USD 125,7 -0,2%
EUR 143,0 -0,3%
GBP 167,4 -0,4%
DKK 19,1 -0,3%
SEK 12,9 0,1%
NOK 13,1 0,3%
CHF 153,7 -0,4%
CAD 89,2 -0,2%
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 395.050
USD 125,7 -0,2%
EUR 143,0 -0,3%
GBP 167,4 -0,4%
DKK 19,1 -0,3%
SEK 12,9 0,1%
NOK 13,1 0,3%
CHF 153,7 -0,4%
CAD 89,2 -0,2%
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 395.050
Til baka

Ör­smá en áhrifa­mik­il

Framleiðniaukning örfyrirtækja í upplýsingatækni gefur merkilega innsýn í framtíð vinnumarkaðarins!

Einhyrningur
Einmennings einhyrningsfyrirtæki gætu farið að birtast í íslensku efnahagslífi. Myndin er gerð með aðstoð myndvinnslu-gervigreindar á skrifstofu útgáfufélags blaðsins.
Mynd: ChatGPT

Notkun gervigreindar getur margfaldað afköst starfsmanna. Sú þróun er þegar vel á veg komin í fyrirtækjum í upplýsingatækni, þar sem sjálfvirknivæðing verkferla er sjálfsagður hluti vinnunnar og framleiðni fyrirtækja, sérstaklega nanó fyrirtækja,[cfcf69] eykst mjög hratt.

Staða fyrirtækja í upplýsingatækni

Upplýsingatæknifyrirtæki eru í fararbroddi gervigreindarbyltingarinnar sem nú á sér stað – bæði hvað varðar notkun á tækninni og þróun hennar – enda má segja að þessi fyrirtæki séu þar á heimavelli. Fyrir upplýsingatæknifyrirtæki er þetta eitt skref af mörgum í þróun á verkfærum til að fækka handtökum, auka sjálfvirkni og bæta bæði afköst og gæði. Afleiðingin er sú að framleiðni í upplýsingatækni er meiri en í öðrum geirum og hefur meira en tvöfaldast frá 2008.

Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands voru árið 2020 alls 1.109 fyrirtæki starfandi í upplýsingatækni, sjá mynd 2.

Um 67% þessara fyrirtækja voru eins manns fyrirtæki og 85% voru fyrirtæki með færri en 5 starfsmönnum. Eins og sjá má á mynd 2 þá sker þetta ár sig ekki úr, svona hefur þessi bransi verið frá upphafi.

Gögn frá Hagstofunni sýna jafnframt að nanó fyrirtækin leiða verðmætasköpun í geiranum, (tekjur eru raunvirtar til 2020) eins og dregið er fram á mynd 3. Framleiðni hjá einyrkjunum jókst um 330% að raunvirði (úr 2,77 mkr. í 11,9 mkr.) og framleiðni 2–4 manna fyrirtækja jókst um 212%. Önnur fyrirtæki sýna líka mikla framleiðniaukningu á tímabilinu.

Að baki þessari framleiðniaukningu liggur markviss notkun á betri tækni, aðlögun að nýjungum og fjárfesting í rannsókn og þróun.

Síðan árið 2020 hefur fjarvinna aukist verulega og einnig hafa komið fram sífellt öflugri gervigreindarlausnir á tímabilinu. Þó ekki séu aðgengilegar nýrri tölur er ljóst af mynd 1 að framleiðni í upplýsingatækni hefur haldið áfram að aukast.

mynd1
mynd2

Hverju skilar þetta?

Helsti veikleiki íslensks vinnumarkaðar er smæðin. Við erum fá. Of fá til að geta mannað mörg stórfyrirtæki eða byggt upp mannfrekar greinar án stórtæks innflutnings vinnuafls. Meðalstærð íslensks fyrirtækis í viðskiptahagkerfinu í (ekki bara í upplýsingatækni) er um 4 starfsmenn og hefur haldist svipaður a.m.k. undanfarin 15 ár.

Við ættum því að taka tveim höndum tækni sem styður við nanó fyrirtæki og hjálpar þeim að auka verðmætasköpun án fjölgunar starfsfólks.

Sú tæknibylting sem við erum að upplifa núna er ekki bundin við upplýsingatæknifyrirtæki. Hún byggir ekki bara á gerð upplýsingatæknikerfa, heldur fyrst og fremst á notkun hennar, til að styrkja og styðja við meginstarfsemi fyrirtækja. Þarna er ekki lausnin að skella hroðvirknislega smíðuðu spjallmenni á vefsíðuna og kalla það innleiðingu á gervigreind. Heldur miklu fremur innleiðingu á borð við það sem Háskólinn á Akureyri er að gera,[1321f6] sem er að innleiða gervigreindarkerfi sem veitir aðgang að afar stóru safni heimilda og ritrýndra fræðigreina. Þetta kerfi hjálpar til við að greina heimildir, draga fram samhengi og auka gagnsæi. Það styður við og styrkir meginstarfsemi skólans án þess að rýra gæði hans.

Á Covid-árunum vöndumst við því að vinna sjálfstætt – fjarri okkar nánustu samstarfsmönnum sem geta nú verið hvar sem er í heiminum. Okkur finnst það mörgum ágætt – nema þeim sem eiga tómar skrifstofubyggingar, sem þau keppast við að breyta í samnýtt vinnusvæði. En það er líka gott að fara þangað og hitta aðra frumkvöðla annað slagið. Kaffistofuspjallið er enn þá mikilvægt.

Þannig að þetta hefðbundna fyrirtækjaform er að brotna upp. Sérfræðingar stofna sín eigin fyrirtæki, útvista sumu og fá gervigreindina til að hjálpa til með annað. Svo koma þessi nanó fyrirtæki saman í stærri verkefni – tímabundið – þegar stóra verkefnið krefst fjölbreyttari mannskapar. Svona eins og í öðrum skapandi greinum eins og …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Akkiles og fimm stoðir alþjóðageirans íslenska

2
Orkumál

Hin ónotaða auðlind Íslands

3
Orkumál

Verðvernd í krafti vindorku

4
Nýsköpun

Hvar eiga skapandi greinar heima í nýrri atvinnustefnu?

Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Hin ónot­aða auð­lind Ís­lands

Vindorka gæti orðið lykill að orkuskiptum, lægra orkuverði og aukinni samkeppnishæfni Íslands.
Peningar, seðlar, krónur
Efnahagsmál 22. tbl.

Akki­les og fimm stoð­ir al­þjóða­geirans ís­lenska

Lífskjör Íslendinga ráðast sífellt meira af fjölbreyttum útflutningi.
Harpa
Nýsköpun 22. tbl.

Hvar eiga skap­andi grein­ar heima í nýrri at­vinnu­stefn­u?

Skapandi greinar eru verðmætari fyrir atvinnulíf og samfélag en hefðbundnir hagvísar gefa til kynna.
Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Verð­vernd í krafti vind­orku

Vindorka getur aukið raforkuframboð, lækkað kostnað og stutt orkuskipti með minni umhverfisáhrifum.

pexels-rinoadamo-34586065
Sjálfbærni 22. tbl.

Líf­fræði­leg fjöl­breytni — áhrif og ábyrgð fyr­ir­tækja

Líffræðileg fjölbreytni er undirstaða samfélags, atvinnulífs og þeirrar velferðar sem við njótum.
OR89708
Orkumál 22. tbl.

Heitasta tæki­færið: Þeg­ar vís­indi og þekk­ing opna nýj­ar vídd­ir í jarð­hita

Djúpnýting jarðhita gæti margfaldað orkuvinnslu og markað næstu byltingu í íslenskum orkumálum.
Hellisheiði dsf7264
Efnahagsmál 22. tbl.

At­vinnu­stefna til 2035: Óraun­hæf og mót­sagna­kennd mark­mið

Getur hagkerfið vaxið endalaust á plánetu þar sem auðlindir eru takmarkaðar?
Raforka, raflínur
Orkumál 22. tbl.

Fram­tíð­in og fjöregg­ið okk­ar

Raforkumarkaðir snúast ekki aðeins um verð heldur einnig um orkuöryggi og stöðugleika.