USD 125,7 -0,2%
EUR 143,0 -0,3%
GBP 167,4 -0,4%
DKK 19,1 -0,3%
SEK 12,9 0,1%
NOK 13,1 0,3%
CHF 153,7 -0,4%
CAD 89,2 -0,2%
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 395.050
USD 125,7 -0,2%
EUR 143,0 -0,3%
GBP 167,4 -0,4%
DKK 19,1 -0,3%
SEK 12,9 0,1%
NOK 13,1 0,3%
CHF 153,7 -0,4%
CAD 89,2 -0,2%
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 395.050
Til baka

Skap­andi skáld­skap­ur

Rithöfundur skrifar um það að lifa í skáldskap og lifa af

dsf9180
Mynd: Golli

Það er kannski ekki frumlegt að vitna í Nóbelskáldið, en ég ætla að gera það samt. Halldór Laxness lagði eftirfarandi orð í munn einnar af sögupersónum sínum: Sá sem ekki lifir í skáldskap lifir ekki af hér á jörðinni.

Þetta er eftirtektarverð setning vegna þess að í fljótu bragði virðist hún svo mótsagnakennd. Eða er ekki skáldskapur einmitt eitthvað sem truflar efnislega afkomu okkar í hörðum heimi? Ættum við ekki frekar að einbeita okkur að því sem er praktískt, það er að segja ef markmiðið er að lifa af?

Ég leyfi mér hér að taka þessa setningu alveg úr samhengi. En smám saman hefur sú túlkun fæðst í huga mínum að með skáldskap sé átt við skáldlega sýn á lífið, öðru nafni fegurð. Sá sem ekki lifir í fegurð lifir ekki af hér á jörðinni. Og að með orðunum „lifa af“ sé átt við að lifa til fulls. Lifa meira en að nafninu til.

Fyrir rúmum tuttugu árum sat ég ásamt góðum vini í þrettán klukkustundir samfleytt og ræddi tilgang lífsins. Í sameiningu komumst við að þeirri niðurstöðu að tilgangur lífsins væri sá að lifa fallega.

Örfáum árum síðar vorum við farin að hlæja góðlátlega að okkur sjálfum; tveimur unglingum á fyrsta ári í heimspeki í Háskóla Íslands sem komust að svo rómatískri niðurstöðu um tilgang lífsins. En núna er ég ekki frá því að innsæi okkar og tilfinning hafi verið á réttri leið. Niðurstaðan stendur bara ekkert sérlega vel ein og sér. Hún þarfnast nánari skilgreiningar. Og núna er best að ég bæti úr því, áður en pistill þessi verður afgreiddur sem tildur.

Ábyrg sköpun

Að lifa fallega er að kalla sig til ábyrgðar sem skapara heimsins. Vegna þess að á hverjum degi sköpum við okkar eigið líf og höfum áhrif á líf annarra. Skáldskapurinn er stöðugt að minna okkur á að við erum söguhetjur í eigin lífi og að viðbrögð okkar móta framvindu sögunnar.

Að lifa fallega er að líta stórt á sig, með þeim sjálfsagða fyrirvara að hver einasta manneskja í heiminum er jafnmerkileg og maður sjálfur. En ef við gerum okkur grein fyrir eigin valdi og verðleikum erum við ólíklegri til að selja okkur í …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Akkiles og fimm stoðir alþjóðageirans íslenska

2
Orkumál

Hin ónotaða auðlind Íslands

3
Orkumál

Verðvernd í krafti vindorku

4
Nýsköpun

Hvar eiga skapandi greinar heima í nýrri atvinnustefnu?

Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Hin ónot­aða auð­lind Ís­lands

Vindorka gæti orðið lykill að orkuskiptum, lægra orkuverði og aukinni samkeppnishæfni Íslands.
Peningar, seðlar, krónur
Efnahagsmál 22. tbl.

Akki­les og fimm stoð­ir al­þjóða­geirans ís­lenska

Lífskjör Íslendinga ráðast sífellt meira af fjölbreyttum útflutningi.
Harpa
Nýsköpun 22. tbl.

Hvar eiga skap­andi grein­ar heima í nýrri at­vinnu­stefn­u?

Skapandi greinar eru verðmætari fyrir atvinnulíf og samfélag en hefðbundnir hagvísar gefa til kynna.
Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Verð­vernd í krafti vind­orku

Vindorka getur aukið raforkuframboð, lækkað kostnað og stutt orkuskipti með minni umhverfisáhrifum.

pexels-rinoadamo-34586065
Sjálfbærni 22. tbl.

Líf­fræði­leg fjöl­breytni — áhrif og ábyrgð fyr­ir­tækja

Líffræðileg fjölbreytni er undirstaða samfélags, atvinnulífs og þeirrar velferðar sem við njótum.
OR89708
Orkumál 22. tbl.

Heitasta tæki­færið: Þeg­ar vís­indi og þekk­ing opna nýj­ar vídd­ir í jarð­hita

Djúpnýting jarðhita gæti margfaldað orkuvinnslu og markað næstu byltingu í íslenskum orkumálum.
Hellisheiði dsf7264
Efnahagsmál 22. tbl.

At­vinnu­stefna til 2035: Óraun­hæf og mót­sagna­kennd mark­mið

Getur hagkerfið vaxið endalaust á plánetu þar sem auðlindir eru takmarkaðar?
Raforka, raflínur
Orkumál 22. tbl.

Fram­tíð­in og fjöregg­ið okk­ar

Raforkumarkaðir snúast ekki aðeins um verð heldur einnig um orkuöryggi og stöðugleika.