
Sekt sem Samskipum var gert að greiða vegna samráðs við Eimskip fyrir rúmum áratug hefur að vonum vakið talsverða athygli enda upphæðin há, sú hæsta í slíku máli til þessa, og lýsingin á brotunum sláandi. Forsvarsmenn ýmissa helstu viðskiptavina skipafélaganna hafa skiljanlega lýst mikilli gremju vegna samráðsins og boðað kröfur um skaðabætur. Það mun væntanlega enda með málaferlum sem munu taka einhver ár. Stjórnendur Samskipa hafa sjálfir lítið sagt um málið opinberlega en lögmaður félagsins segir þetta allt saman misskilning sem verði hrakinn fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála og dómstólum ef nefndin sjái ekki ljósið. Það á auðvitað eftir að koma í ljós hvernig það gengur. Jafnframt liggur fyrir að einn angi málsins er enn til umfjöllunar hjá héraðssaksóknara.
Það er því langt í endinn á þessu máli sem þó hefur þegar tekið langan tíma. Engu að síður er hægt að reyna að teikna upp hvar skaðinn af samráði sem þessu lendir að því gefnu að þetta sé ekki allt einn allsherjar misskilningur.
Tjón í langri keðju viðskipta
Málið snýst í grunninn um aðgerðir til að hækka það verð sem viðskiptavinir greiða og eðlilegt að horfa fyrst til þess. Viðskiptavinir í sjóflutningum eru að uppistöðu til eðli máls samkvæmt inn- og útflytjendur. Þeir eru fjölmargir en misstórir og þeir stærstu hafa væntanlega orðið fyrir mestri hækkun í krónum talið. Það er þó ekki sjálfgefið að tjónið hafi endað þar því a.m.k. hluti þess hefur komið fram í hærra verði til viðskiptavina inn- og útflytjendanna. Raunar má telja líklegt að reikningurinn fyrir hærri innflutningskostnað hafi að verulegu leyti endað hjá þeim sem kaupa innfluttar vörur, stundum auðvitað eftir langa keðju viðskipta. Það er ekki auðvelt að skipta því tjóni niður á tiltekna einstaklinga eða fyrirtæki, hvað þá að sanna það fyrir dómi. Hver veit t.d. hve mikið hann hefur keypt af vörum frá Ölgerðinni og Innnesi, svo tvö fyrirtæki sem hafa verið í umræðunni séu nefnd, á þeim árum sem eru undir? Neytendur kaupa auðvitað ekki vörur beint af þessum fyrirtækjum eða öðrum sambærilegum heldur skipta við verslanir Festar, Haga og marga smærri aðila sem kaupa vörurnar af viðskiptavinum skipafélaganna eða skipta beint við þau.
Í kjölfar olíusamráðsmálsins á sínum tíma gekk nánast ekkert fyrir einstaklinga að sækja bætur og höfðu þeir þó verið beinir viðskiptavinir fyrirtækjanna sem stóðu í samráðinu. Einn einstaklingur vann þó prófmál og í kjölfarið sömdu olíufélögin um bætur til handa fámenns hóps sem Neytendasamtökin studdu í málaleitan sinni. Upphæðirnar voru þó lágar og í engu samræmi við tjón alls almennings. Það vekur ekki bjartsýni um að neytendur geti fengið ríkulegar bætur nú. Hér skiptir m.a. máli að íslensk löggjöf um hópmálsóknir er gölluð og hefur nánast alveg komið í veg fyrir að því tæki sé beitt á eðlilegan hátt til að stór hópur einstaklinga sem hver um sig hefur e.t.v. orðið fyrir litlu tjóni geti sótt bætur í hendur þeirra sem ollu tjóninu. Hafa m.a. Neytendasamtökin ítrekað bent á nauðsynlegar úrbætur á löggjöfinni en talað fyrir daufum eyrum. Ákvæði um hópmálsókn var bætt inn í einkamálalögin í kjölfar olíusamráðsins en því miður er útfærslan ekki nógu góð.
Skertur fælingarmáttur
ESB hefur gefið út tilskipun þar sem fjallað er um skaðabótamál vegna brota á samkeppnislögum. M.a. er með henni reynt að tryggja fullar bætur til þeirra sem verða fyrir skaða vegna slíkra brota og að þær séu ekki óhóflega torsóttar. Þessi tilskipun hefur ekki verið formlega innleidd á Íslandi en það virðist þó löngu tímabært, m.a. vegna þess hve það grefur undan fælingarmætti íslensku samkeppnislaganna að mjög erfitt er að fá bætur vegna brota á þeim.
Ekki er alltaf víst að viðskiptavinir skipafélaganna hafi getað velt hærri kostnaði við innflutning yfir á aðra. Það fer auðvitað eftir aðstæðum á viðkomandi mörkuðum. Líklega hefur t.d. verið illmögulegt að velta hærri kostnaði við dagblaðapappír yfir á lesendur dagblaða. Blaðaútgáfa er í nauðvörn. Eina dagblaðið sem nú er eftir er rekið með miklu tapi sem velviljað fólk greiðir ár eftir ár af einskærri góðmennsku. Hitt dagblaðið sem kom …








