Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Töl­urn­ar tala sínu máli

Töluleg gögn eru mikilvægt tól til að greina heiminn. Gögnin þurfa að vera aðgengileg og traust, samanberanleg og endurnýtanleg. Greinendur þurfa síðan að meta gögnin frá mismunandi sjónarhólum til þess að gagn verði af greiningunni og við öðlumst betri skilning á heiminum.

deilimynd-asgeirbrynjar

Það er mikilvægt að greina með tölulegum hætti bæði fyrirfram og eftirá helstu efnahagslegu ákvarðanir, hvort sem það snýr að rekstri heimilis, fyrirtækis, ríkissjóðs eða efnahagskerfis. Tölurnar einar og sér duga samt skammt, því þær þarf að setja í samhengi, við bæði fólk og raunveruleikan, sem að mestu er að finna utan markaða þó þeir geti haft sín áhrif samhliða.

Nú er framundan einhver mikilvægasti kjarasamningsvetur í marga áratugi. Því er nauðsynlegt og gagnlegt að greina þær tölulegu upplýsingar sem fyrir liggja. Kjaratölfræðinefnd leikur þar stórt hlutverk í breyttri umgjörð vinnumarkaðarins auk þess sem Hagstofan og Seðlabankinn safna og veita upplýsingum sem skipta miklu máli í samspilinu. Ytri greining spilar einnig sinn þátt.

Vissar vísbendingar er að finna, við lestur greinanna hér í vikuritinu, um að bæði séu erfiðir tímar framundan á lífskjarahlið og atvinnuleysishlið vinnumarkaðarins. Samninganefndir og ríkissáttasemjari standa frammi fyrir erfiðum áskorunum samhliða því að peningastefnunefnd og seðlabankastjórar sanda frammi fyrir þverstæðum staðreyndum sem geta stangast á.

Úrlausnarefnin flóknu framundan breyta samt ekki því hve mikilvægt er að ná góðri en ekki einstrengingslegri niðurstöðu. Lánakippur (e. credit impulse) er gamalt hagfræðihugtak en nýtt í íslensku samhengi sem ágætlega er útskýrt með þremur gröfum í seinni grein vikunnar. Miðað við hagvaxtartölurnar er viss hætta á að hagkerfið geti verði keyrt inn í kreppuástand með hávaxtastefnunni. Meðölin í formi vaxtahækkana munu þó alveg örugglega ekki getað læknað allt það sem er að í hagkerfinu.

Í næstu viku kemur út áramótablað Vísbendingar, sem er veglegt að þessu sinni alls 40 blaðsíður, með yfirgripsmiklum greinum um íslenskan vinnumarkað frá mörgum sjónarhólum. Næsta hefðbunda vikurit Vísbendingar kemur síðan út í byrjun árs 2024.

Lesendum þökkum við fyrir árið og hvetjum ykkur til að hafa samband með ábendingum um efnistök og aðrar hugmyndir: visbending@visbending.is

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina