USD 121,4 0,4%
EUR 138
GBP 160,5
DKK 18,5
SEK 12,3 0,1%
NOK 12,8 0,1%
CHF 146,7 -0,2%
CAD 86 0,2%
JPY 0,8 -0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,6%
Mannfjöldi 396.500
USD 121,4 0,4%
EUR 138
GBP 160,5
DKK 18,5
SEK 12,3 0,1%
NOK 12,8 0,1%
CHF 146,7 -0,2%
CAD 86 0,2%
JPY 0,8 -0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,6%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Mörg kíló af ný­sköp­un

á mismunandi syllum hugbúnaðargeirans

jonas-hallgrims
Mynd: Golli

Þegar Friðrik Skúlason fór að selja vírusavarnir um allan heim seint á síðustu öld kom upp ákveðið vandamál. Útflutningsskýrslur kröfðust þess að menn tilgreindu hversu mörg kíló útflutningurinn hefði verið. Eftir talsvert stapp fékkst þessu breytt og Ísland hætti að vera einvörðungu frumframleiðsluhagkerfi.

Frá því internetinu og EES skolaði á strendur okkar hefur staðan gjörbreyst. Nýsköpun hefur verið ástunduð af miklum krafti í flestum útflutningsgeirum með verulegum árangri. Sumt hefur gengið vel, annað síður eins og gengur en heildarstaðan er jákvæð.

Okkur hefur tekist að slíta þetta frá frumframleiðsluhagkerfinu en nýta reynslu þaðan til að byggja upp stöndugan útflutning.

Í hugbúnaðargeiranum hefur byggst upp þekking og reynsla sem kemur nú hverju nýsköpunarfyrirtækinu á fætur öðru á koppinn, þar sem erlendar tekjur myndast upp úr engu. Það þarf ekki að virkja neitt aukreitis til að knýja fartölvurnar sem kóðinn er smíðaður á, þetta er alfarið bókvit sem sett er í askana.

Fjárfesting í syllum

Viðhorfsbreyting hefur orðið gagnvart tilraunum. Verkefni sem ná ekki flugi skila reynslu sem hægt er að byggja næstu verkefni á, sem er dýrmætt.

Þau sem unnið hafa að útflutningsverkefnum í hugbúnaði hafa uppgötvað það hvað heimurinn er stór. Svo stór að jafnvel þegar mörkuðum er skipt upp og sótt er inn á ákveðnar syllur, sem hljóma eins og óttalegt smotterí í íslensku samhengi, getur verið eftir miklu að slægjast.

Skalinn er ótrúlegur. Miðasala fyrir 142 milljarða króna um allan heim rann í gegnum kerfi Mobilitus á árinu 2018. Calidris sá um bestanir á bókunum fyrir stærstu flugfélög heims. CCP hefur fengið hundruð þúsunda til að greiða áskrift að tölvuleik, suma svo árum skiptir.

Aðgengi hugbúnaðargeirans að alþjóðlegum mörkuðum er gott því EES hefur opnað fyrir vinnu Íslendinga erlendis. Þeir skila sér oft til baka í nýsköpunarbransann reynslunni ríkari eftir að hafa fundið vannýtta syllu til að sinna.

Fyrrum starfsmaður Expedia sneri heim og stofnaði KEEPS sem býr til kerfi til að skipta út öllum myndum hótela á pöntunarsíðum. Þúsundir hótela sinnum þúsund kallar á mánuði búa til fínt viðskiptalíkan – upp úr engu nema hugviti.

Þekking á notkun tölvusjónar við að skera niður fiska og fugla nýtist nú sprotafyrirtækinu ELVA GOLF til að bæta golfsveifluna hjá fólki. /

Þekking á útreiknaðri bestun framleiðsluferla er undirstaða PLAIO sem sérhæfir sig í að aðstoða lyfjaframleiðslufyrirtæki að minnka sóun og auka skilvirkni.

Íslenskt fyrirtæki, NeckCare, hefur þróað búnað sem getur bent á hvar nákvæmlega hálsmeiðsli séu, sem eru stórstígar framfarir frá gömlu „Er þetta vont núna? En núna?“ aðferðinni.

Það eru tugir svona íslenskra fyrirtækja á alþjóðamörkuðum sem væri hægt að nefna og ný bætast stöðugt við. Þau eru gjarnan ósýnileg því þau selja lítið sem ekkert á íslenskum markaði og láta því ekkert á sér bera. Allt púðrið er sett í að koma sér á framfæri á sinni syllu erlendis.

Það er helst að tekið sé eftir þeim þegar starfsmenn og eigendur skila sér inn á hátekjulistana eftir að fyrirtækið var selt erlendu stórfyrirtæki.

... ljúft og skylt að benda á að lífið væri einfaldara í þessum geira ef gjaldmiðillinn hoppaði ekki og skoppaði ...

Stuðningur og styrkir

Við höfum byggt upp gott og skilvirkt stuðningskerfi við að koma …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Alþjóðamál

Aðild að myntbandalagi Evrópusambandsins?

2
Alþjóðamál

Ísland í pilsfaldi Noregs

3
Aðrir sálmar

Einangrað fullveldi

4
Alþjóðamál

Sætið við borðið er síðasta orðið

5
Alþjóðamál

Viðskiptastríðin: Kína, Trump og valdabrölt

6
Efnahagsmál

Kaldur vetur en engin hörmung á fasteignamarkaði

AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels
Aðrir sálmar 30. tbl.

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina
77a0620
Umhverfi 30. tbl.

Ef Ís­land væri borg á meg­in­landi Evr­ópu

Að fenginni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti
Mynd SGG - 1
Opinber fjármál 30. tbl.

Nýtt grunn­við­mið fyr­ir stjórn­ar­hætti op­in­berra að­ila

Daði Már Kristófersson Fjármálaráðherra
Efnahagsmál 29. tbl.

Reikn­að­ur og raun­veru­leg­ur halli á rík­is­sjóði


Peningar
Aðrir sálmar 29. tbl.

Gylfag­inn­ing

og velgengnisrannsókn Ganglera
Mannlíf, miðborg Reykjavíkur
Aðrir sálmar 28. tbl.

Af Atóm­stöð­inni

þar sem tvöfeldni ræður ríkjum og fjárlagafrumvarp er kynnt með verðbættri tekjuöflun
gsf6810
Atvinna 28. tbl.

Er at­vinnu­leysi inn­flytj­enda næmara fyr­ir hag­sveifl­u­m?

Atvinnuleysi innflytjenda á Íslandi er bæði hærra að jafnaði og sveiflast meira með hagkerfinu en atvinnuleysi fólks með íslenskan bakgrunn. Munurinn er skýrastur meðal karla og eldri einstaklinga á vinnumarkaði.