USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Kali­forn­í­a, Kína, Kalín­ingrad, Kíev og Karls­ru­he

Stutt hringferð um nokkur mikilvæg svæði í heiminum í dag.

Til að skilja þróun efnahags- og alþjóðamála nú um stundir eru nokkrar leiðir sem nýtast til að ná utan um flókinn veruleika og hinar fjölþættu krísur sem við blasa. Ein leiðin liggur í gegnum fræðibækur ásamt faglegri fjölmiðlaumfjöllun. Dæmi um slíkt er sería í Lestinni í Ríkisútvarpinu um konungssinnana úr Kísildalnum í Kaliforníu sem eru helstu hugmyndafræðingarnir að baki þeim körlum sem stjórna Bandaríkjunum núna. Annað dæmi má finna í nýjasta tölublaði tímaritsins New Yorker þar er sögð ótrúleg saga úkraínsks njósnara sem hefst í Eystrasaltinu.

Önnur leið er í gegnum tölur og greiningu þeirra. Vandaðar hugveitur ná oft að veita dýpri greiningu en fjölmiðlar og hraðari en fræðimenn háskólanna. Dæmi um slíkt er samantekt á umfjöllunum frá Council on Foreign Relations í New York eftir Brad Setser sem er einn skarpasti greinandi kínversks efnahags í heiminum. Enn dýpri úttekt á kínverskum áhrifum á þýskan iðnað eftir hann og meðhöfund má lesa hjá hugveitunni Center for European Reform.

graf

Þriðja leiðin er síðan samþætting tölfræðilegra gagna og texta í myndrænni framsetningu eins og línuritið hér að ofan sýnir. Þannig samþættingu má einnig sjá á landakorti frá Nató með útgjöldum aðildarlandanna í Evrópu til varnarmála. Þar er hin rússneska Kalíningrad við Eystrasaltið einnig merkt inná, fyrir sérstaka áherslu. Kortið birtist með grein um krísuna í Nató í Heimildinni í síðustu viku.

nato-graf

Í þeirri umfjöllun og undanfarnar vikur hefur áherslan legið í togstreytunni yfir Atlantshafið. Þar koma við sögu Evrópuríkin sem hafa mestan efnahagsstyrk, eins og Frakkland, Bretland, Þýskaland og Pólland, sem bera munu mesta kostnaðinn af brotthvarfi Bandaríkjanna. Lesa má nánar um hann í úttekt Bruegel hugveitunnar og efnahagsstofnunarinnar í Kiel um varnir Evrópu.

Innrás Rússlands í Úkraínu bæði fyrir ellefu árum og þremur er ein birtingarmynd krísunnar – en hún er þó fjölþættari. Tvö efnahagsleg atriði skipta þar máli, skuldareglur opinberra fjármála annars vegar Þýskalands sérstaklega og viðskiptahalli eða -afgangur hins vegar, Bandaríkjanna og Kína sérstaklega.

Stjórnlagadómstóll Þýskalands í Karlsruhe hefur áhrif á opinber fjármál vegna skuldabremsunnar svokölluðu sem er stjórnarskrárbundin. Til að breyta henni þarf aukinn meirihluta tveggja þriðju þingmanna. Eftir að dæmt var að ólöglegt væri að nota sjóði sem ónýttir voru frá heimsfaraldri til að bregðast við innviðaskuld og varnarmálaútgjöldum þá þurfti að efna til kosninga. Hvernig til tekst í Þýskalandi á næstu vikum skiptir miklu fyrir framtíð Evrópu.

Fjallað hefur verið um Kína undanfarna mánuði í greinum hér í Vísbendingu. Ofangreint línurit dregur fram hvernig Xi er að leysa heimatilbúinn vanda þar með því að láta Bandaríkin greiða fyrir hann, sem Brad Setser færir nánari rök fyrir í samantektinni og sinni nýjustu færslu einnig.

Í áðurnefndu fræðiriti Jóhanns Páls Árnasonar (2024) Austur, vestur og aftur heim kemur fram um þróunina í Kína og samspil pólitískra og efnahagslegra þátta þar: „Nánar tiltekið er um að ræða sambland kapítalískra þróunarmynstra og lenínískra flokksríkisreglna“ (bls. 46). Félagsfræðin kemur oft að góðum notum til að skilja heiminn. Eitt orð, lýsir stjórnarháttum forseta Bandaríkjanna nú, samkvæmt nýlegri bók tveggja prófessora sem fjallað er um í grein í tímaritinu Atlantic. Þeir draga fram gamalt hugtak frá félagsfræðingnum Max Weber, sem er viss andstæða við eitt frægasta hugtak hans um hið ferlabunda nauðsynlega skrifræði (e. bureaucratic proceduralism) fyrir góða stjórarhætti. Það hugtak er erfitt að þýða sem eitt orð en tilraunin hér er: föðurleifðar- eða einkavaldshyggja (e. patrimonialism) og rök færð fyrir því að það eigi við um stjórnarhætti bæði Pútíns og Trumps.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina