USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Hér er óvissa um óvissu

- frá óvissu til óvissu ...

Fundur Donald Trump og Pete Hegseth
Fundur allra herforingja Bandaríkjahers í Quantico í Virginíu þann 30. september 2025
Mynd: AFP

Við búum berskjölduð úti í miðju Atlantshafi og veður gerast válindari bæði í eiginlegri merkingu ofan frá samkvæmt veðurfræði og neðan frá í jarðfræðilegum skilningi en einnig í landfræðilegri stjórnmálalegri (e. geo-political) greiningu eins og reglulega er fjallað um hér í vikuritinu. Forsíðugrein vikunnar fer vandlega yfir náttúruvá hérlendis og hví hún sé að aukast. Mikilvægt er að greina hugtök vel á válegum tímum sem nú. Váin (e. hazard), áhættan (e. risk) og óvissan (e. uncertainty) eru samhangandi lykilatriði.

Líkt og allt benti til og nefnt var í sálmum síðustu viku, þá hefur Danmörk lýst því yfir að hafa orðið fyrir árás af hernaðarlegum toga. Í orðum danska forsætisráðherrans Mette Frederiksen í viðtali við Financial Times nú í vikunni var það skýrt í evrópsku samhengi. En á þriðjudaginn voru allir herforingjar Bandaríkjahers kallaðir saman til að hlýða á sögulegar ræður forseta og varnarmála- eða hernaðarmálaráðherra Bandaríkjanna. Sú stigmögnun orðræðu vígvæðingar beggja vegna Atlantshafsins hlýtur að vera helsta umræðuefni fundar þjóðaröryggisráðs okkar sem loks kemur saman í dag.

Indland er eitt þeirra landa sem mikilvægt er að huga vandlega að í heimshagkerfinu. Benda má á áhugaverðar umfjallanir um það í tímaritinu Foreign Policy og hjá stofnuninni Institute for New Economic Thinking. Síðari greinin í blaði vikunnar fjallar um öflugt vaxandi innkomu indverskt vinnuafls á íslenskan vinnumarkað og vandkvæði með opinberan stuðning og upplýsingar þar að lútandi.

Nýútkomin skýrsla Vörðu dregur einnig fram alvarlegt misræmi á vinnumarkaðnum, sérstaklega varðandi aðflutta. Tölur um mælt atvinnuleysi sem Hagstofan birti í vikunni sýna það komið upp í 5,3% og mun hærra hjá körlum þó skráð atvinnuleysi hjá Vinnumálastofnun sé óbreytt í 3,4%. Hvorug talan tekur þó mið af gjaldþroti flugfélagsins Play sem lagði upp laupana í vikunni. Mælingar á óvissu eru nú mikilli óvissu háðar, eins og nýleg greining Alþjóða gjaldeyrissjóðsins dregur vel fram.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina