USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Sjóð­ir og áföll - I

Fyrri grein af tveimur um hugmyndina um þjóðarsjóð í ljósi náttúruhamfara og annarra efnahagslegra áfalla, með tilliti til ásættanlegrar áhættu, mögulegrar endurtryggingar og getu ríkissjóðs til viðbragða. Seinni grein mun birtast innan tveggja vikna.

dji-20240208094348-0680-d
Mynd: Golli

Sambúð manns við náttúruna á eldfjallaeyjunni getur aldrei verið áfallalaus. Um það vitnar meira en 11 alda saga. Lengst af þeirrar sögu höfðu landsmenn engin tök á að bregðast við eða búa sig undir stóráföll, hvort heldur vegna eldvirkni, hallæris eða smitsjúkdóma. Margoft féll stór hluti þjóðarinnar en lífið hélt áfram hjá hinum svo nýjar kynslóðir gátu tekið við keflinu.

Geta nútímamanna til að bregðast við stóráföllum eins og þeim sem léku forfeðurna grátt er hins vegar umtalsverð. Við ráðum betur við faraldra, sem þó geta enn gert okkur skráveifu, en getum ekki stjórnað eldvirkni jarðar, þótt við höfum náð að beisla lítinn hluta hennar og fengið þannig birtu, yl, ál og ýmislegt fleira. Við þekkjum hana hins vegar miklu betur en forfeðurnir, vitum meira um við hverju má búast og getum tekið tillit til hennar við ýmsar ákvarðanir. Jafnframt er samfélagið nógu auðugt og sterkt til að hægt sé að dreifa byrðunum af fjárhagslegum áföllum vegna jarðelda og -skjálfta eða annarra hamfara á herðar margra og létta þannig byrðar þeirra sem kunna að verða fyrir tjóni.

Tvær tegundir ráðstafana

Efnahagslegum ráðstöfunum vegna jarðhræringa má skipta í annars vegar það sem gert er fyrirfram, vegna hættu á tjóni, og það sem er gert eftir á, til að dreifa kostnaði vegna tjóns. Sem dæmi um aðgerðir sem gripið er til fyrirfram má nefna að hanna og smíða mannvirki þannig að þau þoli jarðskjálfta og ofsaveður. Staðsetning mannvirkja skiptir einnig máli. T.d. er búseta bönnuð á tilteknum svæðum vegna mikillar hættu á snjóflóðum.

Stundum eru mannvirki hönnuð þannig að þau munu ekki þola áraun sem er fyrirsjáanleg en ekki hversdagsleg, jafnvel ólíkleg. Gott dæmi um það er Skeiðarárbrúin, mikið og dýrt mannvirki á sínum tíma, fyrir hálfri öld, sem vitað var að myndi ekki þola mestu hugsanlegu flóð eftir eldgos undir jökli. Það hefði enda orðið allt of dýrt að smíða brú sem stæðist þau. Þetta var skynsamlegt. Brúin stóð af sér öll flóð í rúma tvo áratugi, skemmdist í hamfaraflóði 1996 en dugði svo eftir viðgerð allt til ársins 2009, þegar hún varð gagnslaus eftir að farvegur árinnar breyttist. Það var líka þekkt áhætta. Hún var reyndar þá líka orðin úrelt vegna aukinna krafna í umferðarmálum enda einbreið.

Sama hugsun bjó að baki því að halda áfram búsetu í Heimaey eftir gosið 1973. Því fylgir óneitanlega vel þekkt áhætta en það var ákveðið að búa við hana – í bókstaflegum skilningi. Það gæti gosið aftur í eynni, jafnvel inni í byggð en ekki fyrir utan hana eins og síðast. Svipaðra spurninga verður að spyrja fyrr eða síðar vegna Grindavíkur því að þar er byggðin í sambærilegri hættu.

Grindavík og Vestmannaeyjar eru að mati jarðvísindafólks einu þéttbýlisstaðirnir á Íslandi þar sem eldgos gæti hafist inni í byggðinni sjálfri en mun fleiri geta verið í hættu vegna hraunrennslis eða vatnsflóða. Það síðara á m.a. við um Vík í Mýrdal. Hraun hefur áður runnið um stóra hluta höfuðborgarsvæðisins og engan veginn hægt að útiloka að það gerist aftur. Gosmökkur getur líka valdið miklum skaða líkt og sást m.a. í móðuharðindunum. Stór hluti landsins er jafnframt í hættu vegna jarðskjálfta og sjávarflóð hafa lagt byggð í eyði. Samt búum við hér enn og munum vonandi og væntanlega gera um aldir alda.

Ásættanleg áhætta

Spurningin um hvað er ásættanleg áhætta hefur ekki einfalt svar. Ef við tökum Vestmannaeyjagosið sem dæmi þá hefur verið áætlað að tjón sem bætt var vegna þess hafi verið jafnvirði 55 milljarða króna á verðlagi nútímans. Hagkerfið er hins vegar u.þ.b. 4,5 falt stærra nú en fyrir hálfri öld þannig að sambærilegt högg nú væri um 250 milljarðar. Enginn veit nú hve mikið tjón hefur orðið eða mun verða í Grindavík og nágrenni en verstu sviðsmyndirnar eru líklega að svipað eignatjón verði, þ.e. ef Grindavík og mannvirki í nágrenninu eyðileggjast öll eða verða ónýtanleg. Versta sviðsmyndin er því högg upp á rúm 5% af vergri landsframleiðslu. Líklegra er þó að það verði minna, jafnvel ekki meira en þegar hefur orðið í bjartsýnustu sviðsmyndunum. Óvissan er það mikil að það er ekki ástæða til að túlka þessar tölur nema sem mjög grófar vísbendingar.

Högg upp á 5% af vergri landsframleiðslu er auðvitað mjög þungt (Hrunið var þó mun verra!) en ef það gerist á 50 ára fresti þá …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina