Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Sveigj­an­leik­i, seigla, að­lög­un­ar­hæfni og fjöl­þætt sam­ræða

Í blaði vikunnar eru þrjár nýjar greinar tengdar efnahagsmálum og hamförum auk þessa leiðara. Vikulegri prentun hefur verið hætt en rafræn útgáfa heldur áfram vikulega. Stafræn útgáfa tölublaðsins hefur að geyma eins og prentaða útgáfan jafnframt tvær endurbirtar greinar.

deilimynd-asgeirbrynjar

Með þessu tölublaði hefst mánaðarleg prentútgáfa Vísbendingar en vikuritið heldur áfram að koma út rafrænt með tölvupósti á hverjum föstudegi til áskrifenda. Auk þess eru allar greinar aðgengilegar á vef www.visbending.is þar sem áskrifendur geta virkjað aðgang sinn með innskráningu.

Efnistök þessarar fyrstu mánaðarútgáfu vikuritsins einkennast af þeim miklu umbreytingum sem samfélag, efnahagslíf og viðskiptamenning okkar litla lands þarf að ganga í gegnum nú um stundir. Hin íslenska aðlögunarhæfni og alþekkta reddingar trú er vissulega mikill kostur í harðbýlu landi en vert er að huga vel að því hvernig við ætlum að bregðast í sameiningu við því sem reddast ekki.

Það á við um bæði Reykjaneselda hinir síðari og efnahagslegar afleiðingar loftslagsbreytinga. Samfélagsáhrifin sem þær valda eru til umfjöllunar í þriðju greininni eftir Brynhildi Davíðsdóttur og Halldór Björnsson sem birtist á þessu ári. Tvær fyrri greinar þeirra um loftslagsbreytingarnar birtust í upphafi síðasta mánaðar í 5. tbl. og í upphafi ársins í 1. tbl. en allar byggja þær á fjórðu samantektarskýrslu Vísindanefndar um loftslagsbreytingar. Önnur greinin er endurprentuð hér í blaðinu.

Þá eru efnahagslegu áhrifin af óvæntum áföllum og þjóðarsjóðshugmyndin þeim tengd til umfjöllunar í annarri grein Gylfa Magnússonar en fyrri greinin um sama efni birtist í 7. tbl og aftur nú.

Mikilvægur þáttur að baki flestum greinum í Vísbendingu er nú, líkt og verið hefur undanfarna áratugi, rannsóknir og greining þeirra. Forsíðugrein þessarar fyrstu mánaðarlegu prentútgáfu vikuritsins er í þeim anda. Ragnar Hjálmarsson lauk fyrir þremur árum doktorsritgerð um umbreytingar og réttlæti í framhaldi af efnahagslegum krísum. Í grein sinni hér í blaðinu varpar hann fram merkri hugmynd um að koma nú á fót Rannsóknarnefnd Alþingis, í breyttri mynd, sem starfa myndi samhliða því verkefni sem samfélagið þarf að takast á við vegna hamfara á mörgum sviðum stjórnmála og stjórnsýslu. Hugmyndin virðist líklegri til árangurs en sérstakar greiningar Rannsóknarnefndar Almannavarna og úttektir Ríkisendurskoðunnar. En engin af þeim lögbundnu skyldum útilokar þó hina og líklega þarf að gera allt þrennt og meira til.

Efnahagur og samfélag eru vefnaður sem er samofinn þannig að ómögulegt getur reynst að greina hann í sundur. Líkt og hagstjórn og stjórnmál eru þétt samsett en illa aðgreinanleg. Bendi-keppi (e. blame-game) í því að kenna öðrum um gagnast engum til langframa. Það á við um afleiðingar jarðelda og loftslagsvár sem og atvinnuuppbyggingu og fólksflutninga. Uppbyggðir innviðir, atvinnuvegir og allur efnahagur á mikið undir því að opinbera stjórnsýslan virki vel og stjórnmálin verða að stuðla að því með öllum ráðum. Tímarnir sem við nú lifum krefjast þess – á öllum sviðum.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina