USD 123,6 0,3%
EUR 136,6
GBP 163,5
DKK 18,3
SEK 12,3 -0,4%
NOK 12,9 -0,1%
CHF 147,4 -0,4%
CAD 86,7 0,2%
JPY 0,8 0,1%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
USD 123,6 0,3%
EUR 136,6
GBP 163,5
DKK 18,3
SEK 12,3 -0,4%
NOK 12,9 -0,1%
CHF 147,4 -0,4%
CAD 86,7 0,2%
JPY 0,8 0,1%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Sköp­un­ar­gáf­an skap­ar verð­mæti

Opnunargrein ráðherra nýsköpunar- og menningarmála í þemablaði Vísbendingar um skapandi greinar

dsf7464
Hluti af langtíma ljósmyndaverkinu Birki eftir Pétur Thomsen á sýningu hans Landnám í Hafnarborg 2024.
Mynd: Golli

Stuðningur ríkisins við listgreinar hefur lengi verið umdeildur og í tímans rás hafa jafnvel heyrst raddir um að skattfé sé illa varið með slíkum stuðningi. Heldur hefur dregið úr slíkri gagnrýni á undanförnum árum, enda hefur verið sýnt fram á hversu mikið framlag hinna skapandi greina er til samfélagsins, bæði efnahagslega og samfélagslega.

Sköpunargáfan hefur ekki aðeins leitt til listaverka sem vekja tilfinningar og endurspegla samtímann, heldur hefur hún einnig stuðlað að tækninýjungum og nýjum leiðum til að skilja og túlka heiminn. Á undanförnum árum hefur vöxtur í hugvitsdrifnum atvinnugreinum verið gríðarlegur, útflutningstekjur af hugviti námu um 300 milljörðum króna á síðasta ári. Listir, menning og skapandi hugsun eru ekki aðeins drifkraftar nýsköpunar heldur einnig undirstaða gagnrýninnar hugsunar, félagslegrar samheldni og menningarlegrar fjölbreytni. Á tímum þar sem gervigreind getur framleitt tónverk og myndverk í gríð og erg hefur gildi mennskrar sköpunar aldrei verið skýrara. Það er líka mikilvægt að hafa í huga að skapandi greinar, hvort sem þær snúa að hönnun, tónlist, kvikmyndagerð eða öðrum listformum, hafa margföldunaráhrif á aðrar atvinnugreinar. Þær nýtast t.d. í markaðssetningu, vörumerkjastefnu, byggingarlist og jafnvel í vísindalegum rannsóknum þar sem sköpunargáfa er nauðsynleg til að hugsa út fyrir boxið. Það er því ekki spurning hvort listir og skapandi greinar eigi rétt á stuðningi, heldur hversu markvisst við styðjum við þær sem bæði efnahagslegan og menningarlegan drifkraft.

Hugsum um stóra samhengið

Alvöru fjárfesting í framtíðinni þarf að byggja á heildarhugsun og langtímasýn. Við getum ekki leyft okkur að horfa bara til næstu kosninga. Við þurfum að horfa á heildarmyndina og leggja traustan grunn að sjálfbærri verðmætasköpun, öflugu og heilbrigðu samfélagi þar sem menning, gervigreind, nýsköpun og háskólamál fléttast saman og styrkja hvert annað.

Til að nýsköpun og skapandi greinar dafni þarf skilvirkt stuðningskerfi, fjárfestingu í þekkingu og innviðum, auk aðgangs að þolinmóðu fjármagni. Mikilvægt er að …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Uppskeruhátíð hagfræðinga

2
Aðrir sálmar

Þjóðarhagsleg rekstrarhagfræði

3
Aðrir sálmar

Stjórnun og traust

4
Vinnumarkaður

Endalok pólska tímabilsins?

5
Efnahagsmál

Burðug sveitarfélög geta stutt við ábyrga hagstjórn

6
Vinnumarkaður

Ofmetur launavísitalan þróun launa?

Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins

Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum
IMG_2494
Umhverfi 35. tbl.

Ís­lensk­ir jökl­ar á hverf­anda hveli

Loftslagsbreytingar hafa mikil áhrif á íslenska jökla. Vegna hlýnunar jarðar hafa jöklarnir minnkað mikið á síðustu áratugum. Ef ekkert verður gert til að draga úr hlýnuninni gætu margir þeirra horfið í framtíðinni.