USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Þjóð­verj­ar enn og aft­ur á tíma­mót­um

Kosningar í Þýskalandi um helgina gætu haft afdrifaríkar afleiðingar í Evrópu og þróun heimsmála þar sem bæði Rússland og Bandaríkin hafa haft bein innanríkisafskipti af þeim.

Image from iOS
Mynd: Wiki

Í nóvember 2016 fór Obama Bandaríkjaforseti í heimsókn til Berlínar og bað Angelu Merkel um að fara aftur í framboð. Hún hafði ekki ætlað að gefa kost á sér í kosningunum árið á eftir en með Trump á leið í forsetastól, Bretland á kafi í sínum Brexit málum og vinsældir Hollande Frakklandsforseta í sögulegu lágmarki var nauðsynlegt að einhver fullorðinn yrði eftir í herberginu, að sagt var. Merkel tók þessari beiðni vel og var endurkjörin sem kanslari . Þegar hún loks lét af störfum árið 2021 virtist allt vera að falla í ljúfa löð, Biden orðinn Bandaríkjaforseti, farsóttin að taka enda og Evrópusinninn Macron orðinn Frakklandsforseti.

En hlutirnir snerust brátt til verri vegar og Merkel hafði ekki skilað af sér jafn góðu búi og virtist vera. Eftir kjarnorkuóhapp í Fukushima í Japan hafði hún sett í gang metnaðarfulla orkustefnu sem nefndist Energiewende; Þýskaland átti að hætta að nota allt í senn kjarnorku, kol, olíu og gas. Á meðan beðið var eftir að umhverfisvænni orkugjafar yrðu fundnir upp átti að reiða sig á Rússland að mestu og ný gasleiðsla um Eystrasaltið, Nordstream 2, byggð. Þetta átti að tryggja bæði ódýra orkugjafa og um leið frið við Rússland sem þá þegar hafði lagt undir sig Krímskaga og stutt aðskilnaðarsinna í stríði þeirra í Donbas. Um helmingur gass, um þriðjungur olíu og helmingur kola sem Þjóðverjar nota komu frá Rússum.

Ef til vill hefur þessi áætlun um orkuskipti virst skynsamleg fyrir Merkel sem er doktor í efnafræði, en veröldin er ekki alltaf skynsöm. Brátt var friðurinn úti og frá 2022 var ekki lengur hægt að reiða sig á olíu og gas frá Rússlandi. Þýskalandi hefur að mestu tekist að bæta sér upp missinn með því að fá gas frá Noregi og Hollandi, sem og að enduropna innlendar kolanámur. Þetta hefur reynst dýrt og um leið óumhverfisvænt. Ekki hefur þó komið til tals að enduropna kjarnorkuverin, þrátt fyrir að hlutir í kjarnorkuver séu með helstu útflutningsafurðum landsins.

Erfið tíð Olaf Scholz

Árið 2021 varð formaður Sósíaldemokrata (SPD) Olaf Scholz, kanslari í ríkisstjórn ásamt Græningjum og Frjálslyndum (FDP). Þessir flokkar höfðu aldrei setið saman í stjórn áður, enda um margt ólíkir. Græningjar eru hlynntir aukningu ríkisútgjalda til að byggja upp innviði en FDP vilja fyrir alla muni minnka útgjöld og að ríkissjóður komi út á sléttu.

Þjóðverjar höfðu safnað saman 60 milljarða evra sjóði til að takast á við farsóttina en þar sem hún var gengin yfir átti nú að nýta féð í samfélagslega uppbyggingu. Allir áttu þannig að geta fengið sitt, hægt væri að ráðast í endurnýjun orkugjafa án þess að hækka skatta eða taka lán. Ofan á önnur útgjöld bættist svo stuðningur við Úkraínu, sem og mikil uppbygging hersins í kjölfar innrásar Rússa.

Það varð því mikið áfall fyrir stjórnina þegar hæstiréttur dæmdi í lok árs 2023 að ekki mætti nýta opinbera sjóði í annað en til var ætlast í upphafi. Við bættist að ríkisstjórnin má ekki taka lán sem nemur meira en 0,35% af þjóðarframleiðslu, hin svokallaða skuldabremsa sem Merkel gerði að lögum árið 2009. Var Scholz hálf uppgefinn að sjá í áramótaávarpi sínu á gamlársdag 2023, og áður en næsta ár var liðið hafði slitnað upp úr stjórnarsamstarfinu.

Hin sparsama Merkel réðist ekki í innviðabyggingu á sinni stjórnartíð sem þá þegar var orðin nauðsynleg. Þess í stað lagði hún áherslu á að þjóðir Evrópu reyndu að spara sig út úr efnahagskrísunni eftir hrun fjármálamarkaða 2008. Þetta kann að hafa dregið efnahagskrísuna á langinn og bakaði Þjóðverjum óvild í þeim löndum sem verst fóru út úr krísunni og þurftu að skera niður í velferðarkerfum og innviðum. Í Þýskalandi sjálfu er innviðaskuldin orðin þannig að lestarnar eru hættar að ganga á réttum tíma, sem þykir mikill ljóður hjá stundvísri þjóð.

Hægri öfgamenn sækja í sig veðrið

Flokkurinn Alternativ für Deutschland (AfD), stofnaður árið 2013, var andvígur Evrópusambandinu, fjárstuðningi til landa í Suður-Evrópu og vildi útgöngu úr evrunni. Flokkurinn náði í fyrstu ekki manni á þing en varð æ fjandsamlegri útlendingum og kenndur við hægri öfgastefnu. Þegar Angela Merkel ákvað að opna landamærin fyrir um milljón flóttamanna frá Sýrlandi árið 2015 fór AfD að vaxa fiskur um hrygg í andstöðu sinni, sérstaklega í austurhlutanum. Ljóst má vera að ákvörðun Merkel er ein sú mannúðlegasta sem þjóðarleiðtogi hefur tekið í seinni tíð, og sagðist hún hafa þurft að horfa upp á of margar myndir af drukknandi börnum í Miðjarðarhafi.

Sumir iðnjöfrar töluðu jafnvel um nýtt „wirtschaftswunder“ að mannaflinn sem fólst í …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina