
Á heimasíðu Hagstofunnar er síða með s.k. velsældarvísum, 40 tímaröðum sem skipt er í þrjá flokka: félagslega vísa (18 raðir), efnahagslega (15) og umhverfislega (7). Sumir þeirra, t.d. efnahagslegu vísarnir hagvöxtur, kaupmáttur ráðstöfunartekna og verðbólga, eru líka annars staðar á heimsíðunni og suma aðra er hægt að finna á heimasíðum annarra stofnana. Þegar horft er yfir þessa 40 vísa virðist auðvelt að benda á stærðir sem eru mikilvægar fyrir tilteknar ákvarðanir stjórnvalda en eru ekki meðal hinna útvöldu. Dæmi um slíka stærðir eru t.d. gögn um náttúruauðlindir í hafinu, stærð fiskistofna o.fl., sem er að finna á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar. Hlutfall endurnýjanlegrar orku af allri orkunotkun í landinu er eina stærðin um orkumál, en ekkert er um þróun orkuframleiðslunnar, afkastagetu mismunandi orkuauðlinda eða eftirspurnina.
Í skýrslu vinnuhópsins sem valdi velsældarvísana[1] er sagt að þar sé „ekki farin sú leið að vigta saman ólíka mælikvarða og fá eina niðurstöðu heldur er búin til heildstæð mynd sem unnt er að nýta til stefnumótunar.“ Þótt vissulega nái þessir vísar til fleiri atriða en hagvaxtar og annarra efnhagsstærða fer það svolítið eftir verkefninu hversu „heildstæða mynd“ þeir gefa. Og af því að vægi einstakra vísa er ekki metið þannig að hægt sé að reikna út „eina niðurstöðu“ er viðbúið að oft sé ómögulegt að finna bestu aðgerðina í hópi þeirra aðgerða sem til geina koma þótt áhrif á þá alla séu þekkt.
Tengsl einstakra vísa og heildarstærðir
Það eru tengsl á milli sumra velsældarvísanna. Það eru t.d. tengsl á milli hagvaxtar og vaxtar heimilissorps og á milli hagvaxtar, atvinnuleysis og verðbólgu. Að öðru jöfnu dregur meiri hagvöxtur úr atvinnuleysi en jafnframt eykst verðbólguþrýstingur. Hvað þessa þrjá velsældarvísa varðar eru flestir á því að það séu takmörk fyrir því hvað stjórnvöld geta gert til að hafa áhrif á hagvöxt til lengri tíma, en samtímis er það eitt af mikilvægum hlutverkum stjórnvalda að tryggja jafnvægi milli hagvaxtar, atvinnuleysis og verðbólgu og þar með efnhagslegan stöðugleika.
Það gildir um suma velsældarvísa að ekki er einhlítt hvernig þeir eru mældir. Það gildir t.d. um verga landsframleiðslu og þar með um hagvöxtinn. Þar er lögð áhersla á að mæla efnahagsstarfsemi sem er hluti af markaðshagkerfi þannig að hægt sé að nota verð vara og þjónustu á markaði til að leggja saman verðmæti sem skapað er í ólíkum atvinnugreinum. Frá upphafi hefur starfsemi á vegum hins opinbera, sem greitt er fyrir með sköttum og er þannig ekki hluti af markaðshagkerfinu, verið með í útreikningum á landsframleiðslu, en ólaunuð heimilisstörf og sjáfboðaliðastörf verið undanskilin. Hvoru tveggja hefur áhrif á mældan hagvöxt.
En þótt mælingar á landsframleiðslu og þar með hagvexti séu háðar nokkurri ónákvæmni gefa þær tækifæri á að skoða hvernig einstaka aðgerðir hafa áhrif á hluta kerfisins og á hagkerfið í heild. Ef öðrum velsældarvísi er bætt við hefur það áhrif á niðurstöður hvernig tengsl eru á milli þeirra, þ.e. hvaða vægi landsframleiðslan og aðrir velsældarvísar eigi að hafa í útreikningi á nýrri samsettri velsældarvísitölu. Þróunarvísitala mannsins (Human Development Index, HDI), sem Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) reiknar út, er einfalt dæmi um samsetta vísitölu. Þar eru þrír velsældarvísar vegnir saman: vergar þjóðartekjur á mann, menntunarstig sem mælt er með meðallengd skólagöngu og vænt ævilengd við fæðingu. Þessar þrjár stærðir eru skalaðar (e. normalized) og síðan er tekið (geómetrískt) meðaltal þar sem allar breyturnar hafa sama vægi. Ísland var í fyrsta sæti á þennan mælikvarða árið 2023, sem er nýjasta mælingin.[2]
Breyting vergra þjóðartekna á mann þróast svipað og vöxtur framleiðni. Ef bætt er við vexti mannfjöldans fæst hagvöxturinn. Báðar þessar stæðir hafa verið jákvæðar og þar með hagvöxturinn líka. Sjálfsagt eru einhverjir sem velta því fyrir sér hvort það sé góð mæling á menntunarstig að reikna út meðallengd skólagöngu. En burtséð frá því eru þessir þrír vísar æskilegir hver fyrir sig og þar með er sennilegt að hækkun á meðaltali þeirra sé æskileg. Það er hins vegar erfitt að finna dæmi um kringumstæður þar sem stjórnvöld teldu skynsamlegt að horfa á samsettu vísitöluna frekar en að horfa á vísana hvern fyrir sig og möguleg orsakatengsl á milli þeirra, t.d. að meiri menntun auki þjóðartekjur á mann.
Vísitala félagslegra framfara (Social Progress Index, SPI)[3] er einnig byggð á því að vega saman mismunandi velsældarvísa. Sumar aðferðir sem bent er á eru nokkuð flóknari en sú sem notuð er við útreikning á HDI, en ekki er víst að þær gefi samsetta vísitölu sem sé alltaf betri leiðsögn fyrir ákvarðanir stjórnvalda.
Grænir viðbótarreikningar
Fyrir 30-40 árum var nokkur áhugi á að skoða áhrif efnahagsstarfsemi á mengun og nýtingu náttúruauðæfa. Ef mengun ykist í takt við aukna efnahagsstarfsemi þyrfti að leiðrétta fyrir því í mælingu á landsframleiðslu með því að draga frá kostnað vegna meiri læknisþjónustu og minni lífsgæða sem fylgi meiri mengun (og bæta við þegar kostnaður minnkaði og lífsgæði jukust eins og t.d. gerðist/gerist þegar farið er frá því að nota kol og yfir í aðra orkugjafa). Það var líka augljóst að það þyrfti að taka tillit til þess ef hagvöxtur byggði á því að gengið væri á náttúruauðlindir. Þetta var sérstaklega augljóst á Íslandi þar sem hægt var að benda á dæmi um mikinn hagvöxt sem byggði á ofveiði mikilvægra nytjastofna, t.d. síldveiðarnar á 7. áratugnum og þorskveiðarnar í kringum árið 1980. Við slíkar aðstæður væri rétt að draga frá áætlaðan kostnað vegna ofveiðinnar (eða bæta við fjárfestingu í fiskistofnum þegar veiðar eru takmarkaðar og stofnarnir stækka). Þessir grænu viðbótarreikningar (e. satellite accounts) áttu að vera viðbót við hefðbundna þjóðhagsreikninga. Í slíkum reikningum mundi sjást ef hagvöxtur hefði neikvæð áhrif þegar tekið væri tillit til ágangs á náttúruauðlindir og mengun.
Á síðustu öld tók ég þátt í vinnu á vegum Sameinuðu þjóðanna við gerð leiðbeininga um gerð grænna viðbótarreikninga. Nýjasta útgáfan af leiðbeiningum um gerð slíkra reikninga kom út árið 2012.[4] Hagstofur einhverra landa hafa útbúið græna viðbótarreikninga fyrir afmörkuð svið. Ég útbjó slíka viðbótarreikninga fyrir íslenskan sjávarútveg í tengslum við vinnuna við gerð leiðbeininganna[5] en ekkert framhald varð á þeirri vinnu. Ég held þó enn að grænir viðbótarreikningar fyrir sjávarútveg væru æskileg viðbót hér á landi þótt vissulega séu margar stærðir sem notaðar eru í slíkum reikningum, t.d. mælingar á stærð fiskistofna, háðar mikilli óvissu.
Hagvöxtur og hamingja
Að undanförnu hafa birst greinar, m.a. í Vísbendingu, þar sem hagfræðingar eru skammaðir fyrir oftrú á hagvexti og tækniframförum og blindu á gildi þátta sem ekki séu mældir með peningum.[6] Vissulega eru hagfræðingar margs konar en fáir telja hagvöxt helsta markmið efnahagsstarfseminnar, margir eru jákvæðir gagnvart vinnu við velsældarvísa og sumir leikið lykilhlutverk við þróun þeirra, t.d. J.E. Stiglitz sem var í forsæti s.k. Stiglitz-Sen-Fitoussi nefndar, sem lék stórt hlutverk í þróun Vísitölu félagslegra framfara.
Það eru meir en 20 ár síðan gamall kennari minn við London School of Economics, Richard Layard, hóf að rannsaka samband hamingju, eins og hún er mæld í skoðanakönnunum, við hagstærðir eins og landsframleiðslu og ráðstöfunartekjur heimila. Hann fann að þótt hamingja ykjist eitthvað þegar mjög lágar tekjur hækkuðu væri sambandið lítið eða ekkert hjá einstaklingum og ríkjum þar sem tekjur eru hærri. Layard hefur gefið út bækur um nýtingu velsældarvísa við ákvarðanatöku og ritstýrir árlegu riti sem heitir World Happiness Report.
Fréttir af hagvexti, verðbólgu og fleiri efnahagsstærðum eru áberandi í fjölmiðlum og í almennri umræðu. Þetta virðist í ósamræmi við niðurstöður úr fjölda reglulegra skoðanakannana í fjölmörgum löndum þar sem fólk segir oftast að heilsa og félagsleg tengsl skipti það mestu en tekjur skipti minna máli. Í þessu samhengi er þó rétt að benda á að sterkar vísbendingar eru um að hamingja fólks minnki verulega ef tekjur þess minnka mikið miðað við væntingar (e. loss aversion).
Í skýrslu starfshópsins sem valdi íslensku velsældarvísana er gerð grein fyrir niðurstöðum úr könnun sem Gallup vann fyrir hópinn. Þar sést að Íslendingar svara spurningum um þessi mál mjög svipað og aðrir.
Að einhverju marki er áhugi fjölmiðla á efnahagsmálunum til kominn vegna þess að þrátt fyrir niðurstöður áðurnefndra skoðanakannana eru margir stjórnmálamenn, stjórnmálafræðingar og blaðamenn sannfærðir um að þróun efnahagsmála ráði miklu um úrslit pólitískra átaka og kosninga. „It’s the economy, stupid“ er sagt að einn af ráðgjöfum Clintons í bandarísku forsetakostningunum árið 1992 hafi sagt um hvað mundi ráða úrslitunum. Sá vísdómur er staðfestur í skoðanakönnunum sem gerðar eru þessa dagana og sýna að framfærslumál (e. affordability issues) eru mikilvægustu málin í augum kjósenda. Kannski eru þessi mál flóknari en virðast kann í fyrstu.
Fótnótur
[1] Mælikvarðar um hagsæld og lífsgæði, Stjórnarráð Íslands, september 2019, https://www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/FOR/Fylgiskjol-i-frett/Hagsaeld_og_lifsgaedi.pdf
[2] Sjá https://hdr.undp.org/data-center/human-development-index#/indicies/HDI og https://www.datapandas.org/ranking/hdi-by-country
[3] Sjá The Social Progress Index 1990–2020: measuring societal wellbeing over 31 years, https://doi.org/10.1080/13645579.2025.2486264
[4] Sjá System of Environmental-Economic Accounting 2012 Central Framework, http://unstats.un.org/unsd/envaccounting/seeaRev/SEEA_CF_Final_en.pdf
[5] Sjá Á. Daníelsson, Methods for Environmental and Economic Accounting for the Exploitation of Wild Fish Stocks and Their Application to the Case of Icelandic Fisheries, Environmental & Resource Economics, Vol. 31, pp. 405-430, 2005, https://link.springer.com/article/10.1007/s10640-005-2176-5
[6] Sjá t.d. grein eftir Jean-Rémi Chareyre í 30. tbl. Vísbendingar 2025, https://visbending.is/greinar/hlustum-a-visindin/. Brynhildur Davíðsdóttir og Kristín Vala Ragnarsdóttir fjalla um velsældarvísa í 5. tbl. Vísbendingar 2025, https://visbending.is/greinar/mikilvaegi-velsaeldarhagkerfa-samthaetting-nyrrar-haghugsunar-til-ad-takast-a-vid-ojofnud-loftslagsvandann-og-til-ad-uppfylla-heimsmarkmidin/.





