Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Blönd­uð leið til að byggja sam­fé­lag

Haldið er áfram að fjalla um samfélagsuppbyggingu í vikuritinu. Nú er sjónarhornið annars vegar í ljósi náttúruhamfara með fyrri grein af tveimur um þjóðarsjóð og hins vegar út frá byggðaþróun og áhrifum sjókvíaeldis á hana og efnahag sem hefur áhrif á náttúrufar.

deilimynd-asgeirbrynjar

Náttúran hefur mikið verið til umfjöllunar á undanförnum vikum á síðum Vísbendingar, í ljósi aðstæðna hér heima og í heiminum. Efnahagslegar ráðstafanir og afleiðingar vegna áfalla og aðgerða verða væntanlega enn mikið til umræðu á næstunni.

Í blaði vikunnar birtist fyrri grein af tveimur eftir Gylfa Magnússon um hugmyndina um þjóðarsjóð, vegna þeirrar umræðu sem endurvakin hefur verið í ljósi Reykjaneseldanna síðari sem nú hafa varað í tæp þrjú ár og brotist upp á yfirborðið sex sinnum, þegar þetta er skrifað.

Upphaflegt frumvarp um þjóðarsjóð kom fram á Alþingi árið 2019 og vert er að skoða umræður um það auk athugasemda við drög þess þá. Jafnframt þarf að endurskoða hugmyndina í ljósi núverandi aðstæðna og mögulegrar framtíðarþróunar.

Loftslagsváin hefur einnig áhrif á alla umræðu um hamfarir, bæði á tryggingamál, áhættumat og breyttar aðstæður byggðar. Byggðaþróun hefur þó jafnframt orðið fyrir áföllum af mannavöldum líkt og sagan hérlendis sýnir okkur.

Hin greinin í þessu vikuriti fjallar um áhrif atvinnuþróunar á byggð. Náttúran og auðlindir lífríkis hennar koma þar mikið við sögu. Samhliða því að óspillt náttúra verður sífellt verðmætari er hættan áhrifameiri af áföllum vegna atvinnustefnu sem ákvarðast af manngerðri umgjörð og þeim sem nýta sér hana.

Verði tjón á náttúrunni getur það vel orðið óbætanlegt óháð tryggingaskilmálum eða reglugerðabrotaviðurlögum. Valdi náttúran tjóni á mannvirkjum þá er vel hægt að bæta það. En mannvirki sem byggð eru ofan á eldstöð og eru í eigu hlutafélaga með ákveðið eigið fé og takmarkaða ábyrgð, þau þarf ekkert endilega að bæta úr sameiginlegum sjóðum almennings.

Þegar að ríkissjóður kemur til bjargar, vegna almannahags og augljósrar skyldu sinnar til að tryggja öryggi þegnanna, þá er alls ekki sjálfgefið að hlutafélög eigi að njóta þeirra bjarga. Ríkissjóður getur aldrei orðið ábekingur til þrautavara fyrir tapaðan eða væntan hagnað.

Tilvísanir

  1. Upphaflegt frumvarp um þjóðarsjóð frá 2019 og ferill þess á Alþingi: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/150/243/

    ↩

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina