af spákaupmennsku sem oft byggist ekki á miklum upplýsingum.
Sjálfstæður gjaldmiðill, flotgengi og frjálst flæði fjármagns búa til athyglisverðar hagsveiflur frá sjónarhóli þjóðhagfræði. Hins vegar er ekki víst að hag almennings sé best borgið við slíkar aðstæður, þótt enginn geti kveðið á um slíkt með vissu.
Íslendingar bera sig oft saman við hin Norðurlöndin fjögur eða ýmis Evrópuríki. En Danmörk, Noregur og Finnland hafa meira en fjórtán sinnum fleiri íbúa og Svíþjóð meira en tuttugu og sex sinnum fleiri. Alveg eins væri unnt að bera okkur saman við Færeyinga. Íbúafjöldi á Íslandi er um sjöfaldur íbúafjöldi Færeyja. Færeyingar hafa svipaðan uppruna og Íslendingar og menning er ekki mikið frábrugðin. Í Færeyjum er efnahagslíf einhæft eins og hér á landi. Lífslíkur eru svipaðar, þær eru 83,1 ár í Færeyjum og 83,1 ár á Íslandi. Verg landsframleiðsla á mann er einnig svipuð, hún er 69.010 dollarar á mann í Færeyjum og 68.728 á mann á Íslandi.
Færeyjar hafa ekki eigin seðlabanka og þurfa því ekki að þræta um vaxtaákvarðanir og persónur seðlabankastjóra. Þess í stað nota þeir dönsku krónuna en seðlar og mynt í Færeyjum líta samt öðru vísi út, eru færeysk, þótt í raun sé verið að nota dönsku krónuna. Seðlabanki Danmerkur er því seðlabanki Færeyja.
Seðlabanki Danmerkur hafði fast gengi við þýska markið frá 1982 til 1999 og við evru allar götur síðan. Dönsku krónunni er leyft að flökta aðeins frá degi til dags en peningastefna danska seðlabankans og vaxtaákvarðanir felast í því að halda genginu föstu.
Stundum er sagt að Danmörk noti í raun evru, eini munurinn er þá sá að seðlarnir hafa mynd af drottningunni. Af því leiðir að Færeyjar noti einnig í raun evru með seðlum sem hafa þjóðlegar færeyskar myndir af landslagi og persónum.
Kenning Mundell um kjörsvæði mynta myndi segja okkur að Færeyjar ættu ekki að nota evru vegna þess að hagfræðilegir hnykkir og skellir eru aðrir í Færeyjum, einkum aflabrögð, en á meginlandi Evrópu; verð og laun eru ekki fullkomlega sveigjanleg; og þótt fólksflutningar séu talsverðir þá eru Færeyjar ekki á sama vinnumarkaði og evrusvæðið. Reyndar skipti Mundell um skoðun síðar á ævinni og er oft kallaður „faðir evrunnar.“ Rök hans fyrri upptöku evru voru þau helst að með henni yrði áhættudreifing meiri á milli hagkerfa. Fjárfestingar eins ríkis myndu dreifast um önnur hagkerfi og erlent fjármagn koma í staðinn.
Hagvöxtur
En hvernig hefur Færeyingum farnast? Við gætum búist við því að án sjálfstæðrar peningastefnu yrðu sveiflur framleiðslu og atvinnu meiri á Íslandi en í Færeyjum og búferlaflutningar miklir vegna þess að innfæddir flytja í burtu til Danmerkur í kreppum og koma svo aftur til baka þegar betur árar. Skoðum nú nokkrar hagstærðir. Mynd …








