USD 121,4 0,4%
EUR 138
GBP 160,5
DKK 18,5
SEK 12,3 0,1%
NOK 12,8 0,1%
CHF 146,7 -0,2%
CAD 86 0,2%
JPY 0,8 -0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,6%
Mannfjöldi 396.500
USD 121,4 0,4%
EUR 138
GBP 160,5
DKK 18,5
SEK 12,3 0,1%
NOK 12,8 0,1%
CHF 146,7 -0,2%
CAD 86 0,2%
JPY 0,8 -0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,6%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Skynj­un, list­ir og sam­fé­lag­ið

Miðlun skynjunar og tengingar listarinnar í samhengi við veruleikann

LI_06172-1
Mynd úr seríunni Íslensk myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson (1997) í eigu Listasafns Íslands, LÍ-6172.

Að vera listamaður felur í sér hæfileika, löngun og þörf til að miðla eigin skynjun, eða með öðrum orðum að standa vörð um huglæga þætti og dýpka tengingu okkar við veruleikann. Á Íslandi starfa þúsundir einstaklinga við það að skapa, viðhalda og miðla öflugu myndlistarlífi. Þeir þróa hugmyndir, vinna að listrannsóknum, halda úti vinnustofum, framleiða verk og sýningar og sinna fjölbreyttum verkefnum sem fylgja listsköpuninni og miðlun hennar. Þrátt fyrir þetta endurspegla kjör myndlistarfólks ekki framlag þeirra til samfélagsins.

Nýleg skýrsla um hagrænt gildi listarinnar[1] sýnir að skapandi greinar eru þriðji stærsti atvinnuvegur þjóðarinnar, þar sem frumsköpun listanna og nýsköpun í iðnaði eru lögð að jöfnu til að varpa ljósi á efnahagslegt gildi þeirra. Opinber fjárhagslegur stuðningur til skapandi greina skilar sér þrefalt til baka samkvæmt skýrslunni og áhugavert væri að skoða hvort viðlíka ábati verði af nokkrum öðrum ríkisstuðningi. En samfélag sem forgangsraðar efnahagslegum mælikvörðum umfram önnur gildi á það á hættu að missa sjónar á grundvallarþáttum mannlegrar velferðar, þar með talið huglægari viðfangsefnum listarinnar – sem rækta skynjun okkar, mennsku og tjáningarfrelsi.

Til þess að tryggja áframhaldandi grósku og vöxt listarinnar þarf að hlúa að samfélagi listamanna. Tónlistarmaðurinn Brian Eno hefur lagt til hugtakið Scenius[2], sem leggur áherslu á skapandi afl hópsins fremur en snilld einstaklingsins (e. genius). Hann bendir á að þótt einstaka listamenn skapi frábær verk, þá spretta hugmyndirnar upp úr því samfélagi sem umvefur þá. Til að einstaklingar geti blómstrað þurfum við að hlúa að heildinni með hugmyndafræði, efnislegri umgjörð og fjárhagslegum stuðningi.

box

Íslensk myndlist

box

Serían Íslensk myndlist 1997 eftir Þorvald Þorsteinsson var og er skörp ádeila á ásjónu og aðgengi almennings að íslenskri myndlist. Í ljósmyndaseríunni sjást fréttamyndir af viðtölum við áhrifafólk á tíunda áratug síðustu aldar. Viðmælendum er stillt upp fyrir framan hin ýmsu meistaraverk úr íslenskri myndlistarsögu. Þorvaldur lét það liggja milli hluta að nefna höfunda verkanna, enda ólíklegt að þeirra hafi verið gætt í þessari brotakenndu birtingu ljósvakamiðla. Nokkrar myndir úr seríunni sem er í eigu Listasafns Íslands, LÍ-6172.

Listirnar eru öflugt afl samfélagslegra umbreytinga, þær spegla mennskuna, veita lífsbjörg og leiðsögn sem verður aldrei leyst af hólmi. Hugmyndir um fegurð og fagurferði[3] gegna þar lykilhlutverki, þar sem umhverfið okkar – bæði hið efnislega og hið huglæga – hefur djúpstæð áhrif á skynjun okkar og líðan.

Í samfélagi þar sem sjónræn tjáning er sífellt fyrirferðarmeiri, skiptir myndlæsi höfuðmáli. Við þurfum að styrkja myndlistarsöfnin okkar, styðja við grasrótina og tryggja að listirnar fái aukið vægi í menntakerfinu. Listin býr yfir einstöku leyfi til að þvera hefðbundin mörk, varpa ljósi á hið ósagða og opna nýja sýn á veruleikann.

Til þess að tryggja heilbrigt umhverfi fyrir listsköpun er nauðsynlegt að styðja við velferð listamanna og þannig eflingu menningarinnar í heild. Opinber stuðningur á borð við starfslaun listamanna og fjölbreytt styrkjakerfi er þar lykilatriði þar sem markaðs- og samkeppnislögmálin forgangsraða ekki óhagrænum ávinningi listarinnar.

Starfslaun listamanna námu 846 milljónum af þeim 55 milljörðum sem settir voru í opinberan stuðning við skapandi greinar árið 2023, og skilar sér þrefalt til baka í hagkerfinu skv. áðurnefndri skýrslu. Ljóst er að forsenda þeirrar margföldunar liggur í sköpun listamannanna sjálfra, og þar þarf að margfalda opinbera stuðninginn.

Listamenn geta ekki skapað öflugan vettvang lista – Scenius – ef þeir þurfa viðstöðulaust að berjast fyrir fjárhagslegri afkomu.

Í pistli frá árinu 2018 fjallar Guðbjörg R. Jóhannesdóttir umhverfisheimspekingur um tengsl hins huglæga og þess hlutlæga í þekkingarsköpun. Hún segir „innra landslag líkamans, fagurferðileg skynjun, fundin skynjun, hvað sem við köllum það – þessi vídd skynjunar og skilnings er uppspretta allrar hugsunar, þekkingar og gilda“.[4] Skynkerfi okkar tengir okkur þannig við umheiminn, og listirnar hafa einstöku hlutverki að gegna í því sambandi.

Tilvísanir

  1. Ágúst Ólafur Ágústsson (2024) Stjórnarráðið: https://www.stjornarradid.is/gogn/rit-og-skyrslur/stakt-rit/2024/10/04/Framlag-menningar-og-skapandi-greina-til-verdmaetaskopunar-a-Islandi-/

    ↩
  2. Brian Eno (2024) YouTube: https://youtu.be/cA8xObrgD7s

    ↩
  3. Tinna Gunnarsdóttir (2019) Ritið – tímarit hugvísindastofnunar, 3. tbl.: Í leit að siðferðilegri vídd japanskrar fagurfræði (http://doi.org/10.33112/ritid.19.3.6)

    ↩
  4. Guðbjörg R. Jóhannesdóttir (2018) Ríkisútvarpið: https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/heimspeki-mikilvaeg-sem-aldrei-fyrr

    ↩

Næsta grein

Mest lesið
1
Alþjóðamál

Aðild að myntbandalagi Evrópusambandsins?

2
Alþjóðamál

Ísland í pilsfaldi Noregs

3
Aðrir sálmar

Einangrað fullveldi

4
Alþjóðamál

Sætið við borðið er síðasta orðið

5
Alþjóðamál

Viðskiptastríðin: Kína, Trump og valdabrölt

6
Efnahagsmál

Kaldur vetur en engin hörmung á fasteignamarkaði

AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels
Aðrir sálmar 30. tbl.

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina
77a0620
Umhverfi 30. tbl.

Ef Ís­land væri borg á meg­in­landi Evr­ópu

Að fenginni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti
Mynd SGG - 1
Opinber fjármál 30. tbl.

Nýtt grunn­við­mið fyr­ir stjórn­ar­hætti op­in­berra að­ila

Daði Már Kristófersson Fjármálaráðherra
Efnahagsmál 29. tbl.

Reikn­að­ur og raun­veru­leg­ur halli á rík­is­sjóði


Peningar
Aðrir sálmar 29. tbl.

Gylfag­inn­ing

og velgengnisrannsókn Ganglera
Mannlíf, miðborg Reykjavíkur
Aðrir sálmar 28. tbl.

Af Atóm­stöð­inni

þar sem tvöfeldni ræður ríkjum og fjárlagafrumvarp er kynnt með verðbættri tekjuöflun
gsf6810
Atvinna 28. tbl.

Er at­vinnu­leysi inn­flytj­enda næmara fyr­ir hag­sveifl­u­m?

Atvinnuleysi innflytjenda á Íslandi er bæði hærra að jafnaði og sveiflast meira með hagkerfinu en atvinnuleysi fólks með íslenskan bakgrunn. Munurinn er skýrastur meðal karla og eldri einstaklinga á vinnumarkaði.