USD 121,4 0,4%
EUR 138
GBP 160,5
DKK 18,5
SEK 12,3 0,1%
NOK 12,8 0,1%
CHF 146,7 -0,2%
CAD 86 0,2%
JPY 0,8 -0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,6%
Mannfjöldi 396.500
USD 121,4 0,4%
EUR 138
GBP 160,5
DKK 18,5
SEK 12,3 0,1%
NOK 12,8 0,1%
CHF 146,7 -0,2%
CAD 86 0,2%
JPY 0,8 -0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,6%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Kyn­bund­in mis­mun­un hef­ur hindr­að upp­bygg­ingu dans­list­ar á Ís­landi

Aðstöðuleysi, afskiptaleysi og mismunun gerir danslistinni erfitt uppdráttar hérlendis

Konukoppar_WEB-41 credit Owen Fiene
Úr Sundhöll Hafnarfjarðar, mynd frá verkinu Konukroppar eftir Snædísi Lilju Ingadóttur og Sigríði Ástu Olgeirsdóttur, sýnt á Reykjavík Dance Festival, 2024.
Mynd: Owen Fiene

Í samantekt sinni á sögu íslenskrar danslistar veltir Ingibjörg Björnsdóttir[d056a7] (2024) því fyrir sér hvort fjárhagslegt svelti greinarinnar megi rekja til þess að hún er fyrst og fremst borin uppi af konum. Hún spyr hvort dansarar séu ekki teknir alvarlega sem listamenn og sífellt litið á danslistir sem eins konar „litlu systkini“ annarra listgreina. Þessi spurning hefur verið viðloðandi danslistina frá miðri síðustu öld og er jafnbrýn í dag og þegar hún var fyrst sett fram. Frá upphafi hefur danslist notið mun minni fjárhagslegs og skipulagslegs stuðnings en aðrar sviðslistir á Íslandi, þrátt fyrir að vera ein helsta útflutningsgrein þeirra.

Frá frumkvöðlastarfi kvenna til innleiðingar í Þjóðleikhúsið

Á fyrstu áratugum 20. aldar þróaðist danslist samhliða leiklist í Reykjavík, sérstaklega í kringum Leikfélag Reykjavíkur í Iðnó. Fyrstu dansskólarnir, stofnaðir af konum sem höfðu menntað sig erlendis í listdansi og ballett, byggðu á eldmóði þeirra frekar en opinberum stuðningi. Þrátt fyrir faglega uppbyggingu var danslist ekki metin til jafns við aðrar sviðslistir og danssýningar voru skattlagðar meira en leiksýningar og tónleikar. Þrátt fyrir ítrekuð mótmæli var ekki brugðist við þessu óréttlæti sem jók rekstrarkostnað og hindraði vöxt greinarinnar.

Til að berjast gegn þessum hindrunum stofnuðu leiðandi dansarar og kennarar Félag íslenskra listdansara (FÍLD) árið 1947. Markmið félagsins var að gæta hagsmuna danslistafólks, efla viðurkenningu greinarinnar og tryggja henni betri stöðu innan íslensks menningarlífs. FÍLD fékk inngöngu í Bandalag íslenskra listamanna (BÍL) ári seinna en naut í fyrstu ekki sömu virðingar og aðrar listgreinar þar sem stjórn BÍL var eingöngu skipuð körlum á þeim tíma.[b603a1]

Til að efla danslistina enn frekar sameinuðu frumkvöðlarnir kennslu sína í Dansskóla Félags íslenskra listdansara en skólinn varð fljótlega undir í ójafnri samkeppni þegar Listdansskóli Þjóðleikhússins tók til starfa.

Áhrif Þjóðleikhússins og opinberra yfirvalda

Þegar Þjóðleikhúsið var stofnað árið 1950 var danslist ekki gerð að hluta af föstum innviðum þess þrátt fyrir virka þátttöku dansara í sýningum frá upphafi. Skortur á stefnumótun og viljaleysi stjórnenda til að viðurkenna danslist sem jafngilda listgrein höfðu alvarlegar afleiðingar, eins og þegar þjóðleikhússtjóri lagðist gegn þingsályktunartillögu um fastráðningu 15 manna dansflokks. Atvinnudansflokkur var því ekki stofnaður fyrr en 23 árum síðar, árið 1973.

Þegar Listdansskóli Þjóðleikhússins hóf starfsemi árið 1952 var danskennsla nær alfarið færð undir leikhúsið sem leiddi til lokunar sjálfstæðra listdansskóla. Þannig var sjálfstæði greinarinnar skert með enga skýra framtíðarsýn um atvinnudansflokk. Í framhaldi af því gekk Þjóðleikhúsið á bak orða sinna um þátttöku úrvalsnemenda í sýningum, skerti námstíma og í endurteknum tilfellum var ekki ráðið í stöðu danskennara.

Kynbundin mismunun hefur enn fremur haft áhrif á stöðu dansara. Árið 1970 krafðist Þórhildur Þorleifsdóttir sömu launa fyrir dansara og leikara í jólasýningu Þjóðleikhússins en var í kjölfarið rekin. Aðeins eftir hótun leikstjóra sýningarinnar um að hætta var uppsögnin dregin til baka. Atvikið afhjúpaði rótgróinn kynjamismun innan sviðslistanna þar sem dansarar, að mestu konur, voru metnir lægra en samstarfsfólk þeirra.

Sú mismunun heldur enn áfram. Undanfarnar vikur hafa FÍL – Félag íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum[1c5380] – og BÍL – Bandalag íslenskra listamanna[2d0e3d] – vakið athygli á ójöfnum kjörum dansara og danshöfunda í Borgarleikhúsinu þar sem þeir hafa krafist samninga til jafns við leikara og leikritahöfunda. Þrátt fyrir réttmætar kröfur hefur viðurkenning á þessu misrétti gengið hægt sem enn og aftur undirstrikar kerfisbundna vanvirðingu gagnvart danslistafólki.

Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og skýrslur hefur ekki verið ráðist í þessa innviðauppbyggingu ...

Dansnám í dag

Ólíkt tónlistarnámi, sem nýtur víðtæks opinbers stuðnings í gegnum tónlistarskóla landsins, skortir dansnám sambærilega umgjörð og fjármögnun. Flestir ungir dansarar þurfa að greiða há skólagjöld, og aðgengi þeirra að menntun ræðst bæði af búsetu og takmörkuðu framboði námsleiða sem gerir það erfitt að sækja sér frekara nám, bæði innanlands og erlendis. Þrátt fyrir að danslist krefjist sérhæfðrar þjálfunar frá unga aldri, rétt eins og tónlist og íþróttir, hefur skortur á stefnumótun stjórnvalda komið í veg fyrir viðurkennda innviði og stöðugan stuðning. Á sama tíma nýtur íþróttaiðkun, sem krefst sambærilegs aga og líkamlegrar færni, umtalsverðrar opinberrar fjármögnunar, en dansnám hefur ekki …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Alþjóðamál

Aðild að myntbandalagi Evrópusambandsins?

2
Alþjóðamál

Ísland í pilsfaldi Noregs

3
Aðrir sálmar

Einangrað fullveldi

4
Alþjóðamál

Sætið við borðið er síðasta orðið

5
Alþjóðamál

Viðskiptastríðin: Kína, Trump og valdabrölt

6
Efnahagsmál

Kaldur vetur en engin hörmung á fasteignamarkaði

AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels
Aðrir sálmar 30. tbl.

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina
77a0620
Umhverfi 30. tbl.

Ef Ís­land væri borg á meg­in­landi Evr­ópu

Að fenginni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti
Mynd SGG - 1
Opinber fjármál 30. tbl.

Nýtt grunn­við­mið fyr­ir stjórn­ar­hætti op­in­berra að­ila

Daði Már Kristófersson Fjármálaráðherra
Efnahagsmál 29. tbl.

Reikn­að­ur og raun­veru­leg­ur halli á rík­is­sjóði


Peningar
Aðrir sálmar 29. tbl.

Gylfag­inn­ing

og velgengnisrannsókn Ganglera
Mannlíf, miðborg Reykjavíkur
Aðrir sálmar 28. tbl.

Af Atóm­stöð­inni

þar sem tvöfeldni ræður ríkjum og fjárlagafrumvarp er kynnt með verðbættri tekjuöflun
gsf6810
Atvinna 28. tbl.

Er at­vinnu­leysi inn­flytj­enda næmara fyr­ir hag­sveifl­u­m?

Atvinnuleysi innflytjenda á Íslandi er bæði hærra að jafnaði og sveiflast meira með hagkerfinu en atvinnuleysi fólks með íslenskan bakgrunn. Munurinn er skýrastur meðal karla og eldri einstaklinga á vinnumarkaði.