USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Traust, ör­yggi og ógn­ir

Lögmál réttarríkisins skipta máli alþjóðlega, í samfélaginu og fjármálakerfinu

Hæstiréttur
Mynd: Golli

Í vikunni féll sögulegur dómur um ógagnsæja samningsskilmála húsnæðislána sem voru ógiltir til þess að vernda neytendur í samræmi við evrópskan rétt á hinum sameiginlega innri markaði Evrópu. Í fyrra fögnuðum við þrjátíu ára afmæli samningsins um evrópska efnahagssvæðið. Íslenskir bankar nýttu sér með honum aðgengið að sparifé evrópsks almennings og fóru á vissan hátt hamförum innan Evrópu fyrir um tveimur áratugum með alvarlegum afleiðingum, sem hafði áhrif á reglusetningar síðan.

Nú virðist loks komið að því hérlendis að íslenskir neytendur njóti verndar samkvæmt Evróputilskipunum sem teknar hafa verið upp í samningnum. Til þess þurfti leiðbeinandi álit EFTA dómsstólsins og harðfylgi Neytendasamtakanna frá árinu 2019 og ferð alla leið upp til Hæstaréttar.

Afleiðingarnar fjárhagslega verða líklega aðeins um 5% af því sem reiknað hafði verið með í reikningsskilum bankans sem um ræðir og beðið er dóms í fleiri líkum málum. Afleiðingarnar verða þó einnig á gerð lánasamninga og neytendavernd sem getur verið erfitt að meta. Líklega standa bæði seðlabankastjóri og fjármálaráðherra í þakkarskuld við Hæstarétt að hafa ekki dæmt niðurstöðu sem hefði getað valdið tuttugu sinnum hærri kostnaði fyrir bankann með innspýtingu í endurgjöf til lántakenda að ígildi verðmætis einnar loðnuvertíðar og afleiddrar þenslu í hagkerfinu.

Sú fjölþáttakrísa (e. polycrisis) sem stendur yfir í heiminum felur meðal margs annars í sér ólíkar fjölþáttaógnir sem fjallað er um í forsíðugrein vikunnar. Þá er öryggi grundvallarinnviða eins og orkuvera mikilvægt en síðari grein vikunnar sem er framhald greinar frá síðustu viku um traust þar að lútandi.

Staða alþjóðlegra efnahagsmála er metin óljós á haustfundunum í Washington í vikunni. Þar spilar viðskiptastríðið sem Bandaríkjaforseti hóf fyrir hálfu ári síðan visst hlutverk. Stríðið sem hann hóf á heimavelli, með hermönnum á götum vissra borga, fær minni athygli en vert er að benda á umfjöllun í Lestinni á Rás 1 í vikunni um afleiðingar þess og umfjöllun tímaritsins Atlantic.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Um virði hagtalna

2
Umhverfi

Íslenskir jöklar á hverfanda hveli

3
Aðrir sálmar

Þrjár gráður

4
Efnahagsmál

Hvað er sjálfbær launaþróun?

5
Aðrir sálmar

Óheppileg orð

6
Efnahagsmál

Pólitískar afleiðingar efnahagslegrar óvissu


Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins
Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum