Ekki hefur farið framhjá neinum að útlendingum á íslenskum vinnumarkaði hefur fjölgað mjög á þessari öld, en fjöldi þeirra hefur tífaldast á tuttugu árum. Því er um að ræða gríðarlega mikla samfélagsbreytingu á stuttum tíma. Á níunda áratug síðustu aldar voru erlendir ríkisborgarar innan við 2% allra íbúa Íslands, þeim tók að fjölga upp úr 2000 og voru nálægt 15% af íbúum landsins á árinu 2022, eins og sjá má á mynd 1.
Virkjanaframkvæmdir og bygging álvers á Austurlandi breyttu landslagi í bæði beinni og óbeinni merkingu. Framkvæmd ir við virkjunina hófust á árinu 2003. Bygging álversins hófst árinu seinna og álverið var tekið í notkun á árinu 2007. Á meðan á framkvæmdum stóð voru erlendir ríkisborgarar 20% af hlutfalli íbúa á austurhluta landsins.1 Framkvæmdunum fylgdi efnahagsuppsveifla og frá 2004-2008 fjölgaði erlendum ríkisborgurum hér til muna. Hlutfall þeirra af íbúafjölda fór úr 3,5% 2004 í 7,4% 2008, eða ríflega tvöföldun á þremur árum.

Hér á landi hefur atvinnuleysi sögulega verið lítið og oftar skortur á vinnuafli en hitt. Því hefur ekki vantað spurn eftir vinnuafli. Þá er vinnumarkaðurinn lítill og fremur auðvelt fyrir vinnufúsar hendur að komast inn á markaðinn og finna vinnu. Á árinu 2004 fjölgaði ríkjum innan Evrópusambandsins um tíu og þar með fjölgaði þeim ríkjum sem áttu aðild að Evrópska efnahagssvæðinu. Íbúar þessara ríkja höfðu fengið aðild að frjálsum markaði fyrir vinnuafl á árinu 2006.
Í kjölfar bankakreppunnar fækkaði erlendum ríkisborgurum, en fór þó aðeins úr 7,4% í 6,6%. Um leið og þjóðarbúskapurinn tók við sér á ný á árinu 2011, með örum vexti ferðaþjónustunnar, tók erlendum ríkisborgurum jafnframt að fjölga. Frá þeim tíma hefur hlutfall erlendra ríkisborgara hækkað stöðugt og nam 14,6% á árinu 2022.

Af ofangreindu má ráða að tengsl séu á milli aðflutnings erlendra ríkisborgara og hagsveiflunnar. Tengslin má sjá á mynd 2. Fyrri súlan sýnir hagvöxt á mann og sú síðari sýnir nettófjölda aðfluttra erlendra ríkisborgara sem hlutfall af íbúafjölda. Framan af er ekki augljós fylgni á milli hagvaxtar og aðflutnings erlendra aðila, en frá 2004, í uppsveiflunni í kjölfar virkjanaframkvæmda og byggingar álvers og í aðdraganda bankakreppunnar, má sjá sterkari tengsl þarna á milli. Frá árinu 2004 fjölgar aðfluttum erlendum ríkisborgurum og styður hann við uppsveifluna fram til ársins 2007. Þegar niðursveiflan kemur 2008 dregur úr fjölda aðfluttra og fleiri flytja brott en til landsins á árunum 2009-2011. Í kjölfar mikils falls á gengi íslensku krónunnar í bankakreppunni varð Ísland samkeppnishæfara þar sem ódýrara var fyrir ferðafólk að ferðast til Íslands en áður. Fréttir frá …








