USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Vax­andi vond­ir þætt­ir

sem hafa áhrif á kreppuverðbólgu, atvinnuleysi og verðhækkanir

Verðbólgan hækkaði meira í vikunni hér á landi og atvinnuleysið vex samhliða. Vofa kreppuverðbólgunnar vofir yfir heiminum samkvæmt úttekt Financial Times í gær.

Seðlabankastjóri mætti í merkilegt Silfursviðtal hjá Ríkisútvarpinu í upphafi vikunnar. Þar voru hans helstu skýringar á viðvarandi og þrálátri verðbólgu hérlendis tvær. Mikill hagvöxtur og höfrungahlaup á vinnumarkaði. Meiri hagvöxtur hérlendis heldur en í Evrópu væri skýringin á því að vextir þyrftu að vera hærri hér en þar. Þó liggur fyrir sú staðreynd að hagvöxtur á mann hérlendis er nánast enginn undanfarin ár – samhliða hinni háu verðbólgu.

Hagvöxtur á mann í Evrópu er meiri og vextir lægri. Bæta mætti við sjónarhorni raunhagvaxtar þar sem leiðrétt er fyrir verðbólgunni og þá er viðbúið að samanburður við önnur lönd verði enn óhagstæðari. Hinir háu vextir hér hafa enda ekki lækkað verðbólguna.

Fjármálaráðherra mætti jafnframt í viðtöl í vikunni, bæði á Sprengisandi sunnudagsins með verkalýðsforkólfi og í Kastljóssviðtal gærkveldsins eftir kynningu fjármálaáætlunar þar sem tvö hundruð uppsagnir ríkisstarfsmanna, helst án áminningar, eru eftirtektarvert framlag til að ná fram rekstrarafgangi á ríkissjóð. Auk þess sem efnahagstjórnin virðist miða að því að hrekja erlenda vinnuaflið, sem þegar býr við sveiflukennt atvinnuöryggi, alveg úr landi með því að skerða réttindi þess á tímum atvinnuleysis. Helsta framlag fjármálaráðherra til sáttar á vinnumarkaði var svo að rífast um fjölda funda um vandann. Póstmódernísk stjórnmál hafa ekki náð álíka hæðum síðan að hugtakið pólitískur ómöguleiki var fundið upp. Nokkur stéttarfélög birtu ráðherranum uppsagnarbréf, án áminningar, í vikunni. Óljóst er hvernig á uppsögninni verður tekið þar sem þessi tiltekni fjármálaráðherra er ekki kosinn til starfans heldur pólitískt ráðinn, án auglýsingar.

Harvardprófessorinn Kenneth Rogoff sem er fyrrum aðalhagfræðingur Alþjóða gjaldeyrissjóðsins sagði í vikunni: „Í ofanálag við úkraínska- og tollastríðið þá er íranska stríðið nú að skapa stærstu kreppuverðbólguáhættu sem sést hefur í heiminum í fimm áratugi.“



Forsíðugrein vikunnar fjallar um efnahagslegar afleiðingar stríðs Ísraels og Bandaríkjanna gegn Íran á hið íslenska hagkerfi í ljósi stöðunnar.

Síðari grein vikunnar sýnir fram á vaxandi álagningu olíufélaganna hérlendis áður en hækkanir heimsmarkaðsverðs komu til sögunnar.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina