USD 123,2 -0,1%
EUR 143,4 0,1%
GBP 165,3 0,1%
DKK 19,2 0,1%
SEK 13,3 0,6%
NOK 13,3 0,3%
CHF 157,4 0,8%
CAD 89,2 0,3%
JPY 0,8
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,1%
Mannfjöldi 395.050
USD 123,2 -0,1%
EUR 143,4 0,1%
GBP 165,3 0,1%
DKK 19,2 0,1%
SEK 13,3 0,6%
NOK 13,3 0,3%
CHF 157,4 0,8%
CAD 89,2 0,3%
JPY 0,8
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,1%
Mannfjöldi 395.050
Til baka

Málsvörn hag­fræð­ings

Árangur viðtekinnar hagfræði er hér metin og hugrekki hagfræðinga tekið til gagnrýninnar skoðunar.

IMG_2403
Mynd: ÁBT

Þeirri skoðun er stundum hreyft að viðtekin hagfræði hafi brugðizt síðustu ár og þarfnist gagngerrar endurskoðunar. Þá er fyrst og fremst átt við það að hagfræðingar hafi fæstir séð fyrir hremmingarnar sem riðu yfir banka og aðrar fjármálastofnanir í okkar heimshluta 2007-2008 og hafi því ekki megnað að vara við þeim. Það var broddur í spurningu Elísabetar Englandsdrottningar sem hún lagði fyrir fríðan flokk hagfræðinga sem hún hafði kvatt á sinn fund: Hvers vegna sá ekkert ykkar þetta fyrir?

Hagfræði og hugrekki

Spurningu drottningar var hægt að svara í tvennu lagi.

Fyrst þetta: Hagfræði og hagfræðingum er ekki og var aldrei ætlað að geta sagt fyrir um óorðna hluti. Það væri með líku lagi óhyggilegt og ósanngjarnt að áfellast jarðfræðinga fyrir að sjá ekki fyrir öll eldsumbrot og alla landskjálfta. Engum dettur í hug að snúa baki við jarðfræði sem fræðigrein af þeim sökum. Sama máli ætti jafnan að gegna um hagfræði. Hagfræðingum var aldrei ætlað að geta sagt fyrir um framtíðina.

En þetta er ekki allt. Hagfræðingar, einkum þeir sem starfa í bönkum og stjórnsýslu, leggja fram hagspár í gríð og erg. Stóra bólan sem sprakk 2007-2008 var svo þrútin og umræðan í aðdraganda hennar svo galin að miklu fleiri hagfræðingar en raun varð á – og aðrir! – hefðu að réttu lagi átt að stíga fram og vara við ruglinu. Það var því ekki hagfræðin sem brást heldur hugrekkið.

graf2

Árangur

Hagfræði hefur gert mannfólkinu mikið gagn í tímans rás, kannski mest þegar hún lagði upp í hendur stjórnvalda tæki til að brjótast út úr efnahagskreppum með því að örva efnahagslífið með markvissum aðgerðum í fjármálum ríkisins og peningamálum. Þá brást að sönnu sú klassíska hagfræði sem fyrir var. Því þurfti nýja hagfræði, þjóðhagfræði, þ.e. Almennu kenningu Keynes (1936), til að skýra hvernig hægt var að rífa efnahagslíf heimsins upp úr kreppunni miklu 1929-1939, kenningu sem var síðan beitt aftur til að bregðast við hremmingunum 2007-2008, þar með talin fordæmalaus útþensla peningamagns í umferð af hálfu seðlabanka. Þannig tókst að sjá til þess að af þessum hremmingum hlauzt bara skammvinn efnahagslægð frekar en langvarandi kreppa. Fáar aðrar uppgötvanir í fræðum og vísindum hafa valdið viðlíka straumhvörfum í lífi fólks og jafnast á, að segja má, við rafmagn, bólusetningar og sýklalyf svo þrennt annað sé nefnt af handahófi.

Hagfræði hefur skilað ýmsum öðrum árangri, til dæmis vitneskjunni um það hvernig aukin viðskipti innan lands og við umheiminn auka velferð almennings sé þess gætt að viðskiptahagnum sé skipt réttlátlega, því hagfræði fjallar ekki aðeins um hagkvæmni heldur einnig réttlæti. Hagfræði hefur einnig lagt fram vitneskjuna um það hvernig fákeppni og einokun draga úr velferð almennings með því að takmarka vöruval og hækka verðlag og rýra með því móti lífskjör almennings. Þetta stafar af því að frjáls samkeppni, samkeppni með ábyrgð, hneigist til að auka velferð almennings og halda verðlagi í skefjum sé þess gætt að afrakstri samkeppninnar sé skipt með réttlátum hætti. Aftur kallar réttlætissjónarmiðið að okkur í miðjum klíðum.

Það er að vísu ljóður á viðtekinni hagfræði og veikleiki að réttlætishlið efnahagsmálanna hefur lengi verið haldið eins og í skugga utan girðingar, en það er nú loksins að breytast. Aukinn ójöfnuður í skiptingu auðs og tekna hefur opnað augu æ fleiri hagfræðinga fyrir nauðsyn þess að taka réttlæti með í reikninginn. Það er afstaða sem engum heimspekingi eða sagnfræðingi ætti að koma á óvart. Það er ekki nóg að kennslubækur í …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Skipti engu að samningarnir um Icesave voru felldir?

2
Samfélag

Erfðafjárskattar, lýðræði og hið frjálsa samfélag

3
Húsnæðismál

Fjárfesting í íbúðar­húsnæði og lánveitingar hins opinbera til hús­næðis­bygginga og/eða húsnæðiskaupa

4
Efnahagsmál

Frá háskóla til verðmæta – hvar slitna tengslin í íslensku hagkerfi?

5
Aðrir sálmar

Húsnæði og umferðarónæði

6
Húsnæðismál

Hagfræðileg borgarmál

Úkraína drónar
Alþjóðamál 19. tbl.

Tvínota tækn­i: þeg­ar inn­við­ir verða varn­ar­geta

Þótt hefðbundnar hervarnir skipti enn máli snúast öryggismál sífellt meira um seiglu samfélaga, innviði, netöryggi og tvínota tækni sem þjónar bæði borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi.
Jóhanna og Steingrímur
Efnahagsmál 19. tbl.

Skipti engu að samn­ing­arn­ir um Ices­a­ve voru felld­ir?

Niðurstaða Icesave-málsins var hagfelld fyrir Ísland, en spurningin er hvort sama niðurstaða hefði getað fengist þótt einhver samninganna hefði verið samþykktur.
Ferðamenn í Reykjavík
Aðrir sálmar 19. tbl.

Höfr­ung­ar og koll­hnís­ar

á vinnumarkaði og í seðlabönkum
Háskóli Íslands IMG_9403
Sjálfbærni 18. tbl.

Kröf­ur um stjórn­ar­hætti – í ljósi sög­unn­ar

Þróun alþjóðlegra viðmiða og breytt lagaumhverfi

Reykjavíkurhöfn
Loftslagsmál 18. tbl.

Mesta lofts­lags­á­hætta ís­lensks at­vinnu­lífs

Aðrir sálmar . tbl.

Reikn­ings­skil gjörða og ákvarð­ana

Um kosningar og það að kjósa að veita ekki nægar upplýsingar
dsf2038
Samfélag 17. tbl.

Erfða­fjár­skatt­ar, lýð­ræði og hið frjálsa sam­fé­lag

Peningar
Efnahagsmál 17. tbl.

Frá há­skóla til verð­mæta – hvar slitna tengsl­in í ís­lensku hag­kerf­i?