USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Ertu að reyna að gúgla eitt­hvað fleira?

Nokkrar sögur fyrrverandi ritstjóra.

Davíð Oddsson
Davíð Oddsson
Mynd: Birgir Þór Harðarson

Á tuttugu og fimm ára vegferð minni með Vísbendingu er það kannski minnisstæðast hve oft blaðið var á skjön við viðteknar skoðanir í fjölmiðlum, viðskiptalífinu og stjórnmálum. Aftur og aftur höfðu þeir sem um var fjallað samband við mig sem framkvæmdastjóra útgáfunnar eða ritstjóra blaðsins vegna þess að það setti fram „óæskilegar“ fullyrðingar.

Sagan af greininni dýru

Halldór Laxness sagði frá því á sínum tíma að líklega hefði kvæði hans Unglingurinn í skóginum verið dýrasta kvæði Íslandssögunnar því eftir að það birtist hefði hann verið sviptur skáldalaunum á Alþingi. Ekki hefði þótt við hæfi að verðlauna bögubósa sem hefði hnoðað saman slíku ljóði.

Í ritstjóratíð Ásgeirs Jónssonar ákváðum við að skrifa á baksíðu dálk undir nafninu Aðrir sálmar þar sem ritstjórar gætu leyft sér djarfari yfirlýsingar en í öðrum greinum í blaðinu. Í fyrsta tölublaði ársins 1997 birtist sálmur þar sem fjallað var um áramótagrein forsætisráðherra. Þar sagði meðal annars:

„Í áramótagrein segir forsætisráðherra tal um aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar gleðja sig því það sé einkenni góðra stjórna að gera sem minnst. Hér slær saman tveimur hugsunum. Það er ekki gott að gera lítið þegar margt er ógert. Það er einkenni viturra stjórnenda að láta þegna sína sem mest í friði. Það er hins vegar einkenni hins lata að gera það sama í dag og í gær.“

Daginn eftir að blaðið kom út kom til mín símhringing frá forsætisráðuneytinu og ráðherrann sjálfur var í símanum, allt annað en kátur. Símtalið var stutt og endaði þannig að viðmælandi minn lagði á, án þess að kveðja. Fljótlega kom annað símtal, sem endaði reyndar ekki hjá mér heldur gjaldkera, þar sem áskrift ráðuneytisins að Vísbendingu var sagt upp. Þetta var í sjálfu sér ekki stórmál, ef það hefði ekki fylgt í kjölfarið að gefin var út tilskipun til ráðherra að ekki skyldi eiga nein viðskipti við Talnakönnun, sem þá var útgefandi blaðsins. Þau höfðu numið einhverjum milljónum árin þar á undan og haft mikil áhrif til sparnaðar fyrir ríkið. Seinna frétti ég að það hefðu kannski ekki verið tilvitnuð orð sem hefðu styggt ráðherrann mest heldur fyrirsögnin: „Davíðssálmar hinir nýju“, en ráðherrann hafði einmitt birt jólasálm í desember. Aðgát skal höfð …

Ævintýrið byrjar

Um aldamótin komu fram á sjónarsviðið nokkur fyrirtæki sem vöktu mikla hrifningu fjölmiðla, sem var gjarnt að tala um að þróun slíkra fyrirtækja væri „ævintýri líkust“. Gylfi Magnússon dósent fjallaði um Netbóluna svonefndu í skýrslu Hagfræðistofnunar. Hann sagði: „Umfjöllun um fyrirtækin var alla jafna gagnrýnislítil á meðan vel gekk. … Umfjöllun tímaritsins Vísbendingar var þó með talsvert öðrum blæ en umfjöllun annarra fjölmiðla sem hér eru til skoðunar en útbreiðsla þess er mjög lítil þannig að áhrif þeirra skrifa hafa örugglega verið mun minni en áhrif stærri fjölmiðla.“ Hann rakti svo nokkur dæmi um skrif blaðsins sem hefðu ekki verið jafnblindað og Morgunblaðið af væntanlegri velgengni fyrirtækjanna. Vísbending undir stjórn Eyþórs Ívars Jónssonar varaði við því að tunguliprir eigendur væru að „tala upp hlutabréfaverð fyrirtækja og sumum hefur jafnvel tekist það aftur og aftur án þess að þurfa að sýna nokkurn raunverulegan árangur.“ Mörg ævintýrin enduðu illa, en það hafði samt lítil áhrif á umræðuna næstu árin um útrás banka og annarra fyrirtækja. Fjölmiðlar almennt voru áfram gagnrýnislitlir.

Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið árið 2008 er meðal annars fjallað um fjölmiðla og hvernig þeir hefðu skipað sér í hlutverk klappstýranna. Vísbending hafi þó haft sérstöðu. Vitnum beint til skýrslunnar:

„Á þessum árum birti Vísbending fjölmargar greinar sem vöruðu við ástandi efnahagsmála og bentu á að skýr merki væru um bólu á eignamörkuðum. Því fer þannig fjarri að allir hafi hrifist með og að enginn hafi séð að útrásin og verðhækkanir á hlutabréfamarkaði væru reistar á ótraustum grunni og að skuldsetning íslenskra fyrirtækja kynni að vera áhyggjuefni. Vísbending er hins vegar ekki sérlega víðlesið blað og þó að ritstjórnargreinar Morgunblaðsins og Reykjavíkurbréf hafi stundum lýst áhyggjum af þróun mála voru þau blöð sem fjölluðu um viðskipti og mest voru lesin, viðskiptablað Morgunblaðsins og Markaðurinn á Fréttablaðinu, mun ógagnrýnni í afstöðu …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina