USD 120,5 0,1%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 159,6 -0,1%
DKK 18,3 -0,1%
SEK 12,1 -0,1%
NOK 12,6 -0,7%
CHF 144,6 -0,1%
CAD 85,0
JPY 0,8 -0,1%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 120,5 0,1%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 159,6 -0,1%
DKK 18,3 -0,1%
SEK 12,1 -0,1%
NOK 12,6 -0,7%
CHF 144,6 -0,1%
CAD 85,0
JPY 0,8 -0,1%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Eft­ir­lit og reikn­ings­skil

Stjórnsýslueftirlit er ekki síður mikilvægt eins og samkeppniseftirlit eða heilbrigðiseftirlit.

Hús Iðnaðarbankans / Glitnis / Íslandsbanka í Lækjargötu 2017. Mynd: ÁBT
Mynd: Hús Iðnaðarbankans, síðar Glitnis og Íslandsbanka í Lækjargötu árið 2017

Fræg er setning eins bankastjórans sem stýrði einum af stærstu bönkum heims í fjármálakrísunni 2008 um að svo lengi sem músíkin hljómi þá verði dansinn að duna. Það var erfitt að standa á móti straumnum eða hætta auðveldri hagnaðarsókninni þegar allir bankar voru í fullu fjöri.

Jafnfram er annar samhljómur í söng bankamanna, þegar að illa fer, líkt og rifjað var upp í tveggja þátta heimildarmynd í Ríkissjónvarpinu í vikunni. Hann er sá sami hér og heyrðist stuttlega frá bankamönnum í Bandaríkjunum árið 2008 þegar þörf var á opinberri aðstoð til björgunaraðgerða. Þið hefðuð átt að hafa betra eftirlit með okkur sögðu bankamennirnir þar þá.

Sagt er að 12 af 13 stærstu bönkunum í New York hafi verið nokkrum klukkustundum frá falli, eftir að sá í fjórða sæti fór í þrot. Í sumum skandinavískum löndum var bankakerfið einnig nálægt falli, bæði Danske Bank strax haustið 2008 en einnig stærstu bankar Svíþjóðar ári og tveimur síðar. Sænski seðlabankinn þurfti þá að bjarga bankakerfinu í Eistlandi og Lettlandi þar sem sænsku bankarnir höfðu vaxið og voru burðarstoð bankakerfisins.

Eftirlitsmenning er almennt ekki í hávegum höfð hérlendis og hefur jafnvel á sér óorð. Sú fyrirlitning á eftirliti, sérstaklega varðandi samkeppni, að ekki sé minnst á hollustuhætti og öryggi, byggir á vantrú á kapítalískt efnahagslíf. Mögulegt er að skorturinn á samkeppni og eftirliti með henni feli í sér hluta ástæðunnar fyrir því að verðbólga helst talsvert hærri hérlendis en í nágrannalöndunum. Spurningin er þá hver, ef einhver, muni rannsaka það til að finna út hvort satt reynist.

Stjórnsýslulegt eftirlit er ekki síður mikilvægt eins og samkeppnis eftirlit. Nú þegar að þrjár opinberar eftirlitsstofnanir, Ríkisendurskoðun, Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands og Umboðsmaður Alþingis hafa allar farið yfir framkvæmd seinni einkavæðingar Íslandsbanka liggur fyrir að stjórn og stjórnendur bankans og bankasýslunnar auk fjármála- og efnahagsráðherra hafa öll þurft að standa reikningsskil gjörða sinna og axlað ábyrgð.

Næsta grein

Mest lesið
1
Alþjóðamál

Ísland í pilsfaldi Noregs

2
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

3
Efnahagsmál

Kaldur vetur en engin hörmung á fasteignamarkaði

4
Aðrir sálmar

Sjálfstætt fólk

5
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

6
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels
Aðrir sálmar 30. tbl.

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina
77a0620
Umhverfi 30. tbl.

Ef Ís­land væri borg á meg­in­landi Evr­ópu

Að fenginni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti
Mynd SGG - 1
Opinber fjármál 30. tbl.

Nýtt grunn­við­mið fyr­ir stjórn­ar­hætti op­in­berra að­ila

Peningar
Aðrir sálmar 29. tbl.

Gylfag­inn­ing

og velgengnisrannsókn Ganglera

Daði Már Kristófersson Fjármálaráðherra
Efnahagsmál 29. tbl.

Reikn­að­ur og raun­veru­leg­ur halli á rík­is­sjóði

Mannlíf, miðborg Reykjavíkur
Aðrir sálmar 28. tbl.

Af Atóm­stöð­inni

þar sem tvöfeldni ræður ríkjum og fjárlagafrumvarp er kynnt með verðbættri tekjuöflun
gsf6810
Atvinna 28. tbl.

Er at­vinnu­leysi inn­flytj­enda næmara fyr­ir hag­sveifl­u­m?

Atvinnuleysi innflytjenda á Íslandi er bæði hærra að jafnaði og sveiflast meira með hagkerfinu en atvinnuleysi fólks með íslenskan bakgrunn. Munurinn er skýrastur meðal karla og eldri einstaklinga á vinnumarkaði.