USD 123,5 0,1%
EUR 143,8 0,1%
GBP 166,4 0,2%
DKK 19,2 0,1%
SEK 13,2 0,3%
NOK 13,3 0,1%
CHF 156,7 0,1%
CAD 89,0 0,2%
JPY 0,8 0,1%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,1%
Mannfjöldi 395.050
USD 123,5 0,1%
EUR 143,8 0,1%
GBP 166,4 0,2%
DKK 19,2 0,1%
SEK 13,2 0,3%
NOK 13,3 0,1%
CHF 156,7 0,1%
CAD 89,0 0,2%
JPY 0,8 0,1%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,1%
Mannfjöldi 395.050
Til baka

Svika­logn á fast­eigna­mark­aði

Ef litið er undir húddið á fasteignamarkaðnum þessa stundina kemur í ljós að hann er tvískiptur, þar sem ódýrar íbúðir seljast hratt á meðan dýrar íbúðir seljast hægar.

Fasteignamarkaðurinn hefur hægt á sér á síðustu vikum. Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,28 prósent á milli mánaða í september, eftir að hafa hækkað töluvert á milli mánaða samfleytt frá ársbyrjun. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig minnkað á haustmánuðum, þar sem færri kaupsamningum er nú þinglýst en í sumar, jafnvel þótt íbúðakaup vegna Grindavíkur eru tekin til hliðar.

Minni umsvif og verðlækkanir hljóma vel fyrir fyrstu kaupendur á fasteignamarkaði, sem hafa búið við skarpar verðhækkanir á síðustu mánuðum. Hins vegar teljum við hjá HMS stöðuna vera svikalogn, þar sem eftirspurnarþrýstingur mælist enn töluverður á meðal ódýrari íbúða, á meðan lítið framboð er af slíkum íbúðum. Aukist framboðið ekki af ódýrum íbúðum mun enn reynast erfitt fyrir fyrstu kaupendur að komast inn á fasteignamarkaðinn.

Minni umsvif, en ekkert frost

Samkvæmt nýjustu upplýsingum úr kaupskrá fasteigna var að minnsta kosti 998 samningum þinglýst í september, samanborið við 914 í ágústmánuði og 1.010 í júlímánuði.[5de8ea] Samningum hefur fækkað nokkuð frá því á öðrum ársfjórðungi, sem varði frá aprílmánuði og út júnímánuð, jafnvel þótt fasteignakaup sem tengjast búferlaflutningum vegna Grindavíkur séu talin frá.

Í sögulegu samhengi eru umsvif á fasteignamarkaði þó ekkert sérstaklega lítil, en 16% fleiri kaupsamningar voru gerðir á nýliðnum ársfjórðungi heldur en á sama tíma í fyrra ef kaupsamningar vegna Grindavíkur eru teknir til hliðar. Umsvif á fasteignamarkaðnum í haust hafa því verið meira en í fyrra, þrátt fyrir hátt vaxtastig og skarpar verðhækkanir á síðustu mánuðum. Þannig má segja að hægt hafi á markaðnum frá því í júlí, en varla er hægt að tala um að frost ríki þar enn sem komið er.

graf1

Tvískiptur markaður

Ef litið er undir húddið á fasteignamarkaðnum þessa stundina kemur í ljós að hann er tvískiptur, þar sem ódýrar íbúðir seljast hratt á meðan dýrar íbúðir seljast hægar. Á fyrri myndinni okkar má sjá söluverð íbúða sem ekki eru í nýbyggingum miðað við ásett verð þeirra, en þannig er hægt að greina mismunandi verðþrýsting eftir verðflokkum.

Samkvæmt myndinni er verðþrýstingur mestur hjá íbúðum sem seljast á 30-60 milljónir króna, en um 27 prósent þeirra seljast yfir ásettu verði, samanborið við 20 prósent í hinum verðflokkunum. Hlutfall ódýrra íbúða sem seljast á yfirverði er nú það sama og það var á toppi fasteignabólunnar árið 2017 og 2018, á meðan nokkuð vantar til að verðþrýstingurinn á dýrari íbúðum nái sömu hæðum og þá.

Tvískiptinguna má einnig sjá þegar verðþrýstingur eldri íbúða er borinn saman við verðþrýsting íbúða í nýbyggingum. Innan við 10 prósent íbúða í nýbyggingum seljast nú yfir ásettu verði, en slíkar íbúðir eru að jafnaði dýrari en aðrar. Þar hafa ódýrustu íbúðirnar einnig selst á meðan hinar standa eftir óseldar, en óseldar nýjar íbúðir eru að meðaltali 10 milljónum krónum dýrari en seldar nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu.

graf2

Handbremsa Seðlabankans

Tvískiptingin er að hluta til vegna aðgerða Seðlabankans, sem dregið hefur úr kaupgetu heimila á dýrari íbúðum með háum vöxtum og þrengri lánþegaskilyrðum. Þar vega reglur bankans frá árinu 2021 um hámark á greiðslubyrði húsnæðislána þungt, en samkvæmt þeim má greiðslubyrðin ekki vera 40% af ráðstöfunartekjum hjá fyrstu kaupendum og 35% …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Skipti engu að samningarnir um Icesave voru felldir?

2
Samfélag

Erfðafjárskattar, lýðræði og hið frjálsa samfélag

3
Efnahagsmál

Frá háskóla til verðmæta – hvar slitna tengslin í íslensku hagkerfi?

4
Húsnæðismál

Fjárfesting í íbúðar­húsnæði og lánveitingar hins opinbera til hús­næðis­bygginga og/eða húsnæðiskaupa

5
Aðrir sálmar

Húsnæði og umferðarónæði

6
Húsnæðismál

Hagfræðileg borgarmál

Sjávarútvegur
Fiskveiðar 20. tbl.

Króka­afla­kerfi

Grænland
Alþjóðamál 20. tbl.

Hafa Græn­lend­ing­ar ráð á sjálf­stæð­i?

Á milli Washington og Kaupmannahafnar.
Grænland, ísjakar
Aðrir sálmar 20. tbl.

Rost­ung­ar og græn­lensk króna

Sjávarlíf og gjaldmiðlamálefni
Úkraína drónar
Alþjóðamál 19. tbl.

Tvínota tækn­i: þeg­ar inn­við­ir verða varn­ar­geta

Þótt hefðbundnar hervarnir skipti enn máli snúast öryggismál sífellt meira um seiglu samfélaga, innviði, netöryggi og tvínota tækni sem þjónar bæði borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi.

Jóhanna og Steingrímur
Efnahagsmál 19. tbl.

Skipti engu að samn­ing­arn­ir um Ices­a­ve voru felld­ir?

Niðurstaða Icesave-málsins var hagfelld fyrir Ísland, en spurningin er hvort sama niðurstaða hefði getað fengist þótt einhver samninganna hefði verið samþykktur.
Ferðamenn í Reykjavík
Aðrir sálmar 19. tbl.

Höfr­ung­ar og koll­hnís­ar

á vinnumarkaði og í seðlabönkum
Háskóli Íslands IMG_9403
Sjálfbærni 18. tbl.

Kröf­ur um stjórn­ar­hætti – í ljósi sög­unn­ar

Þróun alþjóðlegra viðmiða og breytt lagaumhverfi
Reykjavíkurhöfn
Loftslagsmál 18. tbl.

Mesta lofts­lags­á­hætta ís­lensks at­vinnu­lífs