USD 123,6 0,3%
EUR 136,6
GBP 163,5
DKK 18,3
SEK 12,3 -0,4%
NOK 12,9 -0,1%
CHF 147,4 -0,4%
CAD 86,7 0,2%
JPY 0,8 0,1%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
USD 123,6 0,3%
EUR 136,6
GBP 163,5
DKK 18,3
SEK 12,3 -0,4%
NOK 12,9 -0,1%
CHF 147,4 -0,4%
CAD 86,7 0,2%
JPY 0,8 0,1%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Kjar­val: The Immersi­ve Ex­perience

Tækniþróun vekur nýjan áhuga fjárfesta á listsýningahaldi. Upplifunarsýningar eru ört vaxandi grein innan myndlistarheimsins og er þær nú að finna nánast alls staðar, nema á Íslandi.

Van_Gogh_-_Starry_Night_-_Google_Art_Project.jpg
Stjörnunóttin eftir Vincent Van Gogh (1889) De Sterrennacht.

Ímyndaðu þér að þú standir úti á stjörnubjartri nóttu í Suður-Frakklandi og skyndilega taki himintunglin að hnita hringi fyrir ofan þig. Næturhiminninn væri ekki lengur svarblátt tóm, heldur minnti frekar á úthaf fullt af galsa brimrótsins. Þetta er tilkomumikil sýn. Hvað værir þú til í að greiða fyrir þessa upplifun?

Vísbendingar eru uppi um að þú sért ekki einn um að vera tilbúinn að opna veskið fyrir einmitt það augnablik sem Van Gogh skóp í sínu frægasta listaverki, De Sterrennacht, árið 1889. Svokallaðar alltumlykjandi upplifanir, immersive experiences, hafa verið að sækja verulega í sig veðrið á listmarkaði. Spurningin sem hvílir á allra vörum er; hvort framlag einkaframtaksins til myndlistarneyslu almennings sé af hinu góða? Er upplifunarbransinn að tæma opinberu listasöfnin í stærstu borgum heims af gestum sínum, eða einfaldlega að stækka kökuna?

Myndlist í almannaþágu

Lykilatriðið í opinberri skilgreiningu Alþjóðaráðs safna, ICOM, er að söfn séu óhagnaðardrifnar[1] stofnanir sem „þjóni samfélaginu“ með fjölbreyttum hætti. Þær listasýningar, sem farið hafa sigurför um heiminn og bjóða endurnýjaða upplifun af helstu verkum listasögunnar, standast því ekki kríteríu ICOM á nokkurn máta. Þær eru hagnaðardrifnar, hafa ekki formlegt almannaþjónustuhlutverk, og hafa engum skyldum að gegna að mynda safneign. Þetta eru ekki söfn, þetta er afþreyingariðnaður.

Um er að ræða ýmist fasta- eða farandsýningar, sem bjóða gestum inn í stór rými sem eru tekin alfarið undir eitt listaverk með ljósvörpum úr nokkrum áttum. Þannig er vatnaliljugarði Claude Monet varpað upp í raunstærð, vatninu undir brúnni gefinn hægur straumur, og úr hátölurum ómar fuglasöngur eða froskakvak til að hámarka upplifun áhorfandans. Frumverkið er olía á striga í hlutföllunum 92x73 cm, og það er vandséð hvort það standist lifandi ljósverkinu snúning. Svar við þeirri spurningu veltur alveg örugglega á því hvort áhorfandinn er 14 ára unglingur, eða 44 ára háskólaprófessor.

Almenningi virðist að minnsta kosti standa á slétt sama um formlegar skilgreiningar á söfnum og hlutverki þeirra. Aðsóknartölurnar sýna að fólk er tilbúið að greiða ríflega fyrir upplifun sem listasöfn geta ekki veitt. Tölurnar tala sínu máli; helstu söfn Evrópu hafa ekki náð sér á strik, hvað aðsókn varðar, eftir Covid. Listasöfnin standa þar hallari fæti en náttúru- eða söguminjasöfn og virðast eiga erfiðara með að ná vopnum sínum aftur. Sé horft til smærri safna er útlitið enn svartara. Nýbirt könnun á meðal breskra safna og gallería, með færri en 100.000 gesti árlega, sýnir að þrjár af hverjum fimm stofnunum óttast að þurfa að loka vegna lélegrar aðsóknar og innkomu. Tæplega 60% þeirra segjast enn, árið 2025, ekki hafa náð sér af eftirköstum heimsfaraldursins.

Jóhannes_Sveinsson_Kjarval_8-1280x720
Á olíumálverkinu Skjaldmeyja svífur táknmynd fjallsins, fyrir framan Skjaldbreið með sverð í annarri hendi og skjöld í hinni og þar er ýmislegt á sveimi. Jóhannes S. Kjarval, Skjaldmey, 1961, mynd í eigu Listasafns Reykjavíkur.

Kakan stækkuð

Á sama tíma, um og eftir Covid, hefur upplifunarbransanum vaxið fiskur um hrygg. Hinn virti myndlistarfjölmiðill The Art Newspaper taldi um 100 stofnanir árið 2019 sem byðu gestum alltumlykjandi listaupplifun, en uppfærði töluna í ríflega 350 fyrir lok árs 2024. Miðaverð, sem er jafnan niðurgreitt í hefðbundnum opinberum listasöfnum, er oftar en ekki samkeppnishæft[2fb235]á upplifunarsýningarnar á einkamarkaði. Hvers vegna? Líklega vegna þeirra mannaflsfreku kvaða sem hvíla á söfnum um virka fræðslustarfsemi, varðveislu og rannsóknir. Kvaðir sem einkamarkaðurinn er laus undan.

Árið 2023 skákaði upplifunarrisinn Outernet í London, fyrirtæki í eigu fasteignaþróunarfélagsins Consolidated Developments Ltd, sjálfu British Museum í gestafjölda þegar það tók á móti 6,25 milljónum gesta á sínu fyrsta starfsári. Þess má geta að aðgengi að báðum þessum stofnunum, Outernet og British Museum, er gestum og gangandi ókeypis.

tafla1

Atelier des Lumiéres[8a1e38] í París er jafnan álitin frumgerð upplifunarsafnanna og býður um þessar mundir upp á alltumlykjandi Picasso-sýningu. Miðaverð fyrir fullorðinn gest eru 18 evrur, …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Uppskeruhátíð hagfræðinga

2
Aðrir sálmar

Þjóðarhagsleg rekstrarhagfræði

3
Aðrir sálmar

Stjórnun og traust

4
Vinnumarkaður

Endalok pólska tímabilsins?

5
Efnahagsmál

Burðug sveitarfélög geta stutt við ábyrga hagstjórn

6
Vinnumarkaður

Ofmetur launavísitalan þróun launa?

Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins

Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum
IMG_2494
Umhverfi 35. tbl.

Ís­lensk­ir jökl­ar á hverf­anda hveli

Loftslagsbreytingar hafa mikil áhrif á íslenska jökla. Vegna hlýnunar jarðar hafa jöklarnir minnkað mikið á síðustu áratugum. Ef ekkert verður gert til að draga úr hlýnuninni gætu margir þeirra horfið í framtíðinni.