Fræg er sú sögn Keynes að hagfræðingar ættu að vera eins og tannlæknar hagkerfisins. Það má skilja sem svo að verkefnið sé að lagfæra það sem veldur þjáningu og skaða. Mögulegt er að Keynes, eða einn af fylgismönnum hans, hafi einnig líkt hagfræðingum við pípulagningamenn.
Eitt sem er sameiginlegt með tannlæknum og pípulagningafólki er að það er ósk almennings að þurfa ekki á þeirra þjónustu að halda. En þegar að í óefnið er komið er gott að geta leitað eftir þeirra þjónustu. Mikilvægasta starf þessara stétta er þó að vinna góða forvinnu, við hreinsun og lagnir þannig að ekki komi til stíflulosunar eða holufyllinga. Þó það dragi í sjálfu sér úr eftirspurn eftir neyðarþjónustunni og væntum hagnaði af rekstri. Hámörkun hagnaðar er ekki alltaf leiðin til aukinnar hagsældar.
Þing var sett í vikunni samhliða því að ríkisstjórnin kynnti áherslur í aðgerðum sínum næstu hundrað daga. Lækkun vaxta hélt líka áfram í vikunni, sem getur bætt hag þeirra sem sem skuldsettir eru en þensluáhrifum hinna skuldlausu verður að bregðast við með öðrum hætti.
Veðurfræðingar geta ekki lagfært veðrið eða afleiðingar óveðra en varað okkur við því. Þeir og aðrir náttúruvísindamenn hafa lengi varað við loftslagshamförum án þess að þau sem stýra efnahagsmálum hafi tekið nægjanlega mark á viðvörunum. Nú er vandinn svo mikill að læknar og sálfræðingar eru farnir að vara við einnig, eins og kemur fram í forsíðugrein vikunnar.
Við losnum ekki undan loftslagsáhrifunum eða mengun með áframhaldandi undanþágubeiðnum. Við losnum heldur ekki undan áhrifunum af nýju stjórnarháttunum í Bandaríkjunum, sem fjallað var um ítarlega í Heimildinni í síðustu viku. Eitt af slagorðum Bandaríkjaforseta er að bora eftir meiri olíu. Hann sækir ekki um undanþágu frá alþjóðasamningum heldur segir sig frá þeim, eins og raunin er orðin með Parísarsáttmálann.








