USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Tregðu­vægi og kerf­is­styrk­ur á fjár­mála­mörk­uð­um – fyrri hluti

Kerfishruni raforkukerfa og gjaldmiðlastyrk er hér spilað saman á tregavæginn máta

Þann 28. apríl sl. hrundi raforkukerfið á Íberíuskaganum og bæði Spánn og Portúgal urðu rafmagnslaus klukkustundum saman. Þótt ekki liggi fyrir hver skýring þessa var þá grunar marga sem sérfróðir eru um þessi mál að miklu máli hafi skipt hve stór hluti kerfisins keyrði á sólar- eða vindorku, eða um 70%. Sól og vindur eru vitaskuld afar góðir og umhverfisvænir orkugjafar en hafa þann ókost að framleiðslan er sveiflukennd og gerir lítið til að halda tíðni og spennu kerfisins stöðugri, ólíkt orkuverum sem knúin eru t.d. með kjarnorku, gasi eða kolum. Rafmagnsverkfræðingar tala um tregðuvægi í þessu samhengi en það gefur kerfisstyrk.

Það kom líka á daginn að hrunið á Íberíuskaganum stöðvaðist við Pýreneafjöll. Franska raforkukerfið með sín risastóru kjarnorkuver haggaðist ekki. Níðþungir hverflarnir í þeim snerust áfram eins og ekkert hefði í skorist og skiluðu því afli sem ætlast var til á 50 riðum.

Hér er hins vegar ekki ætlunin að ræða um rafmagn heldur peninga! Hryggjarstykkið í alþjóða fjármálakerfinu og tregðuvægisgjafi eru markaðirnir fyrir Bandaríkjadal og bandarísk ríkisskuldabréf. Mikill meiri hluti allra gjaldeyrisviðskipta í heiminum fela í sér að einhver kaupir dali og annar selur, jafnvel þótt hvorugur ætli að kaupa vörur eða þjónustu fyrir dali. Þetta er gert til hægðarauka. Svíi sem kaupir vörur frá Indónesíu þarf ekki að leita að einhverjum sem vill selja honum rúpía fyrir sænskar krónur. Hann kaupir bara dali fyrir krónurnar og sendir seljandanum sem kaupir rúpíur fyrir dalina. Það er sæmilega djúpur markaður fyrir kaup og sölu á sænskum krónum fyrir dali og líka fyrir viðskipti með rúpíur og dali en markaður fyrir bein skipti á sænskum krónum og rúpíum yrði hins vegar seint djúpur og skilvirkur.

Tregðuvægi fjármagns og rafmagns

„Tregðuvægið“ á bandaríska ríkisskuldabréfamarkaðinum er meira en á nokkrum öðrum sambærilegum markaði. Það er hægt að kaupa og selja slík bréf fyrir tugi milljarða dala (eða evra eða punda o.s.frv.) án þess að ávöxtunarkrafan og þar með verðið haggist. Markaðsaðilar eru fjölmargir og ávallt eru einhverjir reiðubúnir að kaupa eða selja fyrir háar upphæðir.

Hér skiptir líka máli að Sámur frændi er stórskuldugur. Skuldabréfaflokkarnir eru því risastórir. Ávöxtunarkrafa þeirra er notuð sem viðmið í alls konar útreikningum og samningum og er í raun grunnur að verðlagningu annarra skuldabréfa og jafnvel hlutabréfa. Samtals eru til markaðsskuldabréf gefin út af Bandaríkjastjórn að verðmæti um 28.600 milljarðar dala. Þess má geta að af því eru um 2.000 milljarðar verðtryggð spariskírteini. Verðtryggingin er ekki séríslenskt fyrirbæri!

Traustið á bandarískum skuldabréfum hefur ekki eingöngu byggt á trú á fjárhag bandaríska ríkisins enda er hann nú satt best að segja ekki beysinn eins og uppsafnaðar skuldir eftir langvarandi hallarekstur endurspegla. Traustið hefur byggst á öðrum þáttum, sérstaklega trú á getu og vilja Bandaríkjastjórnar til að standa í skilum. Stjórnin er þar með seðlabankann að bakhjarli ef í harðbakka slær og hann verður aldrei uppiskroppa með dollara. Traustið á skuldabréfunum hefur þannig endurspeglað traust á bandarísku stjórnmála- og réttarkerfi.

Yfirburðarstaða hin sterkasta

Þessi staða hefur skilað Bandaríkjamönnum miklum efnahagslegum ávinningi. Þeir hafa getað flutt inn vörur og þjónustu frá öðrum löndum og út á móti verðbréf á hagstæðum kjörum. Raunvextir á algengustu skuldabréfum Bandaríkjastjórnar hafa verið að jafnaði um 1,2% á þessari öld. Mikil eftirspurn eftir ríkisskuldabréfum hjálpar líka bandarískum fyrirtækjum að selja skuldabréf og hlutabréf til fjárfesta á hagstæðu verði. Það hefur gert þeim kleift að fjárfesta og vaxa langt umfram það sem innlendur sparnaður hefði gert mögulegt, enda sogar hallarekstur ríkisins stóran hluta hans til sín. Fjárfestingarnar hafa svo skilað hagvexti í Bandaríkjunum.

Bandaríkin hafa líka getað nýtt það kverkatak sem þau hafa á alþjóða fjármálakerfinu til að ná fram markmiðum í öryggis- og varnarmálum. Þetta gera þau með því að setja tiltekna aðila eða jafnvel heil ríki í viðskiptabann. Vera á …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Um virði hagtalna

2
Umhverfi

Íslenskir jöklar á hverfanda hveli

3
Aðrir sálmar

Þrjár gráður

4
Efnahagsmál

Hvað er sjálfbær launaþróun?

5
Aðrir sálmar

Óheppileg orð

6
Efnahagsmál

Pólitískar afleiðingar efnahagslegrar óvissu


Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins
Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum