
Það verður víst ekki undan því skotist að Íslendingar eru þrasgjörn þjóð. Á liðnum áratugum og öldum hafa þeir fundið hin ýmsu mál sem sundra: Uppkastið, loftskeytasamband, lýðveldisstofnun, NATO aðild, varnarlið, Evrópusambandsaðild, Icesave og þannig mætti lengi telja. Um þessar mundir virðist ríkisstjórnin riða til falls vegna deilna um hvalveiðar. En oft eru til einfaldar lausnir á því sem virðist við fyrstu sýn vera óleysanlegt vandamál.
Hagfræðin á bak við þau deilumál sem hér verður fjallað um á sér langa sögu. Árið 1920 gaf einn helsti hagfræðingur Cambridge háskóla, Arthur Pigou, út bókina Wealth and Welfare þar sem fjallað var um svokölluð „ytri áhrif“ (e. externalities). Klassíska dæmið um ytri áhrif er verksmiðja sem mengar. Eigendur verksmiðjunnar hámarka hagnað af rekstri hennar með því að finna góða markaði fyrir afurðir og halda kostnaði í skefjum en taka ekki tillit til þeirrar fórnar sem fólk í nágrenni verksmiðjunnar færir með því að anda að sér menguðu lofti, missa kannski heilsuna og lifa skemur.
Hvalir
Við Reykjavíkurhöfn, á bryggjunni fyrir neðan Hamborgarabúllu Tómasar, eru á vinstri hönd hvalveiðiskip og á hægri hönd hvaðlaskoðunarbátar. Fyrirtækið sem á þau fyrrnefndu notar skipin til þess að drepa hvali sem síðan eru væntanlega seldir á markaði til að skapa meiri tekjur en sem nemur kostnaði. En þessir eigendur taka ekki tilliti til neikvæðra ytri áhrifa á þá ferðamenn sem fara í hvalaskoðunarferðir, finnast hvalir vera dýr sem eigi að vernda. Og um allan heim er fólk sem hefur sterkar skoðanir á því að það eigi ekki að veiða hvali. Hvalveiðar skemma þá orðspor Íslands meðal þessa fólks og skemma einnig fyrir öðrum útflutningsfyrirtækjum sem reyna að nota sér gott orðspor Íslands á erlendum mörkuðum. Það gæti hæglega gerst að hvalaskoðunarbátur mætti hvalveiðiskipi með dauðan hval í eftirdragi. Ímyndið ykkur viðbrögð þess fólks sem hafði greitt íslensku fyrirtæki fyrir að fá að sjá lifandi hvali og endar uppi með að sjá nýdrepinn hval! Hvers konar þjóð er þetta sem bæði hagnast á því að sýna og drepa hvali? Og hér liggur fleygurinn í gegnum bæði hvali og ríkisstjórnina. Tímabundið bann við hvalveiðum hefur í sumar kallað á neyðarfundi í einum ríkisstjórnarflokknum og ákall um stjórnarskipti.
Ein augljós lausn á þessum hvalavanda er að skilgreina eignarrétt á hvölum. Ríkið á þá hvalina í byrjun og selur á markaði og svo geta einkaaðilar átt viðskipti sín á milli með réttinn til að drepa hvali eða sýna þá. Það er þá hægt að kaupa sér hval til að drepa eða hval til að sýna. Sá sem vill greiða hærra verð er sá sem getur nýtt hvalinn á hagkvæmari hátt. Og það er ekkert því til fyrirstöðu að stofnaður sé bankareikningur sem hvalavinir um allan heim geta lagt inn á pening til þess að bjarga lífi hvals. Með þessu móti væru ytri áhrif Pigou ekki lengur fyrir hendi, eignarrétturinn og markaðurinn væri búinn að leysa málið.
Umferðartafir
En það eru fleiri þrætumál stjórnmálanna sem hægt væri að leysa með svipuðum hætti og flest skipta þau okkur hin meira máli en hvalir. Á hverjum morgni og svo aftur síðdegis myndast umferðarteppur á götum sem liggja inn í höfuðborgina. Þetta er skólabókardæmi um ytri áhrif. Þegar við ákveðum að keyra Hringbraut eða Sæbraut í vesturátt um áttaleytið á morgnana eða þá í austurátt um fimmleytið þá tefjum við aðra sem ætla sömu leið, umferðarteppan verður meiri. Við erum þá að leggja kostnað á aðra. Lausn á þessum vanda felst í því að eigandi bifreiðar sem keyrir á þessum umferðaræðum á háannatíma greiði gjald fyrir sem þá lætur hann taka tillit til þessara ytri …








