USD 125,7 -0,2%
EUR 143,0 -0,3%
GBP 167,4 -0,4%
DKK 19,1 -0,3%
SEK 12,9 0,1%
NOK 13,1 0,3%
CHF 153,7 -0,4%
CAD 89,2 -0,2%
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 395.050
USD 125,7 -0,2%
EUR 143,0 -0,3%
GBP 167,4 -0,4%
DKK 19,1 -0,3%
SEK 12,9 0,1%
NOK 13,1 0,3%
CHF 153,7 -0,4%
CAD 89,2 -0,2%
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 395.050
Til baka

Sam­ræmi milli stefnu og þró­un­ar ný­sköp­un­ar í at­vinnu­líf­inu

Rannsókn á nýsköpunarstefnu á Íslandi á árunum 2003–2022 leiðir í ljós að raunvöxtur er ekki umfram vöxt hagkerfisins í heild – þrátt fyrir vaxandi stuðningsútgjöld ríkisins til fyrirtækja!

Gróska
Mynd: Kristinn Ingvarsson / Háskóli Íslands

Ísland hefur á síðustu áratugum þróað stefnu um nýsköpun sem miðast við að móta sjálfbært, þekkingardrifið samfélag. Þar sem þjóðin hefur sögulega treyst á fáar, auðlindamiðaðar atvinnugreinar, sjávarútveg, orkufrekan iðnað og síðar ferðaþjónustu, hefur kapp verið lagt á að byggja upp fjórðu stoð atvinnulífsins sem byggir á hugviti, rannsóknum og tækni.

Árið 2003 voru sett fyrstu heildstæðu lögin um stuðning við vísindarannsóknir og nýsköpun, sem markaði upphaf samræmdrar nýsköpunarstefnu stjórnvalda. Frá þeim tíma hefur stuðningurinn tekið miklum breytingum, stefna og aðgerðaáætlanir hafa verið endurskoðaðar reglulega, fjármögnun aukist og áherslur breyst í takt við alþjóðlega þróun og innlendar áskoranir. Í þessari grein, sem byggð er á hluta af rannsóknarverkefni höfunda, er stiklað á stóru í tveggja áratuga þróun nýsköpunarstefnu á Íslandi í tengslum við starfsemi Vísinda- og tækniráðs. Markmiðið er að meta árangur, samræmi milli stefnu og raunverulegrar þróunar og leggja mat á framtíðarmöguleika.

Nýsköpunarstefna

Upphaf samræmdrar nýsköpunarstefnu íslenskra stjórnvalda má rekja til þriggja frumvarpa sem lögfest voru árið 2003. Þessi lög skilgreindu rammann fyrir opinberan stuðning við rannsóknir og tækni, stofnuðu Vísinda- og tækniráð og innleiddu kerfi styrkja og ráðgjafar sem byggði á evrópskum og norrænum fyrirmyndum. Þessi stefnumótun markaði brotthvarf frá nálgun liðinna ára, þar sem ábyrgð á rannsóknum og þróun var dreifð á milli ráðuneyta.

Fyrir árið 2003 byggði stuðningur stjórnvalda við rannsóknir og þróun (R&Þ) fyrst og fremst á hugmyndum um nýsköpun til vaxtar þar sem almennur stuðningur við R&Þ átti að fjarlægja markaðsbresti og skapa skilyrði fyrir verðmætasköpun. Stefnan sem sett var fram árið 2003 byggði hins vegar að stórum hluta á hugmyndum um nýsköpunarkerfi þar sem lögð var áhersla á samspil ólíkra hagaðila – ríkisvalds, háskóla, rannsóknastofnana og atvinnulífs. Á síðari hluta tímabilsins verður aukin áhersla á hugmyndina um nýsköpun til umbreytingar, þar sem nýsköpun er notuð til að bregðast við samfélagslegum áskorunum á borð við loftslagsmál, lýðheilsu og stafræna umbreytingu.

Stefnuskjölin sem Vísinda- og tækniráð gaf út með reglulegu millibili (2004, 2006–2009, 2010–2012, 2014–2016, 2017–2019, 2020–2022) endurspegla þessar breytingar í áherslum. Frá því að leggja áherslu á grunnrannsóknir og tæknidrifna nýsköpun þróaðist stefnan yfir í markvissari útfærslu á stuðningi við nýsköpun í víðari skilningi, með áherslu á mælanlegan árangur, hagnýtar rannsóknir, skattaívilnanir og markáætlanir tengdar skapandi greinum, heilbrigðismálum og umhverfisvernd.

Stuðningsaðgerðir

Til að ná markmiðum sínum hafa íslensk stjórnvöld smíðað fjölbreytt kerfi sem miðar að því að örva nýsköpun á öllum stigum ferlisins – frá hugmynd að markaði. Helstu stuðningsaðgerðir eru:

  • Samkeppnissjóðir: Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður eru helstu stuðningssjóðir hins opinbera í nýsköpun. Á tímabilinu 2004 til 2022 margfölduðust fjárframlög til þessara sjóða: úr um 500 milljónum í yfir 7 milljarða og hafa vaxið enn frekar á síðustu árum. Þessir sjóðir styðja við grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir og nýsköpunarverkefni. Sjóðirnir hafa orðið lykilstoð í vistkerfi íslenskrar nýsköpunar, ekki síst með eflingu samstarfs milli háskóla og atvinnulífs.
  • Endurgreiðsla rannsóknar- og þróunarkostnaðar: Frá árinu 2009 hefur verið í gildi kerfi sem veitir fyrirtækjum endurgreiðslu vegna kostnaðar sem tengist rannsóknum og þróun. Með tímanum varð þetta kerfi umfangsmesta einstaka stuðningsaðgerð ríkisins á sviði nýsköpunar. Árið 2022 námu þessar endurgreiðslur yfir 10 milljörðum króna og hafa vaxið enn frekar …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Akkiles og fimm stoðir alþjóðageirans íslenska

2
Orkumál

Hin ónotaða auðlind Íslands

3
Orkumál

Verðvernd í krafti vindorku

4
Nýsköpun

Hvar eiga skapandi greinar heima í nýrri atvinnustefnu?

Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Hin ónot­aða auð­lind Ís­lands

Vindorka gæti orðið lykill að orkuskiptum, lægra orkuverði og aukinni samkeppnishæfni Íslands.
Peningar, seðlar, krónur
Efnahagsmál 22. tbl.

Akki­les og fimm stoð­ir al­þjóða­geirans ís­lenska

Lífskjör Íslendinga ráðast sífellt meira af fjölbreyttum útflutningi.
Harpa
Nýsköpun 22. tbl.

Hvar eiga skap­andi grein­ar heima í nýrri at­vinnu­stefn­u?

Skapandi greinar eru verðmætari fyrir atvinnulíf og samfélag en hefðbundnir hagvísar gefa til kynna.
Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Verð­vernd í krafti vind­orku

Vindorka getur aukið raforkuframboð, lækkað kostnað og stutt orkuskipti með minni umhverfisáhrifum.

pexels-rinoadamo-34586065
Sjálfbærni 22. tbl.

Líf­fræði­leg fjöl­breytni — áhrif og ábyrgð fyr­ir­tækja

Líffræðileg fjölbreytni er undirstaða samfélags, atvinnulífs og þeirrar velferðar sem við njótum.
OR89708
Orkumál 22. tbl.

Heitasta tæki­færið: Þeg­ar vís­indi og þekk­ing opna nýj­ar vídd­ir í jarð­hita

Djúpnýting jarðhita gæti margfaldað orkuvinnslu og markað næstu byltingu í íslenskum orkumálum.
Hellisheiði dsf7264
Efnahagsmál 22. tbl.

At­vinnu­stefna til 2035: Óraun­hæf og mót­sagna­kennd mark­mið

Getur hagkerfið vaxið endalaust á plánetu þar sem auðlindir eru takmarkaðar?
Raforka, raflínur
Orkumál 22. tbl.

Fram­tíð­in og fjöregg­ið okk­ar

Raforkumarkaðir snúast ekki aðeins um verð heldur einnig um orkuöryggi og stöðugleika.