USD 125,7 -0,2%
EUR 143,0 -0,3%
GBP 167,4 -0,4%
DKK 19,1 -0,3%
SEK 12,9 0,1%
NOK 13,1 0,3%
CHF 153,7 -0,4%
CAD 89,2 -0,2%
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 395.050
USD 125,7 -0,2%
EUR 143,0 -0,3%
GBP 167,4 -0,4%
DKK 19,1 -0,3%
SEK 12,9 0,1%
NOK 13,1 0,3%
CHF 153,7 -0,4%
CAD 89,2 -0,2%
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 7,8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 395.050
Til baka

Að­lög­un­ar­hæfni á breytt­um tím­um

Þríþætt hlutverk skapandi greina! Vörður á veginum og það sem vantar

dsf7507-2
Það glittir í hluta af langtíma ljósmyndaverkinu Birki eftir Pétur Thomsen á sýningunni Landnám í Hafnarborg 2024 í gegnum myndavélaþrífætur bak við borð ráðherranna þriggja.
Mynd: Golli

Menning og skapandi greinar eru atvinnuvegur sem hefur fengið aukið vægi í opinberri umræðu á Íslandi á undanförnum árum. Þetta kemur meðal annars fram í aukinni áherslu í stjórnarsáttmálum og stefnuyfirlýsingum ríkisstjórna sem myndaðar hafa verið frá því árið 2013. Í grein þessari verður fjallað um hvernig innviðir þessa atvinnuvegs hafa þróast undanfarinn aldarfjórðung, efnahags-, menningar- og samfélagslegt hlutverk hans um leið og kallað er eftir endurskoðun á menningarstefnu Íslendinga frá 2013.

Umræðan um hugtakið skapandi greinar hefur þróast og þroskast undanfarinn aldarfjórðung. Það var fræðimaðurinn Ágúst Einarsson sem fyrst fjallaði um fyrirbærið á Íslandi út frá menningarhagfræðilegu sjónarhorni í grein sinni Menning er mikilvæg atvinnugrein í Tímariti Máls og menningar þar sem hann leitast við að draga fram efnahagslegt umfang menningar í íslensku samfélagi (2001). Umræðan rímar við alþjóðlegar skilgreiningar á skapandi greinum sem voru farnar að hafa áhrif í stefnumótun stjórnvalda á sviði menningar og skapandi greina víða, fyrst hjá breskum stjórnvöldum árið 1997 (DCMS, 1998). Hún kallast ekki síður á við þau merku tímamót þegar Listaháskóli Íslands (LHÍ) var stofnsettur árið 1999 og þau áhrif sem það hafði á markvissa innviðauppbyggingu bæði fyrir listsköpun í landinu en einnig fyrir atvinnulíf menningar og skapandi greina. Í skýrslunni Sköpunarkrafturinn – orkugjafi 21. aldar (Anna Hildur Hildibrandsdóttir, 2023) gefur að líta yfirlit yfir þær vörður sem stuðlað hafa að innviðauppbyggingu á atvinnulífi menningar og kallað fram hvernig skapandi greinar eru samheiti yfir listir, sköpun, hugverk, menningu, atvinnu og viðskiptalíf sem af þeim skapast (Halla Helgadóttir, 2021).

Mikilvæg þróun liggur í stofnun miðstöðva lista og skapandi greina á árunum 2001–2021. Ísland átti ekki listráð (e. arts council) eins og nágrannaþjóðirnar en þróaði stoðkerfisskrifstofur fyrir flestar listgreinar á þessu tímabili. Þannig tekur innviðauppbyggingin mið af ólíkum þáttum sköpunarferilsins og viðskiptalegra sjónarmiða sem marka síðan stefnumótun ólíkra greina. Það hefur ekki alltaf verið óumdeild þróun en hún hefur þjónað vel nútímalegri stefnumótun og klasahugsun og virðist hafa aukið á sveigjanleika kerfisins á Íslandi samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem birtar voru í Nordic Culture Factbook (Johannisson, J., & Sakarias, S., 2022).

tímalína RSSG

Listsköpun og viðskipti

Kenningar um menningu og menningarframleiðslu hafa gjarnan fjallað um togstreituna á milli sköpunar og viðskiptalegra sjónarmiða eins og breski fræðimaðurinn David Hesmondhalgh rekur vel í bók sinni The Cultural Industries (Hesmondhalgh, 2019). Þar dregur hann fram hvernig fræðileg nálgun framan af síðustu öld á greiningu listaverka hafi hundsað hvernig listamenn náðu til áhorfenda eða hvernig verk þeirra voru fjármögnuð, studd eða bæld niður. Hann varpar ljósi á að sögulegt samhengi og skilningur á tengslum menningar, samfélags og viðskipta skipti máli og bendir á hvernig félagsfræðingar á borð við Raymond Williams og Pierre Bourdieu buðu upp á nýja nálgun í þessum efnum upp úr 1980. Þeir sýndu í verkum sínum fram á að sköpun hefur alltaf verið hluti af mannkynssögunni en stjórnun hennar, dreifing og efnahagslegt samhengi hefur tekið á sig ýmsar myndir í sögulegu og landfræðilegu samhengi.

Skýrslan um Kortlagningu á hagrænum áhrifum skapandi greina, sem kom út árið 2011 (Margrét Sigrún Sigurðardóttir og Tómas Young, 2011), olli ákveðnum straumhvörfum í þessari umræðu á Íslandi. Kortlagningin var gerð að tilstuðlan Samráðsvettvangs skapandi greina (undanfari Samtaka skapandi greina) í samstarfi við …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Akkiles og fimm stoðir alþjóðageirans íslenska

2
Orkumál

Hin ónotaða auðlind Íslands

3
Orkumál

Verðvernd í krafti vindorku

4
Nýsköpun

Hvar eiga skapandi greinar heima í nýrri atvinnustefnu?

Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Hin ónot­aða auð­lind Ís­lands

Vindorka gæti orðið lykill að orkuskiptum, lægra orkuverði og aukinni samkeppnishæfni Íslands.
Peningar, seðlar, krónur
Efnahagsmál 22. tbl.

Akki­les og fimm stoð­ir al­þjóða­geirans ís­lenska

Lífskjör Íslendinga ráðast sífellt meira af fjölbreyttum útflutningi.
Harpa
Nýsköpun 22. tbl.

Hvar eiga skap­andi grein­ar heima í nýrri at­vinnu­stefn­u?

Skapandi greinar eru verðmætari fyrir atvinnulíf og samfélag en hefðbundnir hagvísar gefa til kynna.
Vindorka
Orkumál 22. tbl.

Verð­vernd í krafti vind­orku

Vindorka getur aukið raforkuframboð, lækkað kostnað og stutt orkuskipti með minni umhverfisáhrifum.

pexels-rinoadamo-34586065
Sjálfbærni 22. tbl.

Líf­fræði­leg fjöl­breytni — áhrif og ábyrgð fyr­ir­tækja

Líffræðileg fjölbreytni er undirstaða samfélags, atvinnulífs og þeirrar velferðar sem við njótum.
OR89708
Orkumál 22. tbl.

Heitasta tæki­færið: Þeg­ar vís­indi og þekk­ing opna nýj­ar vídd­ir í jarð­hita

Djúpnýting jarðhita gæti margfaldað orkuvinnslu og markað næstu byltingu í íslenskum orkumálum.
Hellisheiði dsf7264
Efnahagsmál 22. tbl.

At­vinnu­stefna til 2035: Óraun­hæf og mót­sagna­kennd mark­mið

Getur hagkerfið vaxið endalaust á plánetu þar sem auðlindir eru takmarkaðar?
Raforka, raflínur
Orkumál 22. tbl.

Fram­tíð­in og fjöregg­ið okk­ar

Raforkumarkaðir snúast ekki aðeins um verð heldur einnig um orkuöryggi og stöðugleika.