
Efnahagslífið og samfélagið tekur stöðugum breytingum og þróast hratt á vissum sviðum en hægar á öðrum. Vikuritið Vísbending hefur komið út í yfir fjóra áratugi með vandaðri greiningu fjölbreytts hóps greinarhöfunda. Hinn prentaði hluti útgáfunnar hefur minnkað að upplagi á undanförnum árum en að sama skapi hefur dreifing í tölvupósti vaxið.
Nýtt skref verður tekið í næstu viku og prentaða hlutanum breytt úr vikulegri dreifingu í mánaðarlega stærri útgáfu. Vikuritið heldur áfram að koma út á sama rafræna formi og verið hefur dreift með tölvupósti á hverjum föstudagsmorgni. Eina breytingin er að prentuð útgáfa kemur aðeins mánaðarlega, þá með völdum greinum úr rafræna vikuritinu og með nýju efni.
Við hvetjum áskrifendur til að fara yfir áskriftarleiðir sínar og hafa samband ef breytinga er óskað, tölvupóstur: askrift@visbending.is. Þá bendum við á mismunandi fjölmennar áskriftarleiðir til fyrirtækja og stofnana, sjá: www.visbending.is/askrift þar sem hægt er að fá tiltekinn fjölda tölvupósta skráða, með eða án prentuðum eintökum sendum í pósti.
Vönduð umfjöllun og fjölbreytt efnistök verður áfram áhersla Vísbendingar svo að mismunandi hliðar viðskiptalífsins og efnahagsmála hljóti umfjöllun. Þannig leggur fjölmiðillinn lesendum sínum til víðsýnna sjónarhorn. Sjaldan hefur ástandið í efnahagsmálum heimsins verið eins krefjandi og nú sem kallar enn frekar á vandaða fjölmiðlun af því tagi.
Efnistök vikunnar eru bæði söguleg og hefðbundin, um verðbólgu og húsnæðismál en einnig um viðskipti og menningu í tilefni af því að 120 ár eru frá fæðingu Ragnars í Smára, eins hugmyndaríkasta athafnamanns síðustu aldar á Íslandi.
Þessi síðasta vikulega prentun markar litla breytingu fyrir lesendur á netinu en í næstu viku kemur fyrsta mánaðarlega prentaða útgáfan út með blöndu af nýjum greinum og endurbirtu úrvali mánaðarins á undan.
Heimildir
- Mismunandi áskriftarmöguleikar: Slóð








