USD 122,4 -0,1%
EUR 137 0,1%
GBP 164,2 0,1%
DKK 18,3 0,1%
SEK 12,5 0,4%
NOK 13,0 0,1%
CHF 149,5 -0,1%
CAD 86,8 -0,4%
JPY 0,8 0,1%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,4 -0,1%
EUR 137 0,1%
GBP 164,2 0,1%
DKK 18,3 0,1%
SEK 12,5 0,4%
NOK 13,0 0,1%
CHF 149,5 -0,1%
CAD 86,8 -0,4%
JPY 0,8 0,1%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Hver upp­sker af fjár­fest­ingu okk­ar í tón­list?

Áætluð tónleikavelta og áætluð streymisvelta einnar tónleikaferðar er meiri en heildarveltan hérlendis

AIRWAVES_DIGI PART 2-54
Elín Hall á Iceland Airwaves 2024
Mynd: Jackson Ducasse

Flest tónlistarfólk er með einfalt markmið: að geta lifað af sinni tónlist. Það þýðir að reksturinn í kringum útgáfur, tónleikahald, og tónlistarmanninn sjálfan þarf að velta um 20 milljónum króna árlega. Íslenskt tónlistarfólk býr að ýmsum hagsmunasamtökum sem sjá til þess að hér er starfrækt framúrskarandi tónlistarmenntun, sterkt styrktarkerfi til sköpunar á nýrri íslenskri tónlist, og stéttarfélag sem sér til þess að hljóðfæraleikarar fái greitt samkvæmt taxta. Þetta eru forréttindi sem erlend starfssystkini búa ekki endilega við en þegar Chappell nokkur Roan fékk Grammy-verðlaun í síðasta mánuði sem besti nýliðinn benti hún á þær fjárhagshremmingar sem hún varð fyrir á meðan stórfyrirtæki græða á tá og fingri. Saga hennar er áhugaverð því hún er fullkomið dæmi um klisjuna að það tekur tíu ár að verða stjarna á einni nóttu.

Það gæti virst fjarlægt okkar raunveruleika á Íslandi að tala um stór útgáfufélög og samninga þeirra við vinsælasta tónlistarfólk í heimi. Hins vegar fékk Víkingur Ólafsson einnig hinn gullna grammófón við sama tilefni og varð þar með fjórði Íslendingurinn til að færa þessa virtustu viðurkenningu tónlistar heim. Hann formgerir þar með stöðu sína sem ein af okkar skærustu stjörnum ásamt Björk, Of Monsters and Men, Kaleo, Laufeyju, Ólafi Arnalds, Sigur Rós og Ásgeiri. Til að velta 20 milljónum á ári má áætla að þurfi um 500 þúsund streymi á mánuði. Þar sem á Íslandi býr færra fólk er ekki að undra að þau sæki sér öll hlustendur út fyrir landsteinana.

Laufey, Víkingur og fleiri nefnd komu upp í gegnum íslenska tónlistarskólakerfið inn í sterka styrkumhverfið og eru dæmi um hve vel að þeirri umgjörð er staðið. Þeirra velgengni er okkar stolt því við höfum skapað þeim þennan frjóa jarðveg. En hver er útkoman umfram fjöður í hatt okkar ríku menningararfleifðar? Tónlistarverkefni á þessum skala hafa oft marga tekjustrauma eins og streymistekjur, tekjur af tónleikahaldi, styrktargreiðslur frá einkafyrirtækjum, og tekjur fyrir notkun á tónlist í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Með því að skoða opinber gögn um níu stærstu útflutningsverkefni tónlistar árið 2024 um streymi og tónleikahald eingöngu má áætla að samanlögð árleg velta þeirra hafi verið að minnsta kosti 22 milljarðar.

Þessir 22 milljarðar taka ekki til stefgjöld, auglýsingatekjur, styrktarsamninga, eða leyfisgjöld vegna notkunar á tónlist í kvikmyndum. Samkvæmt gögnum sem Mobilitus tók saman hélt íslenskt tónlistarfólk til viðbótar við þennan frækna hóp aðra 808 tónleika erlendis þetta ár og því er heildarvelta íslensks tónlistarfólks erlendis mun hærri. Hagstofan nefnir mikinn vöxt í skapandi greinum enda er nýlega farið að taka framlag menningar til verðmætasköpunar alvarlega, einkum eftir að skýrsla Ágústs Ólafs Ágústssonar var birt árið 2024, sem gerði grein fyrir með afgerandi hætti að framlag menningar til þjóðarbúskaparins er að nálgast sjávarútveg. Í því samhengi var verið að ræða heildarveltu tónlistar á Íslandi sem var 10,7 milljarðar árið 2021 en við sjáum hér að heildarvelta íslenskrar tónlistar er mun meiri en sést í íslenskum hagtölum. Samkvæmt gögnum Mobilitus spilaði KALEO 76 tónleika árið 2024 fyrir að meðaltali rúma 10 þúsund gesti sem hver greiddi $110 fyrir miða. Því má áætla að velta þessa eina tónleikaferðalags hafi verið um 11,5 milljarðar, meira en heildarstærð íslenska tónlistarmarkaðarins.

Þessi gögn sýna að vel tekst að skapa verðmæti úr því hugviti sem við höfum fjárfest svo markvisst í að byggja upp. Allir sem staðið hafa að fyrirtækjarekstri átta …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Uppskeruhátíð hagfræðinga

2
Aðrir sálmar

Þjóðarhagsleg rekstrarhagfræði

3
Vinnumarkaður

Endalok pólska tímabilsins?

4
Aðrir sálmar

Stjórnun og traust

5
Efnahagsmál

Burðug sveitarfélög geta stutt við ábyrga hagstjórn

6
Vinnumarkaður

Ofmetur launavísitalan þróun launa?

Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins
Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum
IMG_2494
Umhverfi 35. tbl.

Ís­lensk­ir jökl­ar á hverf­anda hveli

Loftslagsbreytingar hafa mikil áhrif á íslenska jökla. Vegna hlýnunar jarðar hafa jöklarnir minnkað mikið á síðustu áratugum. Ef ekkert verður gert til að draga úr hlýnuninni gætu margir þeirra horfið í framtíðinni.