USD 121,8 -0,2%
EUR 143,2 -0,6%
GBP 164,5 -0,4%
DKK 19,2 -0,6%
SEK 13,3 -0,2%
NOK 13,0 -0,2%
CHF 155,8 -0,1%
CAD 88,9 -0,4%
JPY 0,8 -0,1%
Stýrivextir 7,5%
Verðbólga 5,4%
Mannfjöldi 394.530
USD 121,8 -0,2%
EUR 143,2 -0,6%
GBP 164,5 -0,4%
DKK 19,2 -0,6%
SEK 13,3 -0,2%
NOK 13,0 -0,2%
CHF 155,8 -0,1%
CAD 88,9 -0,4%
JPY 0,8 -0,1%
Stýrivextir 7,5%
Verðbólga 5,4%
Mannfjöldi 394.530
Til baka

Við­horf og við­bragð

Víðsjárverðir tímar í vályndum heimi

Grænland
Mynd: AFP

Afl hinna ríku og sterku ræðu nú miklu um ástandið í okkar heimshluta, líka hérlendis. Svo segir loftslagsfræðingur Umhverfis- og orkustofnunar í viðtali við Ríkisútvarpið fyrir áramótin að minna þurfi þá á sem eru veikir fyrir í lungunum og með öndunarfærasjúkdóma að mikilvægt sé að þeir taki lyfin sín og loki gluggum, væntanlega til þess að hinir hraustu og sterku geti sprengt kökur á gamlárskvöld. Lognið hefur áður verið sagt ástæða mengunar af sérfræðingum stofnunarinnar, ekki hinir raunverulegu mengunarvaldar. Á svipaðan hátt er reglulega minnt á að hjólreiðamenn og gangandi vegfarendur noti ljósan klæðnað og endurskinsmerki til þess að bílarnir keyri ekki á þau. Sjaldnar er hvatt til að bílstjórar fari varlega og taki tillit, eða minnt á að þeir sem stjórna bifreiðum hafi ekki vald yfir hinum sem forðast ökutæki með sprengihreyfla.

Mikill menningarmunur er nú magnaður upp á hinu alþjóðlega sviði. Sá sem á stærsta og öflugasta herinn virðist fá að ráða yfir þeim landsvæðinu sem hann langar í. Hann fær líka að taka bát sem er innan íslensku lögsögunnar með hernaðaraðgerð frá öðru nágrannalandi. Rætt er af alvöru um að hann muni taka Grænland nú þegar að hann hefur eignað sér Venesúela, en þar skaut hann niður báta í lögsögunni á síðast ári og hertók forsetann í forsetahöllinni um síðustu helgi. Fjalla ég nánar um áhrifin á horfur í efnahag heimsins í grein í Heimildinni sem kom út í dag.

Meðvirkni með hinum freku og sterku getur verið stórhættuleg, alveg eins og sú hegðun að bjóða þeim byrginn. Gegn þeim hættum mætti ganga í bandalag. Það hvort að Íslendingar geti fjallað um aðild að Evrópusambandinu gæti orðið afgerandi fyrir afdrif okkar varnarlausu smáþjóðar í stöðugt harðnandi heimi. Báðar greinar fyrsta vikurits ársins fjalla um þau mikilvægu mál.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Árangur, áskoranir og lærdómur

2
Neytendamál

Eldsneytisverð 20 krónum of hátt … en er eitthvað hægt að gera?

3
Efnahagsmál

Um efnahagslegar afleiðingar styrjaldarinnar

4
Efnahagsmál

Það sem við mælum hefur áhrif á það sem við gerum

5
Aðrir sálmar

Vaxandi vondir þættir

6
Efnahagsmál

Velsældarmælingar

Jürgen Habermas
Heimspeki 14. tbl.

Inn­við­ir og and­rými hins op­in­bera vett­vangs

Saga eins mesta hugsuðar Evrópu síðustu þrjá aldarfjórðunga
Efnahagsmál 14. tbl.

Ár­ang­ur, áskor­an­ir og lær­dóm­ur

Áratugur frá setningu nýrra laga um opinber fjármál
Aðrir sálmar 14. tbl.

Stað­bundn­ar og al­þjóð­leg­ar að­stæð­ur

Staða Íslands í hinu evrópska efnahagslega umhverfi
mynd1
Efnahagsmál 13. tbl.

Vel­sæld­ar­mæl­ing­ar

verða enn mikilvægari í núverandi óvissuástandi

Aðrir sálmar 13. tbl.

Vond­ur hag­vöxt­ur og góð­ur

og mismunandi afrakstur hans
Mynd 1 WEF
Efnahagsmál 13. tbl.

Það sem við mæl­um hef­ur áhrif á það sem við ger­um

um mælikvarða umfram verga landsframleiðslu
Bensín
Neytendamál 12. tbl.

Elds­neyt­is­verð 20 krón­um of hátt … en er eitt­hvað hægt að ger­a?

Álagning á eldsneyti hækkar og samkeppni er veik
AFP__20260325__A4LN6T3__v2__HighRes__FilesUaeUsIranIsraelWarTransportShipping
Efnahagsmál 12. tbl.

Um efna­hags­leg­ar af­leið­ing­ar styrj­ald­ar­inn­ar

Verðbólga vex áfram og stríðsáhrif ógna efnahagsstöðugleika