USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

HS Orka og líf­eyr­is­sjóð­irn­ir – seinni hluti

lesa má fyrri hluta sem birtist fyrir viku síðan hér

Svartsengi - HS orka
Mynd: HS orka

Í þessum síðari hluta greinarinnar verður rætt um hverjir tóku ákvarðanir og ábyrgð á lánveitingunum svo og vinnubrögð, afleiðingar og annað sem málinu tengist. Í fyrri hluta greinarinnar sem birtist þann 10. október sl. í Vísbendingu 33. tbl. 43. árg. var greint frá lántöku HS Orku hjá eigendum sínum og þeim félögum sem að henni koma og eignarhaldi á þeim.

Ákvarðanir og ábyrgð

Þótt þau lánaviðskipti sem hér um ræðir séu viðskipti félaga eru þau í raun ákvarðanir einstaklinga og á ábyrgð þeirra. Í þeirri félagaflækju sem að framan er lýst getur verið erfitt að greina hverjir það eru sem ákvarðanir taka og hverjir geta talist ábyrgir fyrir þeim. Á það sérstaklega við um ákvarðanir sem teknar eru af þeim félögum sem margir eigendur standa að eins og HS Orka Holding og Jarðvarmi slhf. Þær ákvarðanir sem þessi félög taka eru teknar af þeim einstaklingum sem félögunum stjórna fyrir hönd og á ábyrgð raunverulegra eigenda þessara félaga. Er því óhjákvæmilegt að spyrja hvort þær samræmist hagsmunum og vilja eigendanna og hvort þær hafi verið teknar með vitund þeirra og fullu umboði.

Óljóst er hvaðan tillaga um lánveitingu til HS Orku er komin og einnig hvernig samþykki hennar fyrir hönd raunverulegra eigenda var háttað. Vegna takmarkaðra upplýsinga um það efni í ársreikningum eða öðrum gögnum verður aðeins ályktað um það í ljósi stöðu og umboðs þeirra sem að málinu komu á hverju stigi.

Þörf rekstrarfélagsins, HS Orku hf, á láni er vægast sagt óljós og enn síður er hægt að styðja lán með nærri 11% vöxtum til 12 ára skynsamlegum rökum. Tillögu um lántökuna er því vart að leita hjá stjórn rekstrarfélagsins þar sem val stjórnarmanna virðist hafa ráðist af rekstrarlegum forsendum, en líklegt að hana megi rekja til fyrirtækisins HS Orka Holding sem er samstarfsvettvangur eigendanna.

Hæpið er að fulltrúar Jarðvarma í stjórn HS Orka Holding hafi lagt tillöguna fram og benda líkur til þess að hún hafi komið frá erlendu eigendunum, sem hagnast munu á skattasniðgöngunni. Þó er óhjákvæmilegt að spyrja um hlut forstjóra HS Orku Holding hf. og hvort eigendur félagsins hafi við ráðningu hans horft til þess að í forstjóratíð hans hjá Fjarðaráli var tekið upp lántökuskema sem leiddi til þess að það fyrirtæki hefur aldrei greitt teljandi tekjuskatt en fært Alcoa milljarða viðbótarhagnað á kostnað íslenskra skattgreiðenda.

Hvernig svo sem tillagan um lánaviðskiptin er fram komin hefur stjórn HS Orka Holding orðið að taka afstöðu til hennar og samþykkja hana, þar á meðal þeir stjórnarmenn sem tilnefndir voru af Jarðvarma slhf og eru fulltrúar lífeyrissjóðanna. Hvort skattaleg áhrif hennar hafi verið rædd og hver rök þeirra voru fyrir að samþykkja hana liggur ekki fyrir. Þeir hljóta hins vegar að hafa kynnt stjórn Jarðvarma tillöguna áður en hún var samþykkt, þar sem það félag leggur fram hluta lánsfjárins f.h. sjóðanna.

Lífeyrissjóðirnir 14 sem eiga Jarðvarma leggja fram lánsféð. Þess vegna og einnig vegna þess hve lánveitingin er stór og óvenjuleg verður að ætla að stjórn Jarðvarma hafi borið hana undir stjórnir lífeyrisjóðanna og þeir því ábyrgir fyrir henni. Hvort ábyrgðin liggur hjá framkvæmdastjórum sjóðanna og starfsfólki þeirra eða stjórnum lífeyrissjóðanna er þó óljóst en hafi lánveitingin verið samþykkt án aðkomu stjórna sjóðanna virðist sem starfsfólk sjóðanna hafi brotið þær starfsreglur sem því eru settar og koma m.a. fram í starfsháttayfirlýsingunum hér að framan og því farið út fyrir umboð sitt með því að fjárfesta í starfsemi sem ekki uppfyllir þær kröfur sem sjóðirnir gera.

Með tilliti til eðlis umræddrar lánveitingar vekur sérstaka athygli að meðal eigenda Jarðvarma slhf er Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins. Í stjórn hans sitja fjórir einstaklingar tilnefndir af bandalögum opinberra starfsmanna og fjórir fulltrúar tilnefndir af fjármálaráðherra. Það sætir ólíkindum að fulltrúar þessara aðila hafi fallist á ráðstafanir sem fyrst og fremst hafa þann tilgang að rýra tekjur ríkissjóðs.

Lánveiting Jarðvarma slhf til HS Orku er dæmi um gjörning sem bæði gengur gegn fjárhagslegum hagsmunum samfélagsins og er í hrópandi ósamræmi við tilgang lífeyrissjóðanna. Hún brýtur gegn öllu sem nefna má samfélagslega ábyrga stjórnunarhætti og er …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina