USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Claudia Gold­in, nóbels­verð­launa­hafi í hag­fræði 2023

Á mánudagsmorgun var tilkynnt að Claudia Goldin hefði hlotið verðlaun sænska Seðlabankans til minningar um Alfred Nobel fyrir árið 2023. Þessi ákvörðun er merkileg fyrir margra hluta sakir.

33XV6AJ-highres
Claudia Goldin nóbelsverðlaunahafi í hagfræði 2023 prófessor við Harvard háskóla. Mynd: AFP

Á mánudagsmorgun var tilkynnt að Claudia Goldin hefði hlotið verðlaun sænska Seðlabankans til minningar um Alfred Nobel fyrir árið 2023. Þessi ákvörðun er merkileg fyrir margra hluta sakir. Annars vegar er það verðlaunahafinn. Claudia Goldin er einungis þriðja konan til að hljóta nóbelsverðlaun í hagfræði og fyrsta konan til að fá þau án þess að deila verðlaununum með öðrum. Á hinn bóginn er það fyrir hvað verðlaunin eru veitt. Verðlaunin eru veitt Claudiu Goldin fyrir „að hafa bætt skilning okkar á afkomu kvenna á vinnumarkaði“. Claudia Goldin er fædd árið 1946 í New York borg í Bandaríkjunum. Hún útskrifaðist með BA gráðu í hagfræði frá Cornell háskóla 1967 og doktorsgráðu frá Chicago háskóla 1972. Í dag er hún prófessor við Harvard háskóla í Boston. Verðlaunin eru viðurkenning á því hversu mikilvægt er að rannsaka vinnumarkaðinn og skilja mismunandi stöðu karla og kvenna á vinnumarkaði.

Atvinnuþátttaka kvenna hefur þrefaldast í mörgum hinna efnaðri ríkja síðustu hundrað árin sem er gríðarleg samfélagsbreyting. Claudia Goldin hefur á sínum ferli leitast við að skoða og skýra þróun í atvinnuþátttöku kvenna og þróun á launamun karla og kvenna í gegnum aldir. Í rannsóknum sínum hefur Goldin farið óhefðbundnar leiðir við að nálgast upplýsingar og nýtt söguleg gögn til að lengja tímaraðir aftur í tímann.

Á árinu 1990 gaf Claudia Golden út bókina Understanding the Gender Gap: An Economic History of American Women sem varpaði nýju ljósi á hugmyndir fólks um þátttöku kvenna á vinnumarkaði. Opinber gögn í Bandaríkjunum sýndu að alla tuttugustu öldina fór atvinnuþátttaka kvenna vaxandi og töldu margir að þar færi hönd í hönd, aukin atvinnuþátttaka og hagvöxtur. Goldin nýtti sér margs konar söguleg gögn og lengdi tímaröðina um atvinnuþátttöku aftur til loka átjándu aldar. Í opinberum gögnum höfðu konur gjarnan fengið starfsheitið „eiginkona“, en það var ekki þar með sagt að konur stunduðu ekki vinnu. Meðal annars unnu konur með eiginmönnum sínum í fjölskyldufyrirtæki eða þær stunduðu ýmsa atvinnustarfsemi innan heimilisins. Þar má telja alls kyns handavinnu og fatagerð, framleiðslu á ostum og öðrum mjólkurvörum, en þessi framleiðsla var ekki skráð sem atvinna. Fyrir iðnbyltinguna var atvinnuþátttaka kvenna því meiri en áður hafði verið reiknað með. Í iðnbyltingunni dróst atvinnuþátttaka kvenna saman þar sem erfitt var fyrir konur með börn að vinna í verksmiðjum. Ógiftar konur voru áfram í nokkrum mæli á vinnumarkaði. Goldin sýndi fram á að á nítjándu öldinni dróst atvinnuþátttaka kvenna saman áður en hún tók að vaxa að nýju á tuttugustu öldinni. Ferilinn var því U-laga en þar sem hagvöxtur var stöðugur á öllu þessu tímabili, var ljóst að þróunin tengdist ekki beint hagvexti á þessum tíma og því þyrfti að leita skýringa annars staðar.

Það kemur ekki á óvart að í gegnum aldirnar hafi hjúskaparstaða ráðið miklu um atvinnuþátttöku kvenna, en Claudia Goldin hefur í rannsóknum sínum varpað frekara ljósi á þessa þróun fyrir konur bæði innan og utan hjónabands. Sögulega hefur verið mikill munur á atvinnuþátttöku kvenna eftir hjúskaparstöðu, en á 18. og 19. öld hættu flestar konur að vinna þegar þær gengu í hjónaband. Þrátt fyrir aukna atvinnuþátttöku kvenna á 20. öldinni, sýndu rannsóknir Goldin að þetta mynstur breyttist ekki á 20. öldinni. Þess í stað mátti rekja aukna atvinnuþátttöku kvenna til þess að konur fóru …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina