USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Um­hverfi og mörk jarð­ar

Loftslagið og hafið ásamt hitanum og vöxtunum

Forseti í samtali við Ingibjörgu Þórðardóttur á Umhverfisþingi
Forseti í samtali við Ingibjörgu Þórðardóttur á Umhverfisþingi 2025
Mynd: Forsetaembættið

Umhverfisþing var haldið í upphafi vikunnar og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra gaf þar í ræðu sinni sterklega til kynna að hann ætlaði að ná árangri í vernd hafsins kringum landið. Nú eru 0,7-2% íslenska hafsvæðisins friðuð eða vernduð en í sumar komu þjóðir heims sér saman um að friða 30% hafsins hið minnsta innan fimm ára.

Umhverfið, loftslagsvandinn, hrun líffræðilegs fjölbreytileika og mengun eru helstu úrlausnarefni á sviði stjórnmála, hagfræði og efnahagsmála í dag. Forsíðugrein vikunnar fer vandlega yfir nýlega rannsókn á vandanum tengdri hinni hagfræðilegu hlið.

Umhverfisþingið sat einnig Halla Tómasdóttir forseti Íslands og átti þar áhugavert samtal þar sem hún meðal annars fjallaði um langtímasýn og árangursmælingar auk þess að nefna mikilvægt breytingaafl í krafti endurskoðenda og alþjóðlegra sjálfbærnistaðla. Einnig vísaði forseti í Tove Jansson höfund Múmínálfanna um að stundum þurfi að ferðast víða og langt til að kunna að meta verðmæti eigin heimkynna.

Í því ljósi mætti sjá speglun á milli ferðalaga Íslendinga og ferðaþjónustunnar hér á Íslandi. Nema markmiðið sé að hér verði byggt upp ákveðið tene-norðursins. Síðari greinin í tölublaði vikunnar fjallar um þær áskoranir stærstu atvinnugreinarinnar.

Samkvæmt nýlegum rannsóknum sem fjallað var um í Bloomberg í vikunni er líklegt að tveir þriðju hlutar þeirra 24.400 dauðsfalla í Evrópu vegna sumarhitanna í ár megi reka til loftslagsbreytinga af manna völdum, eða andlát 16.600 einstaklinga.

Annars var stýrivöxtum evrópska seðlabankans haldið óbreyttum í síðustu viku, á bilinu 2,0-2,4% og stýrivextir bandaríska seðlabankans voru lækkaðir nú í vikunni um fjórðung úr prósentu niður í 4,0-4,25%. Verðbólgan í Evrópu er nú 2,1% og í Bandaríkjunum er hún 2,6%. Tvöfaldi munur stýrivaxtanna í aðeins fjórðungs munar verðbólgu skýrist meðal annars af mismiklum hagvexti og horfum. Það að auki eru tölur af vinnumarkaðinum til vandræða vestanhafs og ógnin um stöðnunarverðbólgu (e. stagflation) vofir þar yfir.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina