USD 125,7 -0,2%
EUR 143,0 -0,3%
GBP 167,4 -0,4%
DKK 19,1 -0,3%
SEK 12,9 0,1%
NOK 13,1 0,3%
CHF 153,7 -0,4%
CAD 89,2 -0,2%
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 395.050
USD 125,7 -0,2%
EUR 143,0 -0,3%
GBP 167,4 -0,4%
DKK 19,1 -0,3%
SEK 12,9 0,1%
NOK 13,1 0,3%
CHF 153,7 -0,4%
CAD 89,2 -0,2%
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 395.050
Til baka

Ferl­ið er fjár­fest­ing­in

Frá færni-uppbyggingu eða getu-uppbygging að virði ferlis-uppbyggingar

Harvard
Mynd: AFP

Ég held mikið upp á kvikmyndina Lady Bird (2017), en hugsa reglulega oft til neðangreindra orðskipta sem aðalpersónan, Lady Bird, á við skólaráðgjafa um ritgerðina hennar.

Joan: „You write about Sacramento so affectionately and with such care.”

Lady Bird: „Well, I was just describing it.”

Joan: „Well, it comes across as love.”

Lady Bird: „Sure, I guess I pay attention.”

Joan: „Don’t you think maybe they are the same thing? Love and attention?”

Er þetta ekki sami hluturinn, ást og athygli? Það að veita einhverju tíma og athygli er að mínu mati það sem gefur þeim hlutum eða samböndum virði. Okkar takmörkuðu klukkutímar í þessari veröld neyða okkur til þess að velja hvað við viljum gera við þá, því ekki er allt hægt að gera. Í dag búum við á tímum þar sem tími og athygli er orðin ein verðmætasta auðlindin, og hafa fyrirtæki áttað sig á að nú þegar eyða flestir langstærstum hluta dagsins í að annaðhvort vinna eða neyta hinna ýmsu vara, og að helsta samkeppnin sé svefninn sjálfur [1]. Svar kapítalismans við því að uppgötva að tími okkar sé takmarkaður virðist vera að finna upp á tólum og tækjum sem stytta okkur leiðir, til þess að við getum gert meira. Þessi tól flýta fyrir okkur, og stytta tímann frá því að ég finn fyrir að ég vil eitthvað og að ég fái það í hendurnar. Ritgerð sem áður fyrr tók 10 klukkutíma að skrifa tekur núna 30 mínútur að skrifa. Kvikmynd sem áður tók nokkur ár í vinnslu og kostaði mikið fjármagn er núna hægt að framleiða næstum því alfarið með gervigreind.

Sækni í flýtileiðir

Þessi flýtileiðasækni er náttúruleg útkoma hagkerfis sem mælir árangur út frá lokaniðurstöðunni. Einkunn ritgerðar, áhorf þáttaraða, söluhagnaður eða hagvöxtur. Ef lokaniðurstaðan ein fær að ráða, þá er rökrétt að hagræða þannig að ferlið, eða kostnaðurinn við ferlið, sé sem minnstur. Í sumum tilfellum, eins og þegar kemur að því að bjóða öllum heimilum ódýrar og góðar þvottavélar, getur svona hagfræði hjálpað okkur, en í öðrum tilfellum, til dæmis í skapandi greinum, þá er þessi hugsun minna hjálpleg. Flýtileiðasækni er alls ekki ný, en með tilkomu gervigreindar er hún að færa sig á fleiri svið mannlífsins sem áður fengu að vera í friði. Þetta veitir okkur fullkomið tækifæri til þess að endurmeta hvort það séu einmitt einhverjir geirar sem ættu að vera frjálsir frá hagræðingu, sérstaklega þegar erfitt er að mæla eða meta gæði endaniðurstöðunnar. Ég vil í þessari grein færa rök fyrir því að flýtileiðasækni, sem hefur skapað flýtitól eins og gervigreind, muni vinna gegn því sem er einmitt erfiðast að mæla, gæði og virði sköpunarinnar.

Tökum sem dæmi framtíð kvikmyndaiðnaðarins, sem er í meiri óvissu en áður með tilkomu hinna ýmsu gervigreindartóla [2]. Með þessum nýju tólum eins og Flow eða Veo, er hægt að skrifa nokkrar setningar um hvernig myndband þú vilt fá, og á nokkrum sekúndum færð þú það í hendurnar. Engin þörf á löngum tökudögum …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Akkiles og fimm stoðir alþjóðageirans íslenska

2
Orkumál

Hin ónotaða auðlind Íslands

3
Orkumál

Verðvernd í krafti vindorku

4
Nýsköpun

Hvar eiga skapandi greinar heima í nýrri atvinnustefnu?

Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Hin ónot­aða auð­lind Ís­lands

Vindorka gæti orðið lykill að orkuskiptum, lægra orkuverði og aukinni samkeppnishæfni Íslands.
Peningar, seðlar, krónur
Efnahagsmál 22. tbl.

Akki­les og fimm stoð­ir al­þjóða­geirans ís­lenska

Lífskjör Íslendinga ráðast sífellt meira af fjölbreyttum útflutningi.
Harpa
Nýsköpun 22. tbl.

Hvar eiga skap­andi grein­ar heima í nýrri at­vinnu­stefn­u?

Skapandi greinar eru verðmætari fyrir atvinnulíf og samfélag en hefðbundnir hagvísar gefa til kynna.
Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Verð­vernd í krafti vind­orku

Vindorka getur aukið raforkuframboð, lækkað kostnað og stutt orkuskipti með minni umhverfisáhrifum.

pexels-rinoadamo-34586065
Sjálfbærni 22. tbl.

Líf­fræði­leg fjöl­breytni — áhrif og ábyrgð fyr­ir­tækja

Líffræðileg fjölbreytni er undirstaða samfélags, atvinnulífs og þeirrar velferðar sem við njótum.
OR89708
Orkumál 22. tbl.

Heitasta tæki­færið: Þeg­ar vís­indi og þekk­ing opna nýj­ar vídd­ir í jarð­hita

Djúpnýting jarðhita gæti margfaldað orkuvinnslu og markað næstu byltingu í íslenskum orkumálum.
Hellisheiði dsf7264
Efnahagsmál 22. tbl.

At­vinnu­stefna til 2035: Óraun­hæf og mót­sagna­kennd mark­mið

Getur hagkerfið vaxið endalaust á plánetu þar sem auðlindir eru takmarkaðar?
Raforka, raflínur
Orkumál 22. tbl.

Fram­tíð­in og fjöregg­ið okk­ar

Raforkumarkaðir snúast ekki aðeins um verð heldur einnig um orkuöryggi og stöðugleika.