USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Hvað ger­ir stjórn­anda ár­ang­urs­rík­an?

licensed-image
Höfundurinn austurríski stjórnunarfræðingurinn Peter F. Drucker

Dagur í lífi stjórnanda árið 1967 er nokkuð frábrugðinn degi stjórnanda í dag. Jakkaföt, sígarettureykur, ritvélar, martíni-hádegisverðir eru fyrirbæri sem eru fjarri raunveruleika flestra stjórnenda í dag. Nú getum við tekið stöðufund á Teams með kollega í Kaliforníu á nokkurra vandkvæða, sum okkar geta mætt á skrifstofuna í joggingbuxum án þess að nokkur veiti því eftirtekt og skyrdrykkur í eftir Crossfit-tíma í hádeginu er algengt uppbrot á vinnudegi margra. Þrátt fyrir þennan augljósa mun eru vandamál stjórnandans að grunninum til þau sömu í dag og þau voru fyrir sextíu árum síðan.

Fyrir þau okkar sem vinna þekkingarstörf, þ.e. þar sem hugvitið er nýtt sem auðlind fremur en handaflið, eru vandamálin í daglegu starfi okkar nokkuð almenn. Pósthólfið flæðir af tölvupóstum sem við höfum ekki tök á að svara, fundir eru bæði of margir og of óskilvirkir og of mörg verkefni hlaðast upp sem virðast öll vera í efsta forgangi. Þótt fyrirheit tölvutækninnar hafi verið þau að gera líf okkar einfaldara virðist sem svo að flækjustigið í auknu upplýsingaflæði og tíðara fundarhaldi hafi í raun gert vinnudag okkar erfiðari ef eitthvað er. Í grunninn stöndum við oftast frammi fyrir of mörgum verkefnum og of litlum tíma til að sinna þeim. Tíminn hleypur frá okkur og við keppumst við að ná árangri.

Þrátt fyrir að þetta hafi verið raunveruleiki þekkingarstarfsmanna í marga áratugi sætir það furðu að tímastjórnun, fundarstjórn, skilningur á framlagi okkar í starfi og árangursrík ákvarðanataka sé yfirleitt ekki á meðal þess sem við lærum í skóla. Flest okkar þurfa að tileinka okkur þá þekkingu sjálf.

The Effective Executive í íslenskri þýðingu

Nú er komin út íslensk þýðing á bókinni The Effective Executive, eftir austurríska stjórnunarfræðinginn Peter F. Drucker, sem kom fyrst út árið 1967. Bókin nefnist á íslensku Árangursríki stjórnandinn og hefur hún reynst þekkingarstarfsfólki um heim allan ómetanlegur leiðarvísir um hvernig eigi að ná stjórn á sjálfum sér til að ná fram árangri í lífi og starfi. Bókin er skrifuð fyrir þekkingarstarfsfólk sem ber ábyrgð í starfi og á alveg jafn mikið erindi við fólk í dag og hún hafði fyrir 56 árum síðan.

Í bókinni er farið í saumana á því hvað gerir stjórnanda árangursríkan. En hvað er átt við með stjórnanda í skilningi Drucker og hvað þýðir það eiginlega að vera árangursríkur?

Hverjir eru stjórnendur?

Stjórnandi (e. executive) í merkingu Drucker er ekki bara einstaklingur með mannaforráð. Hver einasti starfsmaður í þekkingarstarfi er stjórnandi ef ábyrgð viðkomandi felst í framlagi sem hefur merkjanleg áhrif á getu skipulagsheildar til að ná fram árangri. Forritari, verkefnastjóri, sérfræðingur og í raun hvaða þekkingarstarfsmaður sem er sem ber raunverulega ábyrgð í starfi telst því stjórnandi í þessum skilningi.

Bókin um árangursríka stjórnandann er því ekki bók um það sem æðstu stjórnendur ættu að gera. Hún er skrifuð fyrir allt þekkingarstarfsfólk sem ber ábyrgð á aðgerðum og ákvörðunum og eiga að skila framlagi og hafa áhrif á árangur skipulagsheildar.

Hverjir eru árangursríkir?

Í Árangursríka stjórnandanum segir að „í einu orði sagt er árangur starf stjórnandans. Að „skila árangri“ og að „stjórna“ eru í raun samheiti. Hvort sem stjórnandinn starfar hjá fyrirtæki eða hjá spítala, innan ríkisstofnunar eða hjá verkalýðsfélagi, í háskóla eða í herþjónustu, er viðkomandi fyrst og fremst ætlað að koma réttu hlutunum í verk. Það þýðir einfaldlega að ætlast er til þess að hann sé árangursríkur.“

Í skilningi Drucker er það árangurshæfni sem sker á milli þess hvort stjórnandi standi sig eða ekki þ.e. getan til að koma réttu hlutunum í verk. Greind, ímyndunarafl og þekking eru ekki af skornum skammti á meðal stjórnenda en árangurshæfni er ekki jafn algeng. Því miður er það innbyggt í starfsemi skipulagsheilda að á sama tíma og gerðar eru kröfur um …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina