Það er vel þekkt að aukning í vergri þjóðarframleiðslu eða hagvöxtur er ófullkominn mælikvarði á velsæld eða sjálfbærni[1]. Mælingar á hinum fjölmörgu víddum velsældar hafa verið gerðar á Íslandi sem og erlendis í langan tíma. Í kjölfar fjármálahrunsins 2008, voru slíkar mælingar víða kerfisbundið settar í samhengi við velsæld m.a. til að stuðla að víðara sjónarhorni við hagstjórn.
Byrjað var kerfisbundið að mæla stöðu velsældar á Íslandi árið 2020 og eru þær mælingar teknar saman af Hagstofunni og byggja á opinberum samanburðarhæfum tölum. Staða velsældar er metin með vísum sem valdir voru af þverpólitískri nefnd sem forsætisráðherra skipaði 2018. Nefndin skilaði af sér skýrslu 2019 og voru vísarnir kynntir á alþjóðlegum fundi sem forsætisráðherra hélt í Háskóla Íslands. Upphaflega voru vísarnir 39 en eru nú 40. Á vefsíðu Hagstofunnar má fylgjast með þróun vísanna frá ári til árs. Vísarnir skiptast eftir hefðbundum víddum og þemum sjálfbærni og velsældar. Sumir vísanna eru þeir sömu og mældir hafa verið lengi, t.d. er unnt að sjá kosningaþátttöku eftir kyni frá því upp úr 1960. Tafla 1 sýnir mælikvarðana 40 fyrir Ísland.
OECD
OECD hóf framsetningu á Better Life Index (BLI) á 50 ára afmæli stofnunarinnar árið 2011. Síðan voru gefnar út BLI skýrslur með um tveggja ára millibili og kom sú fyrsta út 2013 og sú síðasta 2020. Árið 2011 var fyrsta „How´s life?“ skýrsla OECD birt og byggir hún á ramma og gagnagrunni OECD fyrir velsæld (e: OECD wellbeing framework), líkt og BLI þar sem tölulegum gögnum fyrir um 80 mælikvarða er safnað fyrir aðlidarríkin. Í „How's life?“ skýrslunni eru mælingar á velsæld samræmdar og eru þær settar fram á myndrænan máta fyrir 38 aðildarríki OCED.
„How´s life?“ skýrsla OECD tekur saman tölulegar upplýsingar sem lýsir þeim grundvallarþáttum sem móta velsæld fólks í aðildarríkjunum. Hún byggir á margvíðum greiningarramma sem nær yfir 11 þemu velsældar sem skilgreind eru í ramma OECD fyrir velsæld: Tekjur og eignir, vinna og gæði starfa, húsnæði, heilsu, þekkingu og færni, umhverfisgæðum, jafnvægi milli vinnu og einkalífs, félagslegum tengslum, borgaralegri þátttöku, öryggi og huglægu mati á velsæld. Tuttugu og fjórir vísar eru undir þemunum ellefu. Einnig er lögð áhersla á að fjórar undirstöður velsældar til framtíðar séu ekki skertar en þær eru; náttúru auður, mannlegur-, efnahagslegur- og félagslegur auður. Skýrslan leggur fram þrjá mælikvarða fyrir breytingar á hverri undirstöðu. Í hverri útgáfu skýrslu OECD er kannað hvernig staða velsældar fólks breytist með tímanum, hvernig staða velsældar er breytileg milli mismunandi hópa í samfélaginu og hvernig staða undirstaða velsældar hefur breyst. Jafnframt veita ýmsir þemakaflar í skýrslunni ítarlega innsýn í tiltekna þætti velsældar með áherslu á það sem betur má fara. Vísarnir sem settir eru fram á myndrænan máta eru bæði hlutlægir og huglægir mælikvarðar velsældar.
Niðurstaða „How´s life?“ fyrir Ísland 2024 er sýnd í mynd 1.
Mynd 1 sýnir hlutfallslega styrkleika og veikleika Íslands hvað varðar hina ýmsu mælikvarða velsældar miðað við önnur OECD-lönd, og er hún dæmi um framsetningu gagna fyrir Ísland í skýrslunni. Lengri súlur benda til betri útkomu (þ.e. meiri velsældar) í samanburði við önnur OECD lönd, en styttri súlur benda til verri útkomu (minni velsældar). Ef um ójöfnuð er að ræða (bil milli efstu og neðstu hópa, munur milli hópa, fólk undir skortsmörkum) eru súlur skyggðar með röndum. Nafn mælikvarða í dökkrauðu og hvítar súlur vísa til vöntun gagna fyrir landið. Allir mælikvarðarnir og undirliggjandi gögn eru til staðar í How’s Life gagnagrunninum.
Það er áhugavert að skoða hvaða gögn vantar fyrir Ísland eins og sýnt er með hvítum súlum og rauðum nöfnum í mynd 1. Þessir vísar eru – einn undir þemanu jafnvægi milli vinnu og einkalífs: frítími (e. time off), tveir vísar undir þemanu félagsleg tengsl (e. social connection): kynjamunur í unnum vinnustundum (e. gender gap in hours worked) og félagsleg samskipti (e. social interaction). Einnig vantar þrjá vísa undir þemanu tekjur og auður: Tekjur heimila (e. household income), heildar auður heimila (e. household net wealth) og húsnæði á viðráðanlegu verði (e. housing affordability). Það er mikilvægt að íslensk stjórnvöld safni og skili gögnum um öll þemu velsældar til að fylgjast með stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna.
Félagslegi framfaravísirinn (Social Progress Index)
Félagslegi framfaravísirinn (SPI) sýnir stöðu velsældar í 171 löndum, þ.m.t. Íslandi. Undirliggjandi hugmyndafræði byggir á því að: „Félagslegar framfarir eru byggðar á getu samfélagsins til að uppfylla grunnþarfir borgaranna, að tryggja að öll geti viðhaldið eða bætt lífsgæði sín og að skapa skilyrði fyrir öll til að dafna“. Félagslegi framfaravísirinn byggir á þremur víddum og fjórum þemum undir hverri vídd; grunnþarfir (þemu s.s. matvæli og heilbrigðisþjónusta, húsnæði), grunnur velsældar (þemu s.s. grunnmenntun, heilsa og umhverfisgæði) og tækifæri (þemu s.s. frelsi og inngilding). Staða hvers lands í hverju þema og hverri vídd er metin með alls 57 mælikvörðum og er staðan borin saman við samanburðarhæf lönd. Tafla sem sýnir stöðu Íslands samkvæmt nýjustu útgáfu SPI frá árinu 2026 er aðgengileg á vefnum. Þar sem athygli vekur að Ísland skarar framúr á 8 af 57 mælikvörðum en stendur sig ekki sem skildi á 8 af 57 mælikvörðum. Þrátt fyrir þetta er Ísland í 6. sæti á heimsvísu yfir stöðu velsældar skv. SPI.
Þróunarvísitala Sameinuðu þjóðanna
Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) hafa síðan 1990 birt þróunarvísitölu (e. Human Development Index[2]) fyrir nær öll ríki heims. Þróunarvísitölunni var ætlað að gefa dýpri innsýn í þróun þjóða en mögulegt var með mælingum og samanburði á þjóðarframleiðslu á mann og er hún samsett úr þremur víddum og fjórum mælikvörðum. Víddirnar og mælikvarðarnir eru: Langt og heilbrigt líf (mælt með lífslíkum við fæðingu), þekkingu (mælt með væntri lengd skólagöngu barns og meðallengd skólagöngu fullorðinna) og mannsæmandi lífskjör (mælt með vergum þjóðartekjum á mann). Úr þessum þremur víddum og fjórum vísum er þróunarvísitalan búin til, en henni er ætlað að bera saman þróunarstig landa heimsins. Samkvæmt nýjustu útgáfu þróunarvísitölunnar er Ísland númer eitt af 193 ríkjum (gefið út 2025 með tölum frá 2023).
Grænir þjóðhagsvísar Sameinuðu þjóðanna
Sameinuðu þjóðirnar hafa síðan Brundtland skýrslan svokallaða kom út árið 1987 unnið að þróun grænna þjóðhagsvísa. Sú vinna leiddi til árið 2012 samræmdar og viðurkenndrar útgáfu grænna þjóðhagsvísa (e. System of Environmental Economic Accounting) og eru þeir í dag metnir a.m.k. að hluta fyrir yfir 90 lönd. Grænum þjóðhagsvísum er ætlað að gefa innsýn í samband hagþróunar og nýtingar umhverfis og auðlinda á landsvísu og mæla meðal annars stærð og gæði vistkerfa, notkun og virði auðlinda og vistkerfisþjónustu og virði náttúruauðs. Ísland hefur tekið þátt í þessarri vinnu og hefur innleitt hluta vísanna, en Hagstofan er umsjónaraðili á Íslandi[3].
Umfram hagvöxt (e. beyond growth; beyond GDP)
Undanfarinn áratug hefur umræðan um að hagvöxtur skuli ekki vera meginmarkmið þjóða farið vaxandi, sérstaklega í Evrópusambandinu[4] og hjá Sameinuðu þjóðunum.[5] Í ljósi þessa og í ljósi þeirrar grósku í þróun árangursmælikvarða sem hægt er að leggja til grundvallar þegar velsæld þjóða er metin skipaði aðalritari Sameinuðu þjóðanna árið 2025 háttsettan „high level“ óháðan sérfræðingahóp til leiðbeiningar um hugmyndafræði og mælkvarða umfram hagvöxt „beyond GDP“. Sérfræðingahópurinn á meðal annars að þróa mælaborð árangursmælikvarða sem þjóðir heims geta nýtt sér að auki við hefðbundnar hagrænar mælistærðir. Niðurstöðum hópsins er að vænta á næstu vikum.
Niðurstaða
Markmið hagstjórnar er aukin velsæld og er hagvöxtur einn þeirra þátta sem skipta máli. Það er mjög jákvætt að bæði íslensk stjórnvöld, sem og OECD og Sameinuðu þjóðirnar leggi áherslu á velsæld og viðurkenni að áhersla á aukna þjóðarframleiðslu, og þar með hagvöxt, sé ekki fullnægjandi til að tryggja velsæld eins og vel er þekkt[6]. Huga þarf að fjölmörgum öðrum þemum velsældar á sama tíma. Mikilvægt er að íslensk stjórnvöld haldi áfram þróun velsældarvísa og taki af fullum krafti þátt í starfi bæði OECD og SÞ á þessu sviði, svo sem með því að tryggja aðgengi að gögnum frá Íslandi.
Tilvísanir
-
Stiglitz, J., J. Fitoussi and M. Durand (2018), Beyond GDP: Measuring What Counts for Economic and Social Performance, OECD Publishing, Paris, https://doi.org/10.1787/9789264307292-en.
↩ -
https://hdr.undp.org/data-center/human-development-index#/indicies/HDI
↩ -
https://px.hagstofa.is/pxen/pxweb/en/Umhverfi/
↩ - ↩
-
https://www.unep.org/news-and-stories/story/beyond-gdp-making-nature-count-shift-sustainability
↩ -
Stiglitz, J., J. Fitoussi and M. Durand (2018), Beyond GDP: Measuring What Counts for Economic and Social Performance, OECD Publishing, Paris, https://doi.org/10.1787/9789264307292-en.
↩







