USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Vörn gegn fjöl­þáttaógn­um – Fjár­fest­ing í trausti

Horfa þarf öðrum augum á ógnir og það hvernig tryggja má öryggi

Loftmynd af Íslandi
Mynd: ESA

Ísland stendur á mikilvægum tímamótum í öryggis- og varnarmálum. Alþjóðlegt umhverfi hefur tekið djúpstæðum breytingum á síðustu árum og þær ógnir sem ríki standa frammi fyrir eru ekki lengur bundnar hefðbundnum hernaðarátökum eða vörn landamæra. Þær birtast í margþættri og oft illgreinanlegri mynd – með upplýsingaóreiðu, netárásum, efnahagslegum þrýstingi og kerfisbundnum tilraunum til að grafa undan samfélaginu, innviðum og félagslegri samheldni.[4f1a62] Við þessar aðstæður verða samfélagslegt traust og seigla að lykilþáttum þjóðaröryggis – ekki aðeins til að tryggja framgang lýðræðis heldur einnig til að skapa stöðugt og fyrirsjáanlegt efnahagsumhverfi.

Nýjar vaxandi ógnir – grafið undan trausti

Undanfarin misseri hafa fjölþáttaógnir orðið meira áberandi í umræðunni um leið og netárásum gegn Íslandi hefur fjölgað verulega. Í maí 2023, samhliða leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík, urðu Alþingi og fleiri lykilstofnanir fyrir skipulögðum netárásum frá hópum með tengsl við rússnesk stjórnvöld.[de53aa] Þótt tjónið hafi verið takmarkað sýndi þetta nýjan veruleika: að netárásir eru ekki lengur aðeins tæknileg ógn heldur pólitískt verkfæri – notað til að trufla starfsemi mikilvægra innviða, skapa óöryggi og varpa ljósi á veikleika sem síðar má nýta með skipulegri hætti.

Slíkar árásir, netárásir, eru þó aðeins hin sýnilega birtingarmynd fjölþáttaógna. Minna áberandi og mögulega hættulegri eru aðgerðir sem beinast að upplýsingaumhverfinu sjálfu og þar með samfélaginu í heild. Rússneskir aðilar hafa t.a.m. kerfisbundið dælt áróðri inn í stór málalíkön (LLM) sem móta svör gervigreindarkerfa á mörgum tungumálum – þar á meðal íslensku. Með þeim hætti getur röng eða hlutdræg frásögn smám saman orðið hluti af almennri umræðu, gjarnan án þess að fólk geri sér grein fyrir því. Það er kjarninn í fjölþáttaógnum að við gerum okkur ekki grein fyrir afleiðingunum fyrr en seint og um síðir, jafnvel þegar það er orðið of seint að bregðast við.

Slíkar aðferðir þjóna fyrst og fremst því markmiði að styrkja málstað Rússlands – með því að sá efasemdum um áreiðanleika vestrænna stjórnvalda, grafa undan stuðningi við Úkraínu og skapa pólitískt svigrúm fyrir eigin stefnu bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Þær grafa ekki aðeins undan réttri upplýsingagjöf heldur geta þær einnig rýrt trúverðugleika fjölmiðla og stofnana, aukið pólitíska skautun og rýrt traust til lýðræðislegra ferla – og dregið úr getu til að bregðast sameiginlega við djúpstæðum öryggisáskorunum. Þótt þessar tilraunir hafi hingað til ekki náð mikilli fótfestu hér á landi benda kannanir til þess að áhrif þeirra gætu þó verið einhver.[ef4b68]

Efnahagsleg áhrif minnkandi trausts

En það hangir fleira á spýtunni. Félagslegt traust er lykilforsenda þess að hagkerfi virki sem skyldi. Það styður við fjárfestingar, lækkar viðskiptakostnað, eykur skilvirkni stofnana og skapar hvata til nýsköpunar. Þegar traust í samfélaginu þverr eru afleiðingarnar því ekki aðeins pólitískar eða siðferðilegar – þær eru líka efnahagslegar. Rannsóknir sýna að umtalsverð lækkun á félagslegu trausti getur leitt til minni hagvaxtar – því þegar traust minnkar hægir á ákvörðunum, fyrirtæki verða varfærnari í fjárfestingum, nýsköpun dregst saman og meira af opinberu fé þarf að verja í eftirlit, löggæslu og neyðaraðgerðir.

Hins vegar benda rannsóknir til þess að aukning á félagslegu trausti um tíu prósentustig[8aa8ac] geti aukið hagvöxt um hálft prósentustig. Slíkt birtist í meiri fjárfestingum, nánari samvinnu á vinnumarkaði, lægri viðskiptakostnaði og skilvirkari stofnunum. Þessi áhrif eru sérstaklega mikilvæg fyrir lítil, opin hagkerfi eins og Ísland, þar sem fjárfestingar, nýsköpun og alþjóðleg samvinna eru hornsteinar efnahagslegra framfara og öryggis. Þetta birtist einnig í opinberum fjármálum. Ríki með lítið traust þurfa að verja meiri tíma og fjármunum í eftirlit og neyðarviðbrögð, og viðhafa stífari refsiramma, á meðan ríki þar sem traust mælist mikið geta einbeitt sér að langtímauppbyggingu og nýsköpun.[bd0485] [a97166] [4f0911] [67d0e5]

Öryggi og stöðugleiki: Ný nálgun

Hvernig Ísland á að tryggja öryggi sitt er því ekki jafn einföld spurning og hún var áður en ljóst að það verður ekki bara tryggt með viðveru herflugvéla á Miðnesheiði. Löng hefð er fyrir varnarsamstarfi við Bandaríkin og Norður-Atlantshafsbandalagið (NATO), samstarf sem hefur verið burðarás …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina