Kaupmáttur fólks á aldrinum 30–39 ára hefur staðið í stað í 20 ár á Íslandi, þar af í 25 ár hjá körlum. Á sama tíma hefur ójöfnuður milli kynslóða aukist mun hraðar hér en á öðrum Norðurlöndum. Vandi ungs fólks á Íslandi krefst markvissra aðgerða. Þarf „kynslóðasáttmála“ í stjórnarsáttmálann?
Kynslóðaójöfnuður aukist mun hraðar hér en á öðrum Norðurlöndum
Á tímabilinu 1999-2024 jókst kaupmáttur mismikið eftir aldurshópum. Á meðan fólk á aldrinum 30-39 ára upplifði aðeins 19% aukningu í kaupmætti ráðstöfunartekna, jókst kaupmáttur 60-69 ára um 64% og kaupmáttur 70 ára og eldri um 75%. Fólk yfir sextugu hefur því aukið kaupmátt sinn þrefalt til fjórfalt á við 30-39 ára aldurshópinn á síðustu 25 árum. Sundurliðun á kaupmáttaraukningu eftir kyni leiðir þá í ljós að munurinn milli kynslóða er meiri hjá körlum en konum, samanborið við sama kyn.
Á sama tíma virðist þróunin hafa verið með öðrum hætti í Danmörku og Svíþjóð. Á meðan munur á kaupmáttaraukningu 30-39 ára og fólks yfir sextugu var 45-56% á Íslandi var hann aðeins 23-31% í Danmörku og Svíþjóð. Kynslóðaójöfnuður hefur aukist mun hraðar á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum.
Þessi mikli munur í kaupmáttaraukningu eftir aldri á Íslandi hefur gert að verkum að fólk á aldrinum 30-39 ára býr nú við lítillega minni kaupmátt en jafnaldrar á Norðurlöndum en eldra fólkið er betur sett á Íslandi. Kaupmáttur fólks yfir sextugu var 7-13% meiri á Íslandi árið 2022 en í Danmörku og Svíþjóð, ef leiðrétt er með hlutfallslegu verðlagi landsframleiðslunnar og gert ráð fyrir að neysluhegðun aldurshópa sé áþekk. Unga fólkið virðist einfaldlega vera í annarri stöðu á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum, í samanburði við eldri kynslóðirnar.
Allt að 25 ára stöðnun í kaupmætti og gríðarlegar sveiflur
Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst með fordæmalausum hraða á árunum fyrir hrun hjá öllum aldurshópum en tímabilið eftir hrun hefur einkennst af baráttu við að endurheimta fyrri kaupmátt. Það hefur gengið verst hjá ungu fólki. Kaupmáttur meðaltals ráðstöfunartekna hjá 30-39 ára er sá sami í dag og hann var fyrir tuttugu árum. Hjá 30-39 ára körlum hefur stöðnunin varað í 25 ár. 30-39 ára karlar höfðu sem sagt nokkurn veginn sama kaupmátt á árinu 1999 og 30-39 ára karlar höfðu á árinu 2024.
Sveiflur í kaupmætti hafa jafnframt verið mun meiri á Íslandi en meðal jafnaldra í Danmörku og Svíþjóð. Kaupmáttur 30-39 ára karla hefur sveiflast 18 sinnum meira hér á öldinni en hjá jafnöldrum í Danmörku og Svíþjóð en kaupmáttur 30-39 ára kvenna sveiflast 3 sinnum meir, út frá mælikvarða tölfræðilegs breytileika. Áhugavert er þá að kaupmáttarþróun karla og kvenna hefur svo til fylgt sama ferli í Danmörku og Svíþjóð en munur milli 30-39 ára karla- og kvenna á Íslandi hefur verið gríðarlegur.
Þarf kynslóðasáttmála í stjórnarsáttmálann?
Sú tölfræði sem hér hefur verið sýnd byggir á meðaltölum yfir langt tímabil. Bakgrunnsbreytur á borð við atvinnustig, menntunarstig o.fl. geta bjagað marktækni samanburðarins. Sagan sem hér er sögð er þó ekki úr takti við þróunina á Vesturlöndum en áskoranir á Íslandi að sumu leyti aðrar. Skýra má þessa þróun að hluta með misvægi í framboði mannauðs á Íslandi og eftirspurn:
- Hagvöxtur birtist fyrst og fremst í láglaunagreinum: Hlutdeild ferðaþjónustu í VLF hefur rúmlega tvöfaldast frá 2010 og …








