USD 125,7 0,1%
EUR 143,4 0,1%
GBP 168,5 0,3%
DKK 19,2 0,1%
SEK 13,0
NOK 12,9
CHF 154,9 0,2%
CAD 89,3 0,4%
JPY 0,8
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,2%
Mannfjöldi 395.050
USD 125,7 0,1%
EUR 143,4 0,1%
GBP 168,5 0,3%
DKK 19,2 0,1%
SEK 13,0
NOK 12,9
CHF 154,9 0,2%
CAD 89,3 0,4%
JPY 0,8
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,2%
Mannfjöldi 395.050
Til baka

Sag­an af Flot­hett­u: Hvern­ig verð­ur ný­sköp­un til?

Heilsueflandi afrakstur úr Listaháskóla Íslands.

Flothetta
Mynd: Gunnar Svanberg

Það er kannski ekki svo undarlegt að í landi vatnsauðlegðar verði til hönnunarverkefni sem gangi út á að útvíkka notkunarmöguleika okkar í að vinna með vatnið til heilsueflingar. En þannig kom hugmyndin að flothettunni, sem er fómfyllt hetta sem veitir höfði flotstuðning í vatni, til greinarhöfundar sem þá var nemi í vöruhönnun í Listaháskóla Íslands árið 2011.

Daglegar sundferðir og náin tengsl okkar Íslendinga við heita vatnið er frjór jarðvegur fyrir framúrstefnulega hönnun, líkt og flothettu. Fljótlega eftir að flothettan leit dagsins ljós hélt ferlið áfram við að hanna upplifanir fyrir fólk að koma saman til að nota vöruna. Hönnunin hefur náð að skapa heim upplifana og nærandi samveru í vatni. Fyrir utan að efla heilsu og hamingju þjóðar þá er verkefnið atvinnu- og verðmætaskapandi og teygir anga sína inn í heim heilsu, endurhæfingar og ferðaþjónustu.

Hugmyndafræði Flothettu gengur út á að hvíla í vatni í algjöru þyngdarleysi, umlukin vatninu. Þetta góða slökunar- og vellíðunarástand skapar kjöraðstæður fyrir endurnærandi og áhrifaríka streitulosun og dregur úr verkjum í vöðva- og stoðkerfi líkamans. Fyrirbærið Flotmeðferð er margþætt og úthugsuð vatnsmeðferð. Ferlið er hannað með það að leiðarljósi að þátttakendur upplifi djúpa slökun, vellíðan og endurnæringu. Í meðferðinni er boðið upp á meðhöndlun og nudd á meðan flotið er. Allt miðar þetta að því að næra og örva heilbrigt orkuflæði líkamans og losa út neikvæð áhrif streitu.

Hönnun á flotstuðningsvörum

Upphafleg hönnun fyrirtækisins var höfuðfatið Flothetta, gerð til að veita höfði flotstuðning í vatni. Síðan flothettan kom á markað hefur átt sér stað framsækin hönnun á fleiri flotstuðningsvörum sem taka tillit til ólíkra þarfa og líkamsgerða. Í dag býður fyrirtækið bæði upp á fjölbreytta vörulínu til að njóta flotslökunar, og einnig hafa orðið til hannaðar upplifanir og aðferðafræði í formi vatnsmeðferðar og viðburðarmenningar í vatni. Þannig hefur fyrirtækið skapað sér algera sérstöðu á alþjóðlegum markaði vatnavellíðunar og gert íslenska baðmenningu að spennandi útflutningsvöru.

Vörur Flothettu njóta mikilla vinsælda meðal fagfólks úti um allan heim í vatnsmeðferðum og endurhæfingu. Heilsulindir og meðferðarlaugar í Bandaríkjunum, Evrópu og Ástralíu eru meðal viðskiptavina. Einnig eru vörurnar vinsælar hjá einstaklingum til einkanota í heitum potti eða sundlaug.

Flothetta
Flothetta með flotstuðningsvörum sem falla að ólíkum þörfum og líkamsgerðum.
Mynd: Gunnar Svanberg

Af hverju er flot svona gott fyrir líkama og sál?

Slökun í þyngdarleysi vatnsins þegar líkaminn hvílir í algerri kyrrð, studdur góðum flotstuðningi í kjörhitastigi, er að öllum líkindum bestu mögulegu aðstæður til að njóta áreynslulausrar og djúprar slökunar.

Fyrst og fremst er það ávinningurinn af því að dvelja fljótandi í þyngdarleysi vatnsins. Vatnið hefur þann eiginleika að kyrra huga okkar og ferja okkur djúpt aftur í tilfinninguna þegar við dvöldum í öryggi í móðurkviði. Þegar þyngdaraflinu sleppir frelsast þeir hlutar líkamans sem bera mesta þungann og hryggurinn fær að hvíla áreynslulaust í léttleika vatnsins. Það slaknar á öllum vöðvum og liðum á sama tíma og blóðflæði til líffæra eykst. Þannig fer líkaminn mjúklega inn í ótrúlega gott „viðgerðarástand“ og laus við allt áreiti fær hann frið til að laga það sem þarf að laga samhliða því að áhrifarík endurheimt líkama og taugakerfis á sér stað.

Nám í flotþerapíu verður til

Þegar vegferð Flothettu hófst í vatninu þá var ekki til staðar …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Orkumál

Íslensk orka í alþjóðlegu samhengi – ávinningur sem mælist í milljörðum

2
Umhverfi

Er þjóðlendan markaðsvara eða auðlind í eigu þjóðar?

3
Orkumál

Heitasta tækifærið: Þegar vísindi og þekking opna nýjar víddir í jarðhita

4
Efnahagsmál

Atvinnustefna til 2035: Óraunhæf og mótsagnakennd markmið

5
Leiðari

Kraftur og orka með atvinnu og stefnu

6
Sjálfbærni

Líffræðileg fjölbreytni — áhrif og ábyrgð fyrirtækja

Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Hin ónot­aða auð­lind Ís­lands

Vindorka gæti orðið lykill að orkuskiptum, lægra orkuverði og aukinni samkeppnishæfni Íslands.
Peningar, seðlar, krónur
Efnahagsmál 22. tbl.

Akki­les og fimm stoð­ir al­þjóða­geirans ís­lenska

Lífskjör Íslendinga ráðast sífellt meira af fjölbreyttum útflutningi.
Harpa
Nýsköpun 22. tbl.

Hvar eiga skap­andi grein­ar heima í nýrri at­vinnu­stefn­u?

Skapandi greinar eru verðmætari fyrir atvinnulíf og samfélag en hefðbundnir hagvísar gefa til kynna.
Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Verð­vernd í krafti vind­orku

Vindorka getur aukið raforkuframboð, lækkað kostnað og stutt orkuskipti með minni umhverfisáhrifum.

pexels-rinoadamo-34586065
Sjálfbærni 22. tbl.

Líf­fræði­leg fjöl­breytni — áhrif og ábyrgð fyr­ir­tækja

Líffræðileg fjölbreytni er undirstaða samfélags, atvinnulífs og þeirrar velferðar sem við njótum.
OR89708
Orkumál 22. tbl.

Heitasta tæki­færið: Þeg­ar vís­indi og þekk­ing opna nýj­ar vídd­ir í jarð­hita

Djúpnýting jarðhita gæti margfaldað orkuvinnslu og markað næstu byltingu í íslenskum orkumálum.
Hellisheiði dsf7264
Efnahagsmál 22. tbl.

At­vinnu­stefna til 2035: Óraun­hæf og mót­sagna­kennd mark­mið

Getur hagkerfið vaxið endalaust á plánetu þar sem auðlindir eru takmarkaðar?
Raforka, raflínur
Orkumál 22. tbl.

Fram­tíð­in og fjöregg­ið okk­ar

Raforkumarkaðir snúast ekki aðeins um verð heldur einnig um orkuöryggi og stöðugleika.