
Tuttugasta og fyrsta öldin er öld Internetsins og samfélagsmiðla. Þessi tækni hefur breiðst um heiminn hratt og markað lífshætti nútímasamfélaga á djúpstæðan hátt. Við finnum líklega flest fyrir þessum breytingum á eigin skinni. Samfélagsmiðlar hafa gjörbreytt hvernig við eyðum tíma okkar, hvernig við nálgumst og neytum upplýsinga, hvernig við tengjumst og stundum samskipti við fólkið okkar og nærsamfélög. Í þessari grein mun ég reifa hvað við vitum, og hvað við vitum ekki, um þessar afleiðingar. Ég mun einblína á pólitískar þróanir í hinum vestræna heimi og aðeins einn þátt í stóru myndinni, sem er nátengdur doktorsverkefni mínu: Andúð eða ofstæki gegn öðru fólki og/eða skoðunum þeirra.1
Líkt og víða í heiminum eru á Íslandi blikur á lofti hvað varðar umburðarleysi og ofstæki.2 Síðasta sumar átti sér stað umræða um hræðilegt ofbeldi og fordóma gegn hinsegin börnum á Íslandi (sjá t.d.: Rúv (2022)). Þessa dagana er í umræðunni ákæra héraðssaksóknara gegn tveim íslenskum mönnum sem sakaðir eru um ásetning til að fremja hryðjuverk. Ákæran sýnir að samskipti mannanna eru gegnsýrð af fordómum í garð minnihlutahópa (Heimildin, 2023). Þessi samfélagsvá er að minni bestu vitund áður óheyrð á Íslandi.
Hvað er sérstakt við samfélagsmiðla?
Hver sem er getur búið til efni (e. content) á internetinu og samfélagsmiðlum. Dreifing frétta og upplýsinga er einnig í höndum notenda á samfélagsmiðlum. Þetta eru nýjungar samanborið við fyrri fjölmiðlunartækni. Þannig dregur tæknin úr aðgangshindrunum í framleiðslu og dreifingu “pólitískra upplýsinga”. Það getur reynst gott eða slæmt, en þessi grein fjallar um áhættur sem þessu fylgja.
Skortur á aðgangshindrunum getur leitt af sér nokkurskonar offramboð upplýsinga og upplýsingagjafa. Það gerir staðreyndaskoðun (e. fact-checking) upplýsinga erfiða, samhliða þessu dreifa notendur samfélagsmiðla upplýsingum með fordæmalausum hraða. Saman geta þessir þættir leitt til mikillar upplýsingaóreiðu og dreifingu falsfrétta. Samfélagsmiðlar bjóða einnig upp á að sérsníða fréttir hvers og eins notenda sem getu þannig orðið gríðarlega sérhæfðar. Það getur gerst ef fólk sækir í fréttir og samfélagsumræður sem samræmast þeirra skoðunum og viðhorfum og myndar þannig bergmálshella.
Fréttastraumur samfélagsmiðla (e. social media news-feed) getur einnig sérhæft upplýsingar sem berast til fólks af sjálfsdáðum og jafnvel gert þær öfgafyllri. Félagsfræðingar hafa bent á að samfélagsmiðlar fái tekjur með því að halda athygli fólks á sínum miðlum. Ein leið til að halda athygli fólks er að mæla stöðugt með efni sem samræmist gróflega skoðunum fólks en er öfgafyllri útgáfa af því efni sem einstaklingur myndi annars horfa á (Tufekci, 2018). Þetta fyrirbæri er kallað ofstækismaskínan.
Bergmálshellar
Frá aldamótum hefur andúð gagnvart þeim stjórnmálaflokki sem einstaklingur er ekki sammála aukist til muna í Bandaríkjunum, tilraunir til sambærilega mælinga í Evrópu benda í sömu átt (Boxell et al., 2017; Reiljan, 2020). Bergmálshellar gætu átt sök í máli ef fólk kemst ekki í kynni við fjölbreyttar skoðanir og öðlast ekki skilning á öðrum viðhorfum en þeirra eigin. Ógrynni empíríska rannsókna sýna vissulega að samskiptanet og upplýsingar sem berst til fólks á samfélagsmiðlum samrýmast þeirra eigin skoðunum (t.d. Bakshy et al. 2015; Conover, 2011). Þessar niðurstöður eru þó ekki nægar til að skella skuldinni á samfélagsmiðla. Samskipti fólks utan Internetsins litast einnig af bergmálshellum, þ.e. vinir þínir og kunningjar eru mun líklegri til að deila þínum skoðunum heldur en samfélagið í heild. Rannsóknir sem bera saman “hugmyndafræðilega einhæfni samskiptanets” fólks í raunheiminum og á netinu gefa til kynna að einhæfnin sé jafn mikil ef ekki meiri í raunheiminum (Halberstam & Knight, 2016; Gentzkow & Shapiro, 2011).
Almennt hafa rannsóknir um áhrif af notkun samfélagsmiðla á andúð gagnvart ólíkum stjórnmálaskoðunum gefið misvísandi niðurstöður. Til dæmis sýna Boxell og meðhöfundar (2017) að andúð gagnvart ólíkum skoðunum hefur aukist mest meðal kynslóða sem minnst nota samfélagsmiðla (65 ára og eldri) í Bandaríkjunum. Á hinn bóginn hafa verið gerðar tilraunir þar sem handahófskenndum hópi þátttakenda var boðið fé til að loka Facebook aðgöngum sínum í einn mánuð. Eftir tilraunina var andúð gagnvart öðrum skoðunum mæld og andúðin minnkaði mun meira hjá hópi þeirra sem aftengdust Facebook (Alcott et al., 2020). Heilt yfir er ekki ljóst hvort bergmálshellar á samfélagsmiðlum séu dýpri en í raunheiminum, né …








