USD 123,6 0,3%
EUR 136,6
GBP 163,5
DKK 18,3
SEK 12,3 -0,4%
NOK 12,9 -0,1%
CHF 147,4 -0,4%
CAD 86,7 0,2%
JPY 0,8 0,1%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
USD 123,6 0,3%
EUR 136,6
GBP 163,5
DKK 18,3
SEK 12,3 -0,4%
NOK 12,9 -0,1%
CHF 147,4 -0,4%
CAD 86,7 0,2%
JPY 0,8 0,1%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

List hins op­in­bera

Um starfslaun listamanna

Harpa
Mynd: Golli

Tilgangur laga um listamannalaun nr. 57/2007 er að efla listsköpun á Íslandi. Sjóðirnir sem hægt er að sækja styrki úr eru ætlaðir sjálfstætt starfandi hönnuðum, myndlistarfólki, rithöfundum, sviðslistafólki, tónlistarflytjendum og tónskáldum. Auk þess er sjóður sem nefnist Vegsemd en úr honum er úthlutað til listafólks sem náð hefur 67 ára aldri. Fyrir árið 2025 var úthlutað samtals 963.200.000 króna úr öllum sjóðum samtals. Alls hlaut 251 einstaklingur laun að þessu sinni.

Þessi fjárhæð og það hvernig hún skiptist er byggt meðal annars á afrakstri umfangsmikillar stefnumótunar á sviði menningar og skapandi greina með það fyrir augum að stuðningur við skapandi greinar aukist jafnt og þétt. Með stuðningnum á að stuðla að fjölbreytni, sköpun og frumkvæði á sviði lista og menningarstarfs.

Hið opinbera rekur eða styður við fjölmörg önnur menningarverkefni eins og Sinfóníuhljómsveit Íslands, Þjóðleikhúsið, Listasafn Íslands, Hörpu og Ríkisútvarpið svo að eitthvað sé nefnt. Þá er stutt við söfn og stofnanir, auk þess að veittir eru styrkir til menningarstarfsemi. Stefnumótun undanfarinna ára hefur skilað sér í því að innleiddir hafa verið ýmsir fjárhagslegir hvatar og ívilnanir fyrir skapandi greinar og menningarstarfsemi og má þar nefna endurgreiðslukerfi vegna kvikmyndagerðar og bókaútgáfu á íslensku, skattafrádrátt vegna rannsóknar- og þróunarverkefna og annarra skattabreytinga, t.d. skattaafslætti. Hið opinbera er því umfangsmikill og virkur þátttakandi í íslensku lista- og menningarlífi.

Gagnrýni á starfslaun listamanna

Það eru skiptar skoðanir uppi á meðal þeirra er vinna í menningar– og listaheimi Íslands, hvort stuðningur hins opinbera sé nægilega mikill og hvort að hann fari alltaf til þeirra sem helst þurfa á honum að halda.

Í hvert skipti sem starfslaunum er úthlutað til listafólks birta helstu fréttaveitur um það fréttir og í kjölfarið hefjast umræður um kjör listafólks á samfélagsmiðlunum. Umræðurnar eru að mestu einsleitar og hverfast í kringum það að opinberu fé sé ausið í óhóflegu magni í vasa listafólks.

Ágúst Ólafur Ágústsson vann skýrsluna „Framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi” fyrir menningar- og viðskiptaráðuneytið sem birtist á prenti vorið 2024. Höfundur heldur því fram að beint framlag menningar og skapandi greina hafi numið 3,5% af landsframleiðslu, eða um 150 milljörðum kr. árið 2023, sem er litlu minna en framlag fiskveiða og fiskeldis. Þá vill Ágúst Ólafur meina að opinber fjárfesting einnar krónu í menningu og skapandi greinum verði að þremur krónum í hagkerfinu. Sé gengið út frá því að útreikningar Ágústs Ólafs séu réttir þá eru úthlutuð starfslaun til listamanna fyrir árið 2025 um 2% af upphæðinni sem hið opinbera veitir til málaflokksins og er 0,64% af því framlagi sem lista- og menningarstarfsemi skapar þjóðarbúinu á hverju ári. Það væri áhugavert að sjá hvaða áhrif það hefði ef greiðslur úr launasjóðum listamanna myndu tvöfaldast? Eða þrefaldast? Miðað við forsendur Ágúst Ólafs ætti hækkun starfslauna úr tæpum einum milljarði í tvo eða þrjá að geta valdið sex til níu milljarða auknum umsvifum í hagkerfinu.

Önnur og alvarlegri gagnrýni á launasjóði listamanna, beinist að stjórnsýslulegum þáttum úthlutana og t.d. því hvernig valið sé í úthlutunarnefndirnar. Þessi gagnrýni litast af ótta margra listamanna við að frændhygli ráði för þegar kemur að úthlutunum. Þessar aðdróttanir eru svo tíðar að forystukona Bandalags íslenskra listamanna fann sig knúna að minnast á þær í ársskýrslu stjórnar bandalagsins frá árinu 2023 en þar segir: „Umræðan um birtingarmyndir jaðarhópa í listgreinum hefur verið áleitin og umræða um aðgengi fólks að listaheiminum og samfélagi listanna hefur verið gagnrýnd. Þær raddir heyrast að umhverfið sé varið af hliðvörðum frændhyglinnar og eigendur hins félagslega auðmagns sitji á því, sjálfum sér og sínum til framgangs.”

Ein af ástæðum þess að listafólk gruni að frændhygli geti ráðið för við úthlutanir er sú staðreynd að fagfélög listafólks velja sjálf fulltrúa í úthlutunarnefndirnar. Þessir fulltrúar eru undantekningarlaust úr sömu fagstétt. Í jafnfámennu þjóðfélagi og íslensku þá kannast nánast allir við þá sem tilheyra sama fagfélagi, svo óttinn um að mögulega séu einhverjar úthlutanir gerðar af tilfinningasemi eða persónulegum hvötum geta átt við rök að styðjast.

... ætti löggjöf og stefnumótun á sviði lista- og menningarmála að taka mið af því að íslenskt samfélag er að breytast hratt ...

Stjórnsýsla menningar- og listastarfsemi á Íslandi

Rannsóknarmiðstöð Íslands (Rannís) fer með umsýslu er varðar listamannalaun á Íslandi. Rannís heyrir undir menningar- og viðskiptaráðuneytið og starfar á grundvelli laga um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Uppskeruhátíð hagfræðinga

2
Aðrir sálmar

Þjóðarhagsleg rekstrarhagfræði

3
Aðrir sálmar

Stjórnun og traust

4
Vinnumarkaður

Endalok pólska tímabilsins?

5
Efnahagsmál

Burðug sveitarfélög geta stutt við ábyrga hagstjórn

6
Vinnumarkaður

Ofmetur launavísitalan þróun launa?

Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins

Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum
IMG_2494
Umhverfi 35. tbl.

Ís­lensk­ir jökl­ar á hverf­anda hveli

Loftslagsbreytingar hafa mikil áhrif á íslenska jökla. Vegna hlýnunar jarðar hafa jöklarnir minnkað mikið á síðustu áratugum. Ef ekkert verður gert til að draga úr hlýnuninni gætu margir þeirra horfið í framtíðinni.