USD 125,7 -0,2%
EUR 143,0 -0,3%
GBP 167,4 -0,4%
DKK 19,1 -0,3%
SEK 12,9 0,1%
NOK 13,1 0,3%
CHF 153,7 -0,4%
CAD 89,2 -0,2%
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 395.050
USD 125,7 -0,2%
EUR 143,0 -0,3%
GBP 167,4 -0,4%
DKK 19,1 -0,3%
SEK 12,9 0,1%
NOK 13,1 0,3%
CHF 153,7 -0,4%
CAD 89,2 -0,2%
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 395.050
Til baka

„Meiri þörf að koma upp frjórri kaup­manna­stétt“

Viðskiptamódel Ragnars Jónssonar í Smára, er til umfjöllunar í þessari grein af tilefni þess að 120 ár voru liðin frá fæðingu hans fyrr í mánuðinum. Margt má læra af sögunni og einum allra hugmyndaríkasta athafnamanni síðustu aldar hérlendis.

ragnarismara_20.2.2024
Ragnar Jónsson í Smára.
Mynd: Úr einkasafni

Árið 1974 spurði Gylfi Gíslason myndlistarmaður Ragnar í Smára að því hvað hann hafi ætlaði sér að verða þegar hann var að alast upp. „Ég ætlaði mér alltaf að verða prestur,“ svaraði Ragnar enda hefði hann sem strákur haft mikinn áhuga fyrir trúmálum og kirkjuferðum. „Og hvað kom til að þú gerðir ekki alvöru úr þessu?“ spurði Gylfi. „Vegna þess að mér fannst vera meiri þörf að koma upp frjórri kaupmannastétt,“ útskýrði Ragnar. Umræddu viðtali var útvarpað í tilefni af sjötugsafmæli þessa litríka iðnrekanda og um þessar mundir er ástæða til að minnast 120 ára afmælis hans. Ragnar leitaði nefnilega ýmissa leiða til að frjóvga kaupmennsku sína og annarra og má enn margt af honum læra.

Smjörlíki, sápa og brennisteinn

Einar Ragnar Jónsson, eins og hann hét fullu nafni, fæddist í Mundakoti á Eyrarbakka 7. febrúar 1904 og átti ekki langt að sækja athafnasemina. Faðir hans, Jón Einarsson, var bóndi, útgerðarmaður og hreppstjóri. Það var hins vegar móðirin, Guðrún Jóhannsdóttir, sem kenndi Ragnari að meta bókmenntir og konurnar á hinu hálfdanska menningarheimili Húsinu þar í bænum sem kynntu hann fyrir tónlist og myndlist.

smjorliki-19290119i1p5
Smjörlíkisgerðin var eitt af fyrstu iðnfyrirtækjum landsins, stofnað árið 1919.
Mynd: Fálkinn, 1929

Að lokinni útskrift úr Verzlunarskólanum 1922 hóf Ragnar störf sem sölumaður hjá Smjörlíkisgerðinni sem hafði verið stofnuð af Gísla Guðmundssyni gerlafræðingi ásamt fleirum þremur árum fyrr. Þangað réði sig líka annar ungur maður með viðskiptavit og menningaráhuga, Þorvaldur Thoroddsen, en afi hans var Jón Thoroddsen sýslumaður, höfundur skáldsagnanna Pilts og stúlku og Manns og konu. Á meðan Ragnar fór gjarnan með himinskautum þótti Þorvaldur „með afbrigðum ósérframtrönulegur maður,“ svo vitnað sé til orða Halldórs Laxness.

Við andlát Gísla gerlafræðings árið 1928 keyptu Þorvaldur og Ragnar Smjörlíkisgerðina. Hafði hvorugur þeirra náð þrítugsaldri og voru þeir ómeðvitaðir um að heimskreppan væri á næsta leyti. Reksturinn við Veghúsastíg 7 dafnaði engu að síður í höndum þeirra á fjórða áratugnum og í stríðsbyrjun var verksmiðjan orðin að þrjátíu manna vinnustað sem framleiddi ekki aðeins Smára-smjörlíki og Bláa borðann heldur líka hreinlætis- og snyrtivörur undir merkjum sápugerðarinnar Mána.

Seint á fjórða áratugnum tóku þeir félagar einnig þátt í að byggja upp brennisteinsvinnslu í Mývatnssveit ásamt Jóni Erlendssyni Vestdal en sú vegferð var kostnaðarsöm og endaði illa. Fyrsta verksmiðjuhúsið var smíðað úr timbri og brann, það næsta var steypt upp á skömmum tíma og sprakk en í þriðju tilraun, eftir viðgerð á húsinu, bráðnaði bræðslupotturinn. Vegna ástandsins í Evrópu var útilokað að panta nýjan pott að utan og fór svo að námuvinnsluleyfið rann út og fékkst ekki endurnýjað að stríði loknu.

heimsljos-19551210i1p1
Auglýsing bókaútgáfunnar Helgafells í Þjóðviljanum 1955.

Tímabundin trú á sigur kommúnismans

Þátttaka Ragnars í lista- og menningarlífinu hófst líka á fjórða áratugnum. Árið 1932 stofnuðu þeir Þorvaldur, ásamt tíu öðrum, Tónlistarfélag Reykjavíkur sem var bakjarl Hljómsveitar Reykjavíkur og Tónlistarskólans í Reykjavík. Félagið skipulagði einnig ýmsa tónlistarviðburði í bænum, þar með talið óperettusýningar og stóra kórtónleika, og stóð að heimsóknum þekktra erlenda listamanna til landsins. Tólfmenningarnir í stjórninni voru gjarnan kallaðir postular en Ragnar var formaður félagsins frá upphafi til æviloka. Frá og með árinu 1936 var hann einnig virkur þátttakandi í íslenskri bókaútgáfu.

Til að byrja með starfaði Ragnar með helsta menningarpáfa vinstri manna, Kristni E. Andréssyni, að útgáfu á vegum Rauðra penna, Heimskringlu og Máls og menningar. Reynsla iðnrekandans við að selja smjörlíki og sápu nýttist vel á nýjum vettvangi. Honum fannst t.d. kjörið að selja bækur þeirra í Kaupfélagi Reykjavíkur og nágrennis sem sósíalistar ráku og var með tíu útsölustaði á suðvesturhorninu. Það má líka greina handbragð Ragnars á myndskreyttum auglýsingabæklingi um Halldór Kiljan Laxness sem Heimskringla dreifði til almennings þegar þriðja bindi Heimsljóss kom út 1939. „Halldór er þegar, þótt ungur sé, kominn í tölu fremstu skálda, sem nú eru uppi,“ sagði þar meðal annars. Sama ár keypti Ragnar prentsmiðjuna Víkingsprent, bæði til að prenta nýjar bækur og tryggja útgáfuna á Þjóðviljanum, pólitísku málgagni sósíalistaflokksins.

Sú frjóa kaupmannastétt sem Ragnar tilheyrði lagði sig fram um að græða á daginn og sækja tónleika og listsýningar á kvöldin. En hún gerði gott betur. …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Akkiles og fimm stoðir alþjóðageirans íslenska

2
Orkumál

Hin ónotaða auðlind Íslands

3
Orkumál

Verðvernd í krafti vindorku

4
Nýsköpun

Hvar eiga skapandi greinar heima í nýrri atvinnustefnu?

Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Hin ónot­aða auð­lind Ís­lands

Vindorka gæti orðið lykill að orkuskiptum, lægra orkuverði og aukinni samkeppnishæfni Íslands.
Peningar, seðlar, krónur
Efnahagsmál 22. tbl.

Akki­les og fimm stoð­ir al­þjóða­geirans ís­lenska

Lífskjör Íslendinga ráðast sífellt meira af fjölbreyttum útflutningi.
Harpa
Nýsköpun 22. tbl.

Hvar eiga skap­andi grein­ar heima í nýrri at­vinnu­stefn­u?

Skapandi greinar eru verðmætari fyrir atvinnulíf og samfélag en hefðbundnir hagvísar gefa til kynna.
Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Verð­vernd í krafti vind­orku

Vindorka getur aukið raforkuframboð, lækkað kostnað og stutt orkuskipti með minni umhverfisáhrifum.

pexels-rinoadamo-34586065
Sjálfbærni 22. tbl.

Líf­fræði­leg fjöl­breytni — áhrif og ábyrgð fyr­ir­tækja

Líffræðileg fjölbreytni er undirstaða samfélags, atvinnulífs og þeirrar velferðar sem við njótum.
OR89708
Orkumál 22. tbl.

Heitasta tæki­færið: Þeg­ar vís­indi og þekk­ing opna nýj­ar vídd­ir í jarð­hita

Djúpnýting jarðhita gæti margfaldað orkuvinnslu og markað næstu byltingu í íslenskum orkumálum.
Hellisheiði dsf7264
Efnahagsmál 22. tbl.

At­vinnu­stefna til 2035: Óraun­hæf og mót­sagna­kennd mark­mið

Getur hagkerfið vaxið endalaust á plánetu þar sem auðlindir eru takmarkaðar?
Raforka, raflínur
Orkumál 22. tbl.

Fram­tíð­in og fjöregg­ið okk­ar

Raforkumarkaðir snúast ekki aðeins um verð heldur einnig um orkuöryggi og stöðugleika.